Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Grátandi Lady Gaga gat ekki klárað tónleika sína: „Vissi að það var betra að halda ykkur öruggum“

Lady Gaga eftir tónleikana í gær.
Lady Gaga eftir tón­leik­ana í gær. Mynd: Instagram

Söngdívan Lady Gaga tók þá erfiðu ákvörðun í gærkvöldi að ljúka tónleikum sínum í Miami í flýti. Ástæðan voru eldingar sem voru farnar að færast nær og nær.

Lady Gaga átti eftir að taka tvö lög þegar hún ákvað að taka þá erfiðu ákvörðun að hætta tónleikunum en þetta voru síðustu tónleikarnir í Chromatica Ball tónleika­ferðalagi hennar. Í myndbandi á Instagram og með texta á sama miðli, útskýrði hún, tárvotum augum að þó henni hafi þótt þetta ömurlegt hafi þetta verið rétt ákvörðun. Tónleikarnir voru haldnir í Hard Rock höllinni í Miami en höllin hefur ekki þak. Fröken Gaga taldi ekki öruggt að halda tónleikunum áfram í rigningunni því eldingar voru farnar að færast hættulega nálægt höllinni.

Lady Gaga eftir tón­leik­ana í gær.

Eftir­farandi er texti sem hún skrifaði á Instagram:

„Mér þykir leitt að hafa ekki getað klárað sýninguna mína en það var of hættulegt því eldingarnar voru orðnar óútreiknanlegar og breyttust ört, ég elska ykkur. Sko, í einhver ár hafið þið kallað mig „mamma skrímsli,“ og í hjarta mínu vissi ég að það var betra að halda ykkur öruggum. Takk fyrir að trúa á mig. Þetta var besta tónleika­ferðalag lífs míns og ég mun geyma þetta augnablik að eilífu – Það tók mig langan tím að ná heilsu en mér tókst það. Jú,jú, AUÐVITAÐ vildi ég syngja Rain on me fyrir ykkur í rigningunni „I’d rather be dry, but at least I’m alive“ (texti úr laginu). Ég hugsa að ég hafi einhvern veginn vitað að þetta augnablik myndi koma og ég er svo þakklát fyrir ykkur, dansarana mína, hljóm­sveitina mín og allt starfs­liðið mitt, fjöl­skylduna mína og vini. Öryggið fyrst. Elska ykkur. Takk fyrir blómin og fagnaðar­lætin og fyrir skilninginn. Lífið skiptir máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt