Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Karll III snuðar Andrés bróður sinn – Vill ekki fá hann sem ráðgjafa hirðarinnar

Kalli kóngur
Kalli kóngur

Karl III Breta­konungur snuðaði bróður sinn, Andrés prins með því að bæta hinum systkinum sínum í ráðgjafahóp sinn en sleppa Andrési.

Karl III.

Tveir af þremur er ekki slæmt

Hinn breski frétta­miðill Mirror segir að Andrés prins hafi færst neðar í hinni konunglegu goggunarröð þegar bróðir hans, Karl III réði systkini þeirra, Önnu prinsessu og Eðvarð Prins, jarl af Wessex sem ráðgjafa við hirð sína. Það þýðir að þau gætu þurft að leysa konunginn af við skyldu­störf. Og með þessu útilokaði Karl III Andrés bróður sinn frá slíkum skyldum.

Sagðist hinn nýji konungur vera „afar hlynntur því“ ef ráðgjöfunum yrði fjölgað til að koma systkinum sínum að borðinu. Þá ku Harrý prins aukreitis halda sæti sínu sem ráðgjafi, þrátt fyrir fregnir af mögulegri andstæðu þess.

Í yfir­lýsingu Karls III skrifaði konungurinn: „Til að tryggja áfram­haldandi skilvirkni opinberra starfa, þegar ég er upptekinn, svo sem á meðan ég er að gegna opinberum störfum erlendis, staðfesti ég að ég væri afar hlynntur því ef þingið teldi það henta þeim ef fjöldi fólks sem gæti verið kallaður til starfa sem ráðgjafar ríkisins, samkvæmt skilmálum Regency Acts 1937 og 1963, sé fjölgað þannig að bæta megi systur minni og bróður, konunglegu prinsessuna og jarlinn af Wessex og Forfar. Bæði hafa þau áður tekið að sér þetta hlutverk.“

Anna prinsessa

Eftir að yfir­lýsing Karls III var lesin upp á þinginu kváðu við „Heyr, heyr“ frá bekkjum salarins Talið er að breytingin verði gengin í garð fyrir árslok en búist er við að konungurinn og drottning hans muni fara utan til skyldu­starfa á nýju ári, sem gæti gerst á sama tíma og prinsinn og prinsessan af Wales verða utanlands.

Þetta útspil Karls III er talið grafa undan vonir Andrésar prins um að geta aftur snúið aftur í sviðs­ljósið eftir að hafa verið í skugganum undan­farin ár eftir ásakanir um barnaníð. Andrés hafði áður þjónað sem ráðgjafi ríkisins ásamt Bertu Dís prinsessu, Vilhjálmi prins og Harrý prins.

Andrés prins lét af konunglegum skyldum sínum og var strípaður af hernaðar­tengingum sem og verndara­stöðu sinni, af móður sinni, Elísabetu Englandsdrottninu í kjölfar kynlífs­hneykslis fyrr á árinu.

Hinn smánaði prins

Var prinsins þar sakaður um barnaníð en sú sem sakaði hann var Virginia Giuffre sem sagði Andrés hafa brotið kynferðis­lega á henni þegar hún var aðeins 17 ára í gegnum hinn alræmda barna­níðing, Jeffrey Epstein sem framið var sjálfs­morð á í fangelsi árið 2019. Prinsinn og Epstein voru nánir vinir um árabil. Neitaði Andrés öllum saka­giftum en skrifaði að lokum undir sáttar­samning án þess að játa sekt sína.

Andrés, prins og barn­a­níð­ingur

Síðan þá hefur Andrés sveimað í kringum konungs­fjöl­skylduna og komið stuttlega fram opinber­lega, til dæmis er hann gekk með móður sinni í minningar­athöfn um föður hans, Filippus prins.

Hinn smánaði hertogi er sagðu hafa sagt að hann hafi „alltaf trúað því að það sé leið fyrir hann til að snúa aftur“ til sinna fyrra starfa og talið sig enn geta gert konungs­fjöl­skyldunni gagn þrátt fyrir tengsl hans við hinn dæmda barna­níðing Epstein og þær ásakanir um kynferðis­brot gegn honum.

En á morgun­fundi rétt fyrir andlát drottningarinnar er Karl III sagður hafa komið Andrési leiðinlega á óvart með því að tilkynna honum að prinsinn myndi aldrei aftur snúa til opinberra starfa.

Þegar Karl III tók við krúnunni voru þrír af fimm ráðgjöfum hans óstarfandi, þar af einn vegna ásakana um kynferðis­brot. Af þeim sökum er talið að konungurinn hyggist breyta lögunum á þann veg að aðeins vinnandi meðlimir konungs­fjöl­skyldunnar geti verið ráðgjafar hirðarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum
Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“