Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Nokkur góð ráð til að hrósa: „Flest okkar hafa sjötta skilningarvitið“

Ingrid Kuhlman
Ingrid Kuhlman

„Flott klipping, hún fer þér vel“, „Ræðan sem þú hélst í afmælis­veislunni var mjög áhrifa­mikil“, „Þú ert virkilega góður vinur; ég get ekki sagt þér hversu frábært það var að tala við þig í síðustu viku þegar ég var í uppnámi,“ segir Ingrid Kuhlman, eigandi ráðgjafa­þjónustunnar Þekkingar­miðlun í aðsendri grein á Vísi í dag.

„Einlægt hrós lætur okkur líða vel, bæði þegar við veitum það og þiggjum. Þegar við hrósum sýnum við þakklæti, sem er grundvallar­þörf mannsins og mikilvægt í öllum samskiptum. Vísinda­menn hafa komist að því að sömu hlutar heilans lýsast upp þegar við fáum hrós og þegar við fáum umbun eins og peninga.

Hrós hjálpar okkur að taka eftir og meta það sem er gott. Það styrkir æskilega hegðun. Ef við segjum sem dæmi samstarfs­manni hversu gott það sé að geta leitað til hans um aðstoð og ráð er líklegt að hann verði boðinn og búinn að aðstoða okkur í fram­tíðinni.

Hvernig getum við orðið betri í að gefa hrós?

Meðfylgjandi eru nokkur góð ráð:

Veittu einlægt hrós

Það gæti virst skaðlaust að segja einhverjum að skórnir hans séu fallegir, jafnvel þó að þér finnist þeir ljótir. En í langflestum tilfellum mun ósvikið hrós hafa mun meiri áhrif. Flest okkar hafa sjötta skilningar­vitið þegar einhver segir eitthvað án þess að meina það.

Taktu eftir

Lykillinn að því að gefa hrós og vera góður í því að gefa hrós er að veita fólkinu í kringum sig eftirtekt. Taktu eftir því hvað þér líkar við eða kannt að meta við manneskjuna og nefndu það.

Vertu nákvæmur og útskýrðu hvers vegna þú ert að hrósa

Gott hrós er nákvæmt og sértækt. Að heyra að einhverjum finnist við klár, góð eða falleg er auðvitað gaman að heyra, en slíkt hrós er almennt og getur átt við um marga. Að nefna eitthvað ákveðið sýnir að við veitum eftirtekt. Í stað þess að segja einhverjum að hann sé góður fundar­stjóri væri t.d. hægt að segja: „Mig langar að hrósa þér fyrir fundar­stjórnina áðan. Ég var ánægður með að þú skulir hafa tekið sorpmálið af dagskrá. Við hefðum aldrei náð að ljúka fundinum á tilsettum tíma þar sem við þurfum góðan tíma til að ræða þetta mál frá öllum hliðum.

Veittu hrós sem oftast

Helst ættum við að gefa (og fá) hrós á hverjum degi, sérstak­lega í nánum samböndum. Það er mjög auðvelt að taka hvert öðru sem sjálfsögðum hlut eða gera aðeins að umtals­efni það sem þarfnast lausna. Að taka eftir öllu því góða við maka þinn, börn þín, systkini eða vini er mikilvægt og getur styrkt sambandið. Þegar við venjumst því að gefa oftar hrós munum við líka taka betur eftir því sem vel gengur.

Taktu á móti hrósi með þakklæti

Stundum finnst fólki óþægilegt að fá hrós og sumir tengja hrós við mont. Að kunna að taka hrósi er jafn mikilvægt og að gefa hrós. Þegar við höfnum hrósi eða gerum lítið úr því erum við í raun að segja þeim sem hrósar okkur að hann hafi rangt fyrir sér eða að við viljum ekki fá hrós. Þetta er eins og að neita að þiggja gjöf frá einhverjum. Einfalt „TAKK“ virkar oft best.

Alþjóðlegi hrósdagurinn

Alþjóð­legi hrós­dagurinn verður haldinn hátíð­legur í dag, 1. mars. Haldið var fyrst upp á daginn í Hollandi fyr­ir 19 árum en nú er honum fagnað víða um heim, meðal annars hér á landi. Á vefsíðu alþjóð­lega hrós­dagsins www.worldcomplimentday.com segir að það sé markmið aðstand­enda hans að hann verði „já­kvæðasti dag­ur heims­ins.“ Öll höfum við þörf fyrir að fá hrós. Það er ekkert sem gleður meira, gefur meiri orku og gerir fólk ánægðara en einlægt hrós.“

Höfundur hrinti hrós­deginum á Íslandi af stað árið 2013 og stofnaði Facebook-síðuna Hrós dagsins . Þar setja um 7.000 manns reglulega inn hrós.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá