Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Reyndi allt annað en meðferð

Franz Gunn­ars­son hætti að drekka fyrir tæpum fimm árum og er því að upp­lifa sín fjórðu jól edrú. Hann segir eig­in­lega engin orð ná yfir þann mun sem sé á líð­an­inni eftir að hann tók til í lífi sínu, ekki síst á sam­bandi hans við sex ára son sinn, sem elskar að fara á jóla­böll með pabba sínum.

Reyndi allt annað en meðferð
Franz Gunn­ars­son

Í for­síðu­við­tali við Mannlíf ræðir hann edrú­mennsk­una og breytt og betra líf.

Spurður hvort hann hafi verið langt leiddur fík­ill áður en hann leit­aði sér hjálpar segir Franz engan vafa leika á því. Auk neysl­unnar og fíkn­ar­innar hafi hann þjáðst af miklu þung­lyndi og kvíða en það sé allt horfið í dag.

„Ég byrj­aði að drekka á síð­ustu árunum í grunn­skóla, eins og flestir, og fannst þetta strax besta ástand sem hægt væri að vera í. Ég drakk flestar helgar og smám saman fór ég líka að reykja kanna­bis, þannig að, já, ég missti stjórn­ina á neysl­unni algjör­lega. Þegar ég hætti, rétt fyrir fer­tugt, hafði ég verið í mik­illi neyslu í um þrjá­tíu ár og það segir sig sjálft að haus­inn á mér var langt frá því að vera í lagi. Ég þrjóskað­ist alltaf við að fara í með­ferð, hélt að það væri ekk­ert fyrir mig og þótt ég við­ur­kenndi fyrir sjálfum mér að ég hefði ekki stjórn á neysl­unni fannst mér ég samt öðru­vísi en aðrir fíklar og þyrfti ekki sömu úrræði og þeir. Ég fór til sál­fræð­ings og reyndi að taka á þessu með öllum öðrum ráðum en því eina rétta, sem er auð­vitað að hætta þessu algjör­lega.“

Franz er tón­list­ar­maður sem hefur spilað með ýmsum þekktum hljóm­sveitum og það orð hefur lengi farið af tón­list­ar­heim­inum að þar sé mikil neysla í gangi, var ekk­ert erfitt að koma inn í þann heim aftur eftir að hann varð edrú?

„Tón­list­ar­heim­ur­inn hefur breyst,“ full­yrðir hann. „Mjög margir tón­list­ar­menn hafa farið í með­ferð og eru edrú og ég hef fengið mik­inn stuðn­ing frá þeim. Ég hélt þegar ég var í með­ferð­inni að ég myndi senni­lega þurfa að hætta að spila opin­ber­lega og þótt það væri erfitt að kyngja því ætl­aði ég samt að sætta mig við það. Sem betur fer kom ekki til þess, ég hef sjaldan spilað meira en eftir að ég varð edrú. Það er í sjálfu sér ágætis for­vörn að vera að spila fyrir drukkið fólk, maður sér að það er engan veg­inn eft­ir­sókn­ar­vert ástand en ég staldra ekki lengi við á stöð­unum eftir að við hættum að spila. Tek bara saman dótið mitt og fer heim, óskap­lega feg­inn að vera ekki inni í þessum víta­hring lengur.“

Lesa Mannlíf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ