Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Mín fyrstu viðbrögð þegar konan mín veiktist höfðu verið að þetta skyldi enginn fá að vita“

Styrmir Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, segir allt tal um erjur innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins úr lausu lofti gripið, það sé eðli­legt að ræða mis­mun­andi skoð­anir innan flokks.

„Mín fyrstu viðbrögð þegar konan mín veiktist höfðu verið að þetta skyldi enginn fá að vita“
||||||

Lestu einnig: Vildi sjálfur losna við gömlu karl­ana

Hann skilji vel það unga fólk sem vilji losna við gömlu karl­ana úr póli­tík­inni, hann hafi hugsað þannig sjálfur um tví­tugt. Þeir gömlu viti hins vegar sínu viti.

Í for­síðu­við­tali við Mannlíf ræðir hann meðal ann­ars póli­tík­ina, veik­indi og and­lát eig­in­konu sinnar og lífið á eft­ir­launa­aldri.

Styrmir er ekki áfjáður í að segja frá sínum per­sónu­legu högum, en þegar ég spyr hvernig það hafi komið til og hvort það hafi ekki verið erfitt að gefa út bók­ina Ómunatíð, sem fjallar um geð­sjúk­dóm eig­in­konu hans, Sigrúnar Finn­boga­dóttur, sem lést árið 2016, liðkast á honum mál­beinið.

„Ég skrif­aði hana vegna þess að konan mín fór að tala um það við mig einn vet­ur­inn að henni væri mikið í mun að dætra­synir okkar fjórir vissu eitt­hvað um veik­indi ömmu sinnar. Þannig að þetta byrj­aði sem til­raun til að skrifa ein­hvern texta bara fyrir þá fjóra. Þegar þetta fór að taka á sig mynd fórum við að tala um hvort það væri kannski ástæða til að gefa þetta út. Mér fannst ekk­ert erfitt að opin­bera einka­líf mitt svona vegna þess að ég gerði mér grein fyrir því að það skipti mjög miklu máli að opna þessa umræðu. Ég hafði verið í miklum sam­skiptum við fólk í geð­geir­anum ára­tugum saman og eins hafði farið að koma til mín fólk upp á Mogga upp úr 1990, bæði úr geð­geir­anum og ann­ars staðar frá, til að ræða hvernig væri hægt að koma af stað umræðu um geð­veiki og aflétta skömminni sem henni fylgdi. Bókin kom út 2011 og þá fannst mér ekk­ert erfitt að tala um efni hennar en ég tal­aði í fyrsta sinn opin­ber­lega um þetta á 90 ára afmæli Klepp­spít­al­ans 1997. Þá skrif­aði ég ræð­una og konan mín og dætur lásu hana yfir og sam­þykktu en það kom mér mjög á óvart að þegar ég stóð í ræðu­stólnum á Klepp­spít­al­anum fann ég að ég kom ekki upp nokkru orði. Það end­aði samt með því að mér tókst að lesa text­ann, en ég hafði alls ekki átt von á því að það yrði svona erfitt. Mín fyrstu við­brögð þegar konan mín veikt­ist höfðu verið að þetta skyldi eng­inn fá að vita. Það voru við­brögð sem ég hafði lært sem strákur vegna þess að það var geð­veiki í minni eigin ætt, en svo komst ég auð­vitað fljótt að raun um það að þetta vissu allir.“

Lestu við­talið við Styrmi í heild sinni í nýjasta Mannlífi.

Mynd / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð