Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Áhugaverð viðtöl úr Mannlífi árið 2019

Nú þegar stytt­ist í ára­mótin er gaman að líta til baka og rifja upp nokkur við­töl úr Mannlífi sem vöktu athygli á árinu. Þetta er brot af því sem vakti eft­ir­rekt á þessu ári.

Áhugaverð viðtöl úr Mannlífi árið 2019
|Ronja Sif Magn­ús­dóttir ásamt for­eldrum sínum. Mynd / Hákon Davíð Björns­son|Heiða Þórð­ar­dóttir. Mynd / Hallur Karlsson|Haukur Örn Birg­is­son. Mynd / Hallur Karlsson|Guðrún Ögmunds­dóttir. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Ronja Sif Magn­ús­dóttir, átta ára lífs­glöð trans stelpa sem var full­viss um sitt rétta kyn um svipað leyti og hún fór að tala. For­eldrar Ronju sögðu sína sögu í Mannlífi í jan­úar. Ronja fékk nýtt nafn þegar hún var fjög­urra ára og hefur blómstrað síðan sem er ekki síst að þakka víð­sýni for­eldr­anna og frá­bærum við­tökum sam­fé­lags­ins í kringum þau.

„Þegar hún var rúm­lega fjög­urra ára fórum við á fund með for­svars­fólki leik­skól­ans sem vildi ræða hegðun hennar við okkur. Starfs­fólk deild­ar­innar vissi ekki hvernig það átti að svara henni því hún sagð­ist vilja vera stelpa,“ sagði Stefanía, móðir Ronju.

Ronja Sif Magn­ús­dóttir ásamt for­eldrum sínum. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Sjá hér: „Það kom aldrei annað til greina en að gefa henni þetta frelsi“

Haukur Örn Birg­is­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður og for­seti Golf­sam­bands Íslands, og Guðríður Magndís Guð­munds­dóttir, sam­býl­is­kona hans, eign­uð­ust and­vana tví­bura í lok októ­ber eftir rúm­lega tutt­ugu og tveggja vikna með­göngu. Ekkert hafði bent til þess að eitt­hvað væri að og áfallið því enn meira en ella. Haukur lýsti upp­lifun­inni af því að missa dreng­ina í ein­lægu við­tali við Mannlíf í nóv­em­ber.

„Ég veit að það munu koma erf­iðir dagar. Jólin eru fram undan, sem eru alltaf til­finn­inga­þrung­inn tími, svo kemur settur fæð­ing­ar­dagur í lok jan­úar sem verður auð­vitað líka erfitt og svo áfram og áfram. Ég held ekki að það sé hægt að gera neinar áætl­anir um það hvernig maður kemst í gegnum svona sorg­ar­ferli.“

Haukur Örn Birg­is­son. Mynd / Hallur Karlsson

Sjá hér: Erfiðir dagar munu koma

Kvik­mynda­gerð­ar­konan Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir safn­aði heim­ildum í 27 ár fyrir þætt­ina og heim­ild­ar­mynd­ina Svona fólk. Hrafn­hildur bjó í Kali­forníu fram yfir alda­mót en kom reglu­lega heim og var þá dug­leg að mynda homma- og les­b­íu­sam­fé­lagið.

„Fyrsta við­talið sem ég tók, 1992, var við góðan vin minn, Björn Braga Björns­son, Bjössa, og hann var að lýsa fyrir mér aðstæðum sínum. Þá var um líf og dauða að tefla því að hann var dáinn tveimur árum seinna. Þannig að okkur lá á að skrá og varð­veita harða reynslu,“ útskýrði Hrafn­hildur í for­síðu­við­tali við Mannlíf.

Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir. Mynd / Unnur Magna

Sjá hérna: „Það er ekki gott að búa í ang­ist“

Guðrún Ögmunds­dóttir sagði sína sögu í við­tali við Mannlíf í sept­em­ber. Þar ræddi hún m.a. krabba­meinið sem hún glímir við. Guðrún greind­ist með krabba­mein um ára­mótin síð­ustu og var langt komin með lyfja­með­ferð við því í sept­em­ber.

„Meinið var búið að dreifa sér í beinin og á fleiri staði.“

„Já, ég er með krabba­mein, á ýmsum stöðum,“ sagði hún. „Þetta upp­götv­að­ist svo seint. Ég hafði verið meira og minna hálf­lasin um tíma en samt auð­vitað alltaf í vinn­unni. Ég kláraði verkið sem ég var að vinna að um ára­mótin og eftir það versn­aði mér hratt. Fyrst hélt ég að ég væri rif­beins­brotin, en það var auð­vitað ekki þannig. Meinið var búið að dreifa sér í beinin og á fleiri staði. Þetta er bara pakki sem maður fer í gegnum og ég er á æðru­leys­is­skút­unni hér. Mér finnst mér ekki nokkur vor­kunn.“

Guðrún Ögmunds­dóttir. Mynd / Hákon Davíð

Sjá hérna: Hélt að krabb­inn væri rif­beins­brot

Salka Sól Eyfeld prýddi for­síðu Mannlífs í ágúst. Hún og Arnar Freyr Frosta­son voru þá nýgift og eiga von á sínu fyrsta barni. Það hefur verið langt og strangt ferli að verða barns­haf­andi og Salka Sól hefur tjáð sig um sorg­ina sem fylgir því að geta ekki orðið ólétt í ein­lægum færslum á sam­fé­lags­miðlum.

„Kvíðinn og and­legi sárs­auk­inn varð nán­ast óbæri­legur.“

„Það var orðið mjög erfitt að upp­lifa þessa sorg á fjög­urra vikna fresti og ég fékk enn fleiri lyf, alls kyns meðöl sem áttu að vera krafta­verka­for­múlur en ekk­ert gerð­ist. Þetta var farið að taka svo mikið á og ferlið þegar maður var að upp­götva ófrjó­sem­ina var hræði­lega langt. Þá fer maður að lesa sér til og því fylgir rosa­legur kvíði því þá fær maður sög­urnar af öllum pör­unum sem hættu saman eftir að hafa farið í fimmtán aðgerðir og tækni­frjóvgun og allt það. Maður varð bara alveg skít­hræddur við þetta allt saman og kvíð­inn og and­legi sárs­auk­inn varð nán­ast óbæri­legur, fyrir nú utan allt þetta horm­óna­fokk sem ég var að sprauta í mig og taka inn,“ sagði Salka Sól í ein­lægu við­tal­inu.

Mynd / Unnur Magna

Sjá hérna: „Hélt ég myndi aldrei segja: Ég er ólétt“

Heiða Þórð­ar­dóttir sagði frá sorg­inni eftir að bróðir hennar, Gísli Þór Þór­ar­ins­son, var skot­inn af bróður þeirra, Gunnari Jóhanni Gunn­ars­syni, í við­tali við Mannlíf. Hún sagði sorg­ina hafa verið þá þyngstu sem hún hefur upp­lifað. „Þetta hefur nátt­úr­lega verið alveg svaka­lega erf­iður tími,“ sagði Heiða í ágúst. „Þótt ég syrgi auð­vitað Gísla bróður minn óskap­lega mikið þá er Gunnar líka bróðir minn og ég get ekki hatað hann fyrir þetta slys.“

Heiða Þórð­ar­dóttir. Mynd / Hallur Karlsson

Sjá hérna: „Ég get ekki hatað bróður minn“

Kristinn Þór Sig­ur­jóns­son var á for­síðu Mannlífs í sumar og ræddi. Eig­in­kona hans Ing­veldur Geirs­dóttir, lést þann 26. apríl síð­ast­lið­inn eftir hetju­lega bar­áttu við krabba­mein, ein­ungis 41 árs gömul. Kristinn ræddi áfallið í við­tali við Mannlíf og sagði ára­langa for­ræð­is­deilu hafa hjálpað honum að kom­ast í gegnum erf­ið­ustu tím­ana og und­ir­búa hann fyrir enn eina áskor­un­ina, að vera ekk­ill og fjög­urra barna faðir.

„Ég hef val. Ann­að­hvort að vera ósáttur við næstu ár eða vera sáttur við næstu ár. Ef ég ætla að vera sáttur næstu ár verð ég að sætta mig við það sem hefur gerst.“

Kristinn Þór Sig­ur­jóns­son. Mynd/Hallur Karlsson

Sjá hérna: „Hún lifir í minn­ingum okkar“

Eiríkur Brynj­ólfs­son kom með misl­inga­smit til Íslands í upp­hafi árs. Hann sagði sögu sína í við­tali við Mannlíf og sagð­ist ekki ekki geta áfellst sjálfan sig enda hafi hann talið sig bólu­settan.

„En svo veit ég satt best að segja ekki hvort ég var bólu­settur þegar ég var tólf ára eða ekki.“

„Ég bjóst satt best að segja við því að vera bólu­settur fyrir þessu eins og flestir Íslend­ingar. En þegar ég kann­aði þetta kom í ljós að ég var ekki bólu­settur. Ástæðan er sú að þegar ég var lít­ill var pabbi í skóla í Noregi og ég flakk­aði mikið á milli landa, var ýmist hjá honum í Noregi eða mömmu á Íslandi. Við það var eins og þetta hefði mis­farist. En svo veit ég satt best að segja ekki hvort ég var bólu­settur þegar ég var tólf ára eða ekki. Eitthvað virð­ist þetta í hið minnsta hafa verið aðeins laust í reipn­unum á þessum tíma því sumir jafn­aldrar mínir hafa verið bólu­settir við tólf ára ald­ur­inn en ekki allir.“

Eiríkur Brynj­ólfs­son. Mynd / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Sjá hérna: „Ég vissi ekki betur en ég væri bólu­settur“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð