InnlentÁhugaverð viðtöl úr Mannlífi árið 201925. desember 2019 Nú þegar styttist í áramótin er gaman að líta til baka og rifja upp nokkur viðtöl úr Mannlífi sem vöktu athygli á árinu. Þetta er brot af því sem vakti eftirrekt á þessu ári.
InnlentJólin voru mikill sukktími21. desember 2019 Í einlægi viðtali við Mannlíf segir Franz Gunnarsson að eiginlega engin orð ná yfir þann mun sem sé á líðaninni eftir að hann tók til í lífi sínu og hætti að drekka.
InnlentUndirbjó sín síðustu jól21. desember 2019 Aðfangadagur árið 2018 mun aldrei líða Ingibjörgu Rósu Björnsdóttur úr minni og þótt sú minning sé ekki góð skyggir hún á allar aðrar jólaminningar í huga hennar. Þær fréttir sem hún fékk þann dag, eftir margra tíma veru á göngudeild krabbameinsdeildar Western General-sjúkrahússins í Edinborg, gerðu það að verkum að hún átti allt eins von á því að vera að upplifa sín síðustu jól.
InnlentReyndi allt annað en meðferð20. desember 2019 Franz Gunnarsson hætti að drekka fyrir tæpum fimm árum og er því að upplifa sín fjórðu jól edrú. Hann segir eiginlega engin orð ná yfir þann mun sem sé á líðaninni eftir að hann tók til í lífi sínu, ekki síst á sambandi hans við sex ára son sinn, sem elskar að fara á jólaböll með pabba sínum.
InnlentBakaði til að hafa stjórn á erfiðum aðstæðum15. desember 2019 Tobba Marinós hefur orð á sér fyrir að vera alltaf hress og láta ekkert buga sig, en hún hefur þurft að takast á við ýmsa erfiðleika, missti systur sína fyrir þremur árum og segir sorgina aldrei ganga yfir. Það skipti þó öllu máli að fjölskyldan sé samheldin og þar sé alltaf talað um hlutina á opinskáan hátt um leið og lögð sé áhersla á að geta gert grín að sjálfum sér.
InnlentTobba og Kalli ákváðu að prófa ráðgjöf þegar illa gekk14. desember 2019 Í opinskáu forsíðuviðtali við Mannlíf talar Tobba Marinós um fjölskylduráðgjöfina sem hún og eiginmaður hennar, Karl Sigurðsson, fóru í. Hún segir mikilvægt að leita sér aðstoðar þegar þörf krefur.
InnlentTobba líkir sorginni við teygju: „Það er ekkert hægt að mæla sorg í mánuðum eða árum“13. desember 2019 Í opinskáu forsíðuviðtali við Mannlíf talar Tobba Marinós um systur sína sem lést árið 2016. Tobba segir jólin erfiðan tíma fyrir fjölskyldur sem eru í sorg og hennar fjölskyldu enga undantekningu frá þeirri reglu.
InnlentErfitt að finna jólavinkil á Samherjamálið1. desember 2019 Baggalútsmennirnir Bragi Valdimar Skúlason og Karl Sigurðsson eru komnir í jólagírinn og undirbúa árlega jólatónleika hljómsveitarinnar. Þeir viðurkenna að það að verða feður hafi dregið úr glæfralegri orðanotkun í textum en harðneita því að vera orðnir minna beinskeyttir og krítískir. Baggalútur hefur undanfarin ár einmitt sent frá sér nýtt jólalag fyrir hver jól, verður það sama upp á teningnum í ár?
InnlentHefði átt að nota „fokk“ minna30. nóvember 2019 Bragi Valdimar Skúlason hefur samið mest af textum Baggalúts í gegnum árin og rifið kjaft um nánast alla skapaða hluti, hefur hann aldrei orðið fyrir aðkasti utan úr bæ fyrir kjafthátt?
InnlentKarl tjáir sig um samfélagsmiðlalífið: „Ég þekki mína konu og veit að Tobba fer ekkert lengra en ég myndi sætta mig við“29. nóvember 2019 Jólatónleikar Baggalúts eru ómissandi hluti aðventunnar hjá mörgum og hljómsveitin mun ekki bregðast aðdáendum sínum í ár, frekar en vanalega. Liðsmenn Baggalúts, þeir Bragi Valdimar Skúlason og Karl Sigurðsson, eru komnir í jólagírinn og ætla að fitja upp á alls kyns nýjungum á tónleikunum í desember með félögum sínum. Þeir vilja ekki gangast við því að vera orðnir minna beittir í textaskrifum með árunum, þótt vissulega séu þeir orðnir ráðsettir heimilisfeður og farnir að velta meira fyrir sér orðvali og áhrifum textanna á börnin sín.
InnlentAllt tekið upp á myndband24. nóvember 2019 Björk Vilhelmsdóttir var handtekin af ísraelska hernum í síðasta mánuði þegar hún var við ólífutínslu í Palestínu. Hún sat í lögreglubifreið með sex lögreglumönnum og var á leið í yfirheyrslu þegar hún ákvað að hringja í eiginmann sinn, Svein Rúnar Hauksson, og biðja hann að hringja í borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins.
InnlentBjörk um Samherjamálið: „Fékk velgju yfir allri spillingunni“23. nóvember 2019 Björk Vilhelmsdóttir var handtekin af ísraelska hernum, ásamt Tinnu Eyberg Örlygsdóttur og tveimur frönskum konum, Nanou og Isabel, í síðasta mánuði þegar hún var við ólífutínslu í Palestínu og sat í haldi í þrjá tíma. Hún segir frá þessari lífsreynslu í viðtali við Mannlíf og tjáir sig einnig um Samherjamálið svokallaða sem er í brennidepli þessa stundina.