Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Allt tekið upp á myndband

Björk Vil­helms­dóttir var hand­tekin af ísra­elska hernum í síð­asta mán­uði þegar hún var við ólífu­tínslu í Palest­ínu. Hún sat í lög­reglu­bif­reið með sex lög­reglu­mönnum og var á leið í yfir­heyrslu þegar hún ákvað að hringja í eig­in­mann sinn, Svein Rúnar Hauksson, og biðja hann að hringja í borg­ara­þjón­ustu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Allt tekið upp á myndband
|||

Hún seg­ist vera mjög fegin að lög­reglan skyldi ekki taka af þeim sím­ana, ann­ars viti hún ekki hvernig þetta hefði farið.

„Einn lög­reglu­mað­ur­inn var með víd­eó­mynda­vél og tók okkur upp á mynd­band allan tím­ann sem við vorum í bílnum, til að ná sönn­unum ef við gerðum eitt­hvað af okkur. Við vorum með­höndl­aðar eins og glæpa­menn,“ segir Björk. „En ég var alveg róleg eftir að ég vissi að borg­ara­þjón­ustan væri komin í málið. Það eru algjör for­rétt­indi sem við Íslend­ingar búum við að hafa þessa borg­ara­þjón­ustu sem grípur inn í þegar fólk lendir í vand­ræðum.“

Eftir að komið var á lög­reglu­stöð­ina var kon­unum skipað að setj­ast inn á stóra skrif­stofu og þær látnar bíða þar. Björk segir að þeim hafi ekki verið sýnt neitt ofbeldi, en það hafi verið leitað með offorsi í bak­pokum þeirra allra.

„Þeir fundu strax vega­bréf frönsku kvenn­anna,“ segir hún. „En ég var með mitt vega­bréf í lít­illi hlið­ar­tösku ofan í bak­pok­anum og þegar þeir tóku hann tók ég hlið­ar­tösk­una upp úr og faldi hana. Það sama gerði Tinna, hin íslenska konan, og eng­inn þess­ara lög­reglu­manna virt­ist taka eftir neinu. Tinna lenti hins vegar í lík­ams­leit sem fram­kvæmd var af þremur lög­reglu­konum, en setti vega­bréfið fyrst í buxna­streng­inn meðan leitað var í maga­budd­unni sem það hafði verið í og síðan ofan í hana aftur. Henni var skipað að fara úr öllu nema nær­föt­unum á meðan leitað var á henni en þær fundu auð­vitað ekki vega­bréfið. Þegar þær ætl­uðu svo að fara að leita í maga­budd­unni sagði hún þeim að hinir lög­reglu­menn­irnir væru búnir að leita í henni svo þær hættu við. Þannig að þetta fór allt vel og okkar vega­bréf fund­ust ekki.“

Áfram var haldið að hóta kon­unum yfir­heyrslum, en þær fengu þó leyfi til að kalla til lög­mann sem þurfti að bíða eftir þannig að það dróst.

Á meðan beðið var hringdi ræð­is­maður Íslands í Ísrael og bað um að fá að tala við ein­hvern lög­reglu­mann­inn en það var bara skellt á hana. Lög­reglan sagð­ist ekki tala við „þetta fólk“. Bannaði Björk að hringja í hana aftur og tók af henni sím­ann.

„Ég var samt róleg,“ segir hún. „Ég vissi sem var að borg­ara­þjón­ustan og ræð­is­mað­ur­inn voru komin í málið og myndu ekki láta stoppa sig. Lög­reglan hefur ekki leyfi til að halda fólki lengur en 24 tíma þannig að ég vissi að við yrðum þarna aldrei lengur en það. Við vissum líka að það var ekki hægt að kæra okkur fyrir að vera ekki með vega­bréf. Erlent fólk hlýtur borg­ara­lega með­ferð í dóms­kerf­inu í Ísrael en Palest­ínu­menn lúta hern­að­ar­lögum. Þeir eru ofur­seldir her­lögum og á hverjum tíma eru hund­ruð Palest­ínu­manna í varð­haldi án dóms og laga, allt upp í sex mán­uði. Maður er auð­vitað glaður yfir eigin for­rétt­indum, en það vekur mann líka til umhugs­unar um hvað það er gróf­lega brotið á Palest­ínu­mönnum sem lenda í að vera hand­teknir.“

Eins og heimtar úr helju

Björk segir að þótt hún hafi ekki verið hrædd þann tíma sem hún sat í varð­hald­inu þá sé það skrýtin til­finn­ing að lenda í þess­ari stöðu. Eftir þrjá tíma var þeim til­kynnt að búið væri að taka ákvörðun um að láta þær lausar með því skil­yrði að þær lof­uðu að fara aldrei aftur inn á hern­að­ar­lega lokað svæði. Þær lof­uðu að reyna sitt besta til þess og voru þar með reknar út á götu og sagt að reyna að ná strætó til baka. Þá fyrst varð Björk dálítið hrædd.

„Þá stóðum við þarna inni í miðri land­töku­byggð­inni Ariel, þar sem búa um hund­rað þús­und manns og við vissum ekk­ert á hverju við ættum von. Það var alveg aug­ljóst af útgang­inum á okkur að við vorum að koma úr ólífu­tínslu og fólk horfði á okkur með mjög skrýtnu augna­ráði. Ég veit að þetta fólk er mjög óvin­veitt Palest­ínu­mönnum og við áttum alveg eins von á að ráð­ist yrði á okkur. Við fórum í strætó og ég spurði bíl­stjór­ann hvort hann færi út fyrir land­töku­byggð­ina. Þá spurði hann mig hvort ég tal­aði arab­ísku og þegar ég jánk­aði því, að ég kynni smá­hrafl í henni, sagði hann mér að hafa ekki áhyggjur, hann væri Palest­ínu­maður og myndi passa að ekk­ert kæmi fyrir okkur.

Það var mjög nota­leg til­finn­ing að finna að við vorum komnar í öruggar hendur.

Eftir að við komum út úr stræt­is­vagn­inum hringdi ég í leigu­bíl­stjóra úr þorp­inu okkar sem tók afskap­lega fal­lega á móti okkur, enda búinn að frétta af hand­tök­unni og lét eins og við værum heimtar úr helju og sama gerðu aðrir þorps­búar sem flykkt­ust til okkar um kvöldið. Við reyndum að útskýra fyrir þeim að við hefðum aldrei verið í hættu, þetta væri ekki það sama og þegar Palest­ínu­menn eru hand­teknir. Það er auð­vitað ein­göngu að þakka okkar vest­rænu vega­bréfum og borg­ara­þjón­ust­unni, sem breytir í raun­inni öllu og ég get ekki þakkað og dásamað eins og vert væri.“

Lestu við­talið í heild í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Myndir / Hákon Davíð Björns­son
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir, alþjóð­legur förð­un­ar­meist­ari Yves Saint Laurent á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi