Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Konum sparkað úr Eiffel-turninum vegna trúarleiðtoga

Reiði í Frakk­landi

Skandall í Eiffel-turninum
Skandall í Eiffel-turn­inum Mynd: Tourist site city Paris

Ákvörðun stjórn­enda Eiffel-turnsins í París, um að verða við ósk indversks trúfélags og halda kvenkyns starfs­mönnum til hlés, hefur vakið hörð viðbrögð og mikla reiði í Frakk­landi. Konunum var gert að vera eins lítið áberandi og mögulegt var á meðan leiðtogi félagsins heimsótti turninn á laugardag. Vegna málsins var turninum lokað í gær á meðan stjórn­endur funduðu með starfs­fólki.

Heimsókn Mahant Swami Maharaj, leiðtoga hindúa­trúfélagsins BAPS (Bochasanwasi Akshar Purushottam Swaminarayan Sanstha), dró dilk á eftir sér þegar í ljós kom að stjórn­endur mann­virkisins höfðu skipað kvenkyns starfs­mönnum að yfirgefa vinnu­svæði sín eða fara afsíðis. Í sumum tilfellum voru karlmenn fengnir til að ganga í störf kvennanna á meðan heim­sókninni stóð, svo trúar­leiðtoginn þyrfti sem minnst að umgangast konur.

Harðar deilur og lokun turnsins

Starfsmanna­félag Eiffel-turnsins fordæmdi ákvörðunina harðlega og lýsti yfir hneykslun á því að konum hefði verið vikið til hliðar og þær gerðar ósýnilegar vegna kyns síns. Mótmæli starfs­fólks leiddu til þess að turninum var lokað í heilan dag á meðan stjórn­endur ræddu við starfs­fólk, en hann var opnaður á nýjan leik í morgun.

Franskir stjórn­málamenn hafa stigið fram og fordæmt atvikið einum rómi. Aurore Berge, jafnréttis­ráðherra Frakk­lands, sagði málið forkastanlegt og benti á að í Frakk­landi væri engin hefð fyrir því að skipa konum að vera ósýnilegar.

Biðjast afsökunar á mistökunum

Trúfélagið BAPS, sem hefur náin tengsl við Narendra Modi, forsætis­ráðherra Indlands, hefur sent frá sér afsökunar­beiðni vegna þeirra óþæginda og sársauka sem málið hefur valdið.

Stjórn­endur Eiffel-turnsins hafa sömuleiðis beðist opinber­lega afsökunar á atvikinu og viðurkenna að það hafi verið alvarleg mistök að verða við beiðni trúfélagsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs