Björn Ingi Hrafnsson, fjölmiðlamaður og fyrrverandi borgarfulltrúi fagnar því í dag að þrjú ár eru liðin síðan hann bragðaði síðast áfengi.
„Þrjú ár frá því ég bragðaði síðast áfengi. Þannig mjakast þetta, en risaskrefin felast í betri heilsu og heilbrigðara gildismati,“ segir Björn Ingi á Facebook-síðu sinni og heldur áfram:
„Mæli með þessu fyrir alla sem vilja vera meira til staðar fyrir það sem mestu máli skiptir og ná stjórn á eigin lífi. Það er aldrei of seint að horfast í augu við sjálfan sig og besta ákvörðun sem hægt er að taka. Með Guðs hjálp og góðra manna.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir