InnlentBjörk stóð frammi fyrir erfiðri ákvörðun: „Ég þurfti annaðhvort að skilja við manninn minn eða skilja hann“22. nóvember 2019 Björk Vilhelmsdóttir var handtekin af ísraelska hernum, ásamt Tinnu Eyberg Örlygsdóttur og tveimur frönskum konum, Nanou og Isabel, í síðasta mánuði þegar hún var við ólífutínslu í Palestínu og sat í haldi í þrjá tíma. Hún segist hafa haldið ró sinni allan tímann, en vissulega hafi þessi reynsla haft áhrif á hana og valdið henni óróa. Það sé þó ekki neitt neitt miðað við það ofbeldi og mannréttindabrot sem hún verði nánast daglega vitni að þegar hún dvelur í Palestínu.
InnlentErfiðir dagar munu koma16. nóvember 2019 „Ég veit að það munu koma erfiðir dagar,“ segir Haukur Örn Birgisson í viðtali við Mannlíf. Hann og Guðríður Magndís Guðmundsdóttir, sambýliskona hans, eignuðust andvana tvíbura í lok október eftir rúmlega tuttugu og tveggja vikna meðgöngu.
Innlent„Það er ekki hægt að gefa neina uppskrift að því hvernig á að syrgja“15. nóvember 2019 Haukur Örn Birgisson, hæstaréttarlögmaður og forseti Golfsambands Íslands, og Guðríður Magndís Guðmundsdóttir, sambýliskona hans, eignuðust andvana tvíbura í lok október eftir rúmlega tuttugu og tveggja vikna meðgöngu. Ekkert hafði bent til þess að eitthvað væri að og áfallið því enn meira en ella. Haukur lýsti upplifuninni af því að missa drengina í Bakþönkum Fréttablaðsins og segist aldrei hafa órað fyrir þeim viðbrögðum sem pistillinn fékk. Það sé ekki líkt honum að bera tilfinningar sínar á torg með slíkum hætti.
Innlent„Ég hafði sterka tilfinningu fyrir því að tíminn væri naumur“3. nóvember 2019 Þóra Karítas Árnadóttir segir ferð á vegum UN Women til Malaví, þar sem hún tók viðtöl við brúðir á barnsaldri, hafa rifjað upp sögu móður hennar sem hún skráði í bókinni Mörk. Kynferðisofbeldi gegn börnum eigi sér engin landamæri.
InnlentÞessar sögur þurfa að heyrast1. nóvember 2019 Þóra Karítas Árnadóttir fór í fyrra í ferð til Malaví á vegum UN Women og tók þar viðtöl við brúðir á barnsaldri. Hún segir sögur um þvinguð hjónabönd og kynferðisofbeldið sem þeim fylgir eiga erindi við íslenskan nútímaveruleika.
InnlentEngin leið að sjá hvernig sjúkdómurinn þróast27. október 2019 Haraldur Þorvaldsson, stofnandi rafræna hönnunarfyrirtækisins Ueno, hefur þurft að nota hjólastól síðan hann var tuttugu og fimm ára vegna meðfædds vöðvarýrnunarsjúkdóms og tal okkar berst að honum.
InnlentMóðurmissirinn hefur markað líf Haraldar: „Ég byrgði þetta bara allt saman inni“26. október 2019 Í forsíðuviðtali við Mannlíf ræðir Haraldur Þorleifsson, stofnandi Ueno, meðal annars fyrirtækið og hvernig er að vera yfirmaðurinn, vöðvarýrnunarsjúkdóminn, drykkjuna og meðferðina og móðurmissinn sem hann hefur aldrei unnið úr.
InnlentHætti að drekka til að bjarga sambandinu25. október 2019 Þegar Haraldur Þorleifsson stofnaði stafræna hönnunarfyrirtækið Ueno árið 2014 var hann eini starfsmaður þess og hafði engin plön um stækkun. Fimm árum síðar eru starfsmennirnir orðnir 65 og skrifstofur fyrirtækisins þrjár, bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum. Haraldur hefur þó engan veginn fetað beinu brautina í átt að þessum árangri.
Innlent„Mín fyrstu viðbrögð þegar konan mín veiktist höfðu verið að þetta skyldi enginn fá að vita“19. október 2019 Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, segir allt tal um erjur innan Sjálfstæðisflokksins úr lausu lofti gripið, það sé eðlilegt að ræða mismunandi skoðanir innan flokks.
InnlentHatrömm átök12. október 2019 Kvikmyndagerðarkonan Hrafnhildur Gunnarsdóttir safnaði heimildum í 27 ár fyrir þættina og heimildarmyndina Svona fólk. Hrafnhildur bjó í Kaliforníu fram yfir aldamót en kom reglulega heim og var þá dugleg að mynda homma- og lesbíusamfélagið.
Innlent„Það er ekki gott að búa í angist“11. október 2019 Alnæmið hefur aldrei verið gert upp í íslensku samfélagi, segir Hrafnhildur Gunnarsdóttir kvikmyndagerðarkona. Hún segir söguna komna í undarlegan hring; orðin hommi og lesbía séu að hverfa. Það sé mikilvægt að þekkja fortíðina og ekki síður að vera undirbúinn fyrir bakslag.
Innlent„Vaktirnar, það er ekkert hægt að toppa þær“5. október 2019 Pétur Jóhann Sigfússon hefur skemmt landsmönnum opinberlega 20 ár, eða allt frá því að hann var valinn fyndnasti maður Íslands 1999. Pétur segir verkefnin hafa komið fyrirhafnarlaust upp í hendurnar á honum og áratugina tvo hafa flogið áfram. Hann segir það trufla sig lítið að vera landsþekktur og er þakklátur fyrir hlutverk sitt, bæði í leik og starfi.