Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Matthew Perry opnar sig um drykkju og lyfjavanda sinn í Friends: „Við vitum að þú ert að drekka“

Matthew Perry
Matthew Perry Mynd: Steven Ferdman / Paul Bruinooge/Patrick McMullan

Matthew Perry sem lék hinn drep­fyndna Chandler í hinum vinsælu gaman­þáttum Friends, hefur nú opnað sig um áfengis­vanda sinn. Í væntanlegu viðtali við Diane Sawyer hjá ABC News, segir hann meðal annars frá því hver það var af „vinunum“ sem gekk á hann með þennan vanda. Kallaði hann það „óhugnanlegt“

Í klippu frá viðtali Diane Sawyer við hinn 53 ára Matthew Perry, sem birtst í heild sinni á næstu dögum, segir Perry að það hafi verið Jennifer Aniston sem rétti honum hvað mest hjálpar­hönd þegar hann missti tökin á drykkju sinni. Sagðist hann einnig hafa tekið inn Methadone, Xanax og drukkið vodka á hverjum degi auk 55 Vicodin á dag. Hann sagði að Aniston hefði sagt við hann „við vitum að þú ert að drekka“.

„Já. Ímyndaðu þér hversu óhugnanlegt augnablik það var. Hún er sú sem hjálpaði mér mest. Ég er mjög þakkátur henni fyrir það,“ sagði Perry í viðtalinu.

Í fyrra sagði Aniston í viðtali að hún skyldi ekki þá „sjálfspyntingu“ sem Perry gekk í gegnum er þau léku í Friends.

„Ég skildi ekki hversu mikill kvíði og sjálfspíning Matthew gekk í gegnum þegar hann fékk fólk ekki til að hlæja og hversu hræðilega honum leið,“ sagði Aniston í viðtali við Today.
„En þetta hljómar mjög rökrétt.“

Í viðtali Sawyer við Perry, sem fer í loftið þann 28 október næst­komandi hjá ABC, segir Perry einnig að hann hefði „farið í dá og rétt svo lifði af.“ Tilefni viðtalsins er sjálfs­ævisaga Perry sem kemur út 1. nóvember en hún ber heitið Friends, Lovers and the Big Terrible Thing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn
Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt