Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Bingi veltir fyrir sér hvort „Davíð ætti að vera stjórnmálamaður og reyna á vinsældir sínar þar“

Séra Davíð Þór Jónsson er í framboði
Séra Davíð Þór Jónsson er í fram­boði

Björn Ingi Hrafnsson fjölmiðla­maður, oft kallaður Bingi, segir að þótt Davíð Þór Jónsson sé sóknar­prestur megi hann að sjálfsögðu taka þátt í umræðum samfélagsins eins og allir aðrir:

„En hann er bara búinn að gera svolítið mikið af þessu. Það eru nokkur ár síðan hann var orðaður við forseta­framboð, þá ræddi hann mikið um þetta. Það er mánuður síðan hann var á Austur­velli að gagnrýna Vinstri græna harðlega fyrir að selja sál sína í Íslands­bankamálinu, og þá hafði hann líka uppi stór orð,“ sagði Björn Ingi, sem er ritstjóri Viljans – í umræðu­þættinum Sprengis­andi á Bylgjunni, þar sem hann og blaða­konan Bára Huld Beck veltu fyrir sér máli Davíðs Þórs Jónssonar sóknar­prests; en eins og margir vita gagnrýndi hann ríkis­stjórnina harðlega í vikunni fyrir fjölda­brott­vísarnir úr landi, sem áætlaður eru á næstunni.

Björn Ingi Hrafns­son

Björn Ingi sagði að orð Davíðs Þórs gætu varla flokkast sem haturs­orðræða: Þar sem orð hans beindust að fólki í valda­stöðu.

Að mati Björns Inga voru helvítis­líkingar Davíðs Þórs óviðeigandi af þeirri ástæðu að hann er prestur. Velti blaða­maðurinn því fyrir sér hvort Davíð Þór ætti ekki bara að fara út í stjórn­málin sjálfur:

„Á einhverjum tíma­punkti er ekkert óeðlilegt að maður velti fyrir sér hvort Davíð ætti ekki bara að fara sjálfur að vera stjórn­málamaður, og reyna á vinsældir sínar þar og láta rödd sína heyrast.

Í stað þess að gera þetta sem prestur, því það er öðruvísi þegar prestur segir að maður eigi vist í helvíti skilið og að ríkis­stjórn Íslands sé fasista­stjórn.“

Bætti við:

„Það er að mínu mati mikil vanvirðing við þá íbúa heimsins sem búa í fasista­ríkjum. Það er ekkert grín og það er ekki þannig að Íslendingar búi í fasista­ríki.“ sagði Björn Ingi og nefndi að í slíkum ríkjum væri oft ekki mikið tjáningar­frelsi, og alls óvíst að presturinn Davíð Þór hefði komist upp með gagnrýni sína í slíkum löndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá