Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Mál Arons Einars og Eggerts Gunnþórs komið inn á borð ákærusviðs

Aron Einar Gunnarsson og Eggert Gunnþór Jónsson
Aron Einar Gunn­ars­son og Eggert Gunnþór Jónsson

Mál knattspyrnu­mannanna Arons Einars Gunnars­sonar og Eggerts Gunnþórs Jónssonar er nú komið inn á borð ákæru­sviðs. Lögregla hefur því formlega lokið rannsókn á málinu.

Ævar Pálmi Pálmason, yfirmaður kynferðis­brota­deildar, staðfesti þetta við frétta­stofu RÚV í gær. Um er að ræða rannsókn lögreglu á kynferðis­brotamáli sem kom upp í Kaupmanna­höfn fyrir rúmum áratug en þeir Aron Einar og Eggert Gunnþór hafa réttar­stöðu grunaðra í málinu.

Meintur brotaþoli birti frásögn sína á samfélags­miðlum í maí síðastliðnum. Sögur voru á reiki um það hvaða tveir knattspyrnu­menn ættu í hlut en í lok september var greint frá því að lögregla hefði tekið mál tvímenninganna upp að nýju að beiðni brotaþola.

Þegar Aron Einar var ekki valinn í landsliðs­hópinn gaf hann frá sér yfir­lýsingu þar sem hann sagði meðal annars að það hlyti að vera vegna sögusagna um meint brot í Kaupmanna­höfn. Hann þvertók fyrir það að hafa gerst brotlegur gagnvart neinum og að hann ætlaði sjálfur að óska eftir því að gefa skýrslu hjá lögreglu.

„Það er hrika­legt áfall að vera ásakaður um hræðilegt of­beld­is­brot vegna at­viks sem var svo sann­ar­lega ekki með þeim hætti sem lýst er í fjöl­miðlum,“ sagði Eggert Gunnþór í yfir­lýsingu sem hann sendi frá sér eftir að hafa verið nafn­greindur í Stundinni.

Þeir Aron Einar og Eggert Gunnþór hafa gefið það út að þeir reikni með því að málið verði fellt niður. Þetta sögðu þeir strax í desember, eftir að hafa gefið skýrslu hjá lögreglu. Rannsókn var því enn í fullum gangi á þeim tíma.

„Þeir hafna því með öllu að hafa brotið af sér og reikna með að málið verði fellt niður. Afstaða þeirra er því alveg óbreytt. Að öðru leyti vísast til fyrri yfir­lýsinga þeirra en þeir munu ekki tjá sig frekar um málið að sinni,“ sagði í yfir­lýsingu frá lögmanni þeirra við það tækifæri.

Í ljós hefur komið að KSÍ leyndi málinu og virðist það hafa verið upphafið að falli Guðna Bergs­sonar, fyrrum formanns KSÍ, samkvæmt skýrslu úttektar­nefndar á vegum Íþrótta­sambands Íslands um KSÍ. Hvorki Aron Einar né Eggert Gunnþór voru nafn­greindir í skýrslunni en þar sagði að Guðni hefði í júní vitað að Aron Einar væri annar tveggja manna sem sakaðir væru um kynferðis­brot í metoo-frásögn á samfélags­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá