Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hatrömm átök

Kvik­mynda­gerð­ar­konan Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir safn­aði heim­ildum í 27 ár fyrir þætt­ina og heim­ild­ar­mynd­ina Svona fólk. Hrafn­hildur bjó í Kali­forníu fram yfir alda­mót en kom reglu­lega heim og var þá dug­leg að mynda homma- og les­b­íu­sam­fé­lagið.

Hatrömm átök
Mynd/Unnur Magna|„Það var iðu­lega gefið í skyn að konur væru lélegri starfs­kraftar í fyr­ir­tækjum en karlar og það end­aði með því að ég setti mér það mark­mið að gera það sem ég gæti til að stuðla að því að karl­menn yrðu jafn­lé­legir starfs­kraftar og konur

Í Banda­ríkj­unum naut hún þess frelsis að geta lifað mjög opin­skátt sem lesbía en henni hugn­að­ist hins vegar ekki það sem hún kallar „gettó­isma“ sem ein­kenndi banda­rískt sam­fé­lag. Hún fagn­aði lögum um stað­festa sam­vist í Borg­ar­leik­hús­inu í ágúst 1996 og fyllt­ist gríð­ar­legu stolti að sjá þar for­seta lands­ins, þing­menn, presta og aðra stuðn­ings­menn. Það minnti hana á að það hafði aldrei staðið til að búa erlendis til eilífð­ar­nóns. End­an­lega ákvörðun um að flytja heim tók hún hins vegar þegar banda­rískt sam­fé­lag hóf að breyt­ast í kjöl­far árásanna á tví­bura­t­urn­ana 11. sept­em­ber 2001.

Hrafn­hildur kom því heim um það leyti sem gleði­ganga Hinsegin daga varð fastur liður í hátíð­ar­höldum í Reykja­vík. Sjálf var hún búin að fá nóg af Gay Pride í San Francisco, sem hún segir hafa verið orðin allt of „commercial“.

„En auð­vitað skynj­aði ég líka að þarna var kom­inn ein­hver mæli­kvarði á það hvernig Íslend­ingar voru að bregð­ast við þessum hópum. Og þessar tölur; fimm þús­und manns árið 2000 og þegar ég hætti að mynda 2015 eða 2016 var talað um að þetta hefðu verið hátt í 100 þús­und manns … þetta er nátt­úr­lega gríð­ar­leg spreng­ing og alveg ótrú­lega mik­il­vægt.“

Eins og fyrr segir er sjaldn­ast eins­leitni í stórum hóp ein­stak­linga og því við­búið að átök brjót­ist út. Það hefur nokkrum sinnum gerst á vett­vangi Sam­tak­anna ´78 og með hvelli árið 2016.

Hrafn­hildur gerir þessu skil í síð­asta þætti af Svona fólk en þá má segja að Samtökin hafi í raun klofnað þegar aðild BDSM Ísland var sam­þykkt á umdeildum aðal­fundi. Hrafn­hildur var meðal þeirra sem voru í minni­hluta en í þeim hópi var fjöldi fólks sem hafði til­heyrt Sam­tök­unum í ára­tugi. Málið varð til þess að margir sögðu sig úr félag­inu.

Hrafn­hildi hugn­að­ist hvorki aðild BDSM Ísland né sú ljóta orð­ræða sem sumir beindu gegn félag­inu.

„Við vorum ekki að gagn­rýna BDSM, þau hafa fullan rétt á því að berj­ast fyrir því sem þau vilja berj­ast fyrir og eiga allan minn stuðn­ing og það var það sem ég vildi að væri í for­grunni. En þetta ætti ekki heima með okkar mann­rétt­inda­bar­áttu. Í mínum huga er þetta blæti,“ útskýrir hún. Nú var allt í einu komin upp sú staða að sam­tök sem höfðu barist fyrir sýni­leika og rétt­indum homma og lesbía væru til­búin til að halda bindi­nám­skeið. „Þetta var frekju­lega gert. Þegar trans-fólk var tekið inn spann­aði sú umræða þriggja ára tíma­bil. Við báðum þann sem var mest á móti því að taka þau inn að skoða málið með og á móti og fórum á marga fyr­ir­lestra bæði á vegum Sam­tak­anna og Háskól­ans og við sýndum bíó­myndir og héldum sér­stök kvöld. Þannig að það var und­ir­búið. Og þegar þetta var borið upp á aðal­fundi var það sam­þykkt með öllum atkvæðum.“

Lestu við­talið við Hrafn­hildi í heild sinni í nýjasta Mannlífi.

Mynd / Unnur Magna
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir, alþjóð­legur förð­un­ar­fræð­ingur Yves Sant Laurent á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð