Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Margeir segir ekki um slys að ræða heldur líkamsárás ökumanns: „Hefði getað endað mun verr“

Margeir Steinar Ingólfsson lenti í því síðastliðið laugardags­kvöld að ekið var aftan á hann, þar sem hann hjólaði niður Lauga­veginn. Við höggið féll Margeir til jarðar og hjól hans kastaðist eftir götunni. Við þetta fór ökumaðurinn þó ekki út úr bílnum, heldur ók hann yfir hjólið, keyrði rakleitt eftir göngu­götunni og flúði af vettvangi.

Atvikinu hafði verið lýst sem slysi á frétta­miðlum en Margeir, sem er gjarnan þekktur sem DJ Margeir, segir á Twitter að ekki hafi verið um slys að ræða heldur hafi þetta verið „ekkert nema líkams­árás, sem hefði getað endað mun verr.“

Margeir segist hafa kært ökumanninn til lögreglu vegna verknaðarins.

Hjól Margeirs eftir árás­ina. Mynd/skjá­skot RÚV

Í samtali við Vísi segist Margeir hafa verið að hjóla niður Lauga­veginn, á milli tveggja bíla, þegar bíll fyrir aftan hann gaf í. Hann segist ekki hafa hugsað frekar út í það en telur þetta hafa verið vottur um pirring.

„Og áður en ég veit af er hann búinn að negla aftan á mig. Ég næ einhvern veginn að stökkva af hjólinu sem kastast áfram eftir götunni,“ segir Margeir í viðtalinu.

Margeir segist hafa ætlað sér að ræða við bílstjórann eftir atvikið til þess að fá að vita hvað honum hafi gengið til. Bílstjórinn hafi þá komið sér af vettvangi. „Þegar ég geng upp að bílnum til að ræða við hann þá brunar hann af stað, keyrir yfir hjólið og ætlar að stinga af.“ Margeir segir bílstjórann þó ekki hafa getað beygt niður Frakka­stíginn sökum umferðar og hafi því brugðið á það ráð að keyra niður göngu­götuna til þess að koma sér af vettvangi.

Margeir náði bílnúmerinu og hafði strax samband við lögreglu, sem hann segir hafa tekið málið alvarlega. Síðar hafi lögregla haft samband með þær upplýsingar að málið væri í rannsókn og að hann þyrfti ekki að kæra málið sjálfur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Beint úr Breiðholtinu
Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá