Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Sigurgeir Pétursson togaraskipstjóri með 95 manna áhöfn: Á reki í ofsaveðri á Indlandshafi í viku

Sigurgeir og Linda P, systir hans, á góðri stundu. Linda var kjörin Ungfrú heimur á sínum tíma.
Sig­ur­geir og Linda P, systir hans, á góðri stundu. Linda var kjörin Ungfrú heimur á sínum tíma.

„Það fórst maður hjá okkur.“

Það er hræðilegt fyrir ungan skip­stjóra.

„Já, það var mjög erfitt. Hann var minn besti vinur líka,“ segir Sigurgeir Pétursson í viðtali við Reyni Traustason en hann hefur starfað sem skip­stjóri í áratugi og mest fyrir erlend fyrirtæki en þegar vinur hans drukknaði voru þeir skip­verjar á Lýtingi frá Vopna­firði.

„Við vorum á netum. Ég var 23 eða 24 ára þegar það skeði.“

Hvað bar út af?

Við náðum honum um borð sem betur fer en það var bara of seint.

„Við vorum að leggja net í blíðskapar­veðri eins og það gerist best á vorin og það voru bara mannleg mistök. Hann bara lyfti fætinum upp og steig inn í færið rétt við stjórann eða rétt við drekann og henti honum svo í sjóinn og fór með honum. Það var ekkert hægt að gera. Við náðum honum um borð sem betur fer, en það var bara of seint.“

Þetta hlýtur að vera eitthvað sem býr alltaf með mönnum.

„Jú.“

Sigurgeir hugsar oft til þessa vinar síns.

„Mjög oft. Þetta var mjög erfitt. Hann átti ung börn.“

Þetta segir afla­skip­stjórinn sem hefur undan­farna áratugi siglt suður í höfum. Megnið af ferlinum hefur verið suður í Suður­hafinu og Íshafinu (Suður-Íshafinu) bæði sunnan við Ástralíu og í Indlands­hafinu eins og hann orðar það. Sunnan til í Indlands­hafinu. Og svo sunnan við Nýja-Sjáland og sunnan við Argentínu. „Og síðustu 10-15 árin hef ég verið að vinna í Argentínu og frá Falklandseyjunum og alveg suður úr öllu þar.“

Hvað þarf skip­stjóri á þessu hafsvæði helst að varast?

„Veðrin. Það eru mjög slæm veður á þessum svæðum. Ekki síðri en hér, en kannski öðruvísi. Það er minna um brotsjói og minna sem þarf að varast svoleiðis kannski, en þetta er meira úti á opnu hafi, langt í burtu frá landi og stórir sjóar, miklir straumar og það breytast mjög fljótt veður þarna. Þannig að maður þarf alltaf að hafa varann á gagnvart veðri.“

Fundu fyrstir tannfiskinn

Sigurgeir Pétursson, sem er frá Húsavík, er kominn af sjómönnum.

„Þetta voru allt saman útgerðar­menn og skip­stjórar. Geiri Péturs var í eigu föðurafa míns; skipið og bátarnir allir sem voru nefndir þessu nafni. Það er nefnt eftir langafa mínum eins og ég sjálfur.“

Hann byrjaði að róa með móðurafa sínum á trillu frá Húsavík.

„Það má segja að hann hafi verið minn aðal­kennari. Hann var að leyfa mér að fara einum á trillunni þegar ég var átta til níu ára gamall en hann fylgdist alltaf með frá hafnar­garðinum. Ég fór aðeins út fyrir og þurfti stundum að leggja smálínu­búta og hitt og þetta.“

Lá alltaf fyrir að hann yrði sjómaður?

„Ég hef í rauninni aldrei hugsað um neitt annað. Þetta bara kom af sjálfu sér.“

Hann segist hafa verið skip­stjóri á tveimur Lýtingum sennilega í fjögur ár áður en hann flutti út.

„Ég hitti nýsjálenska konu og ætlaði að taka mér frí í ár og skoða heiminn og vera á Nýja-Sjálandi í 12 mánuði. Það var planið. Og það var í janúar 1990.“

Hann flutti aldrei heim.

„Nýja-Sjáland er bara svo óskaplega gott land að búa í og þar er gott fólk. Mér hefur alltaf liðið vel þar, alveg frá upphafi.“

Er Nýja-Sjáland ekki svipað og Ísland?

„Að mörgu leyti, en samt svolítið öðruvísi. Svipað að sumu leyti. Náttúran, fjöllin og hafið. Það er mikið um sjósókn þarna. Þetta er líkt að mörgu leyti. Afskaplega langt í burtu frá öðrum löndum nema Ástralíu.“

Sig­ur­geir fékk svo starf í Ástralíu og þar sam­þykktu þeir rétt­indin.

Honum bauðst atvinnu­tækifæri.

„Þetta byrjaði svolítið skringi­lega. Ég sótti um starf þegar ég kom fyrst til Nýja-Sjálands og fór sem háseti; tók fyrsta starf sem ég gat fengið og fór á togara sem háseti. Svo kom fljótt upp að þeir vildu að ég yrði stýri­maður en þá kom það upp að Nýja-Sjáland viðurkenndi ekki íslensku réttindin.“ Sigurgeir fékk svo starf í Ástralíu og þar samþykktu þeir réttindin. „Það eiginlega leiddi mig í þessi stóru skip, þennan stóra frysti­togara sem var fyrsti stóri frysti­togarinn í Ástralíu og mér bauðst skipstjóra­staða þar.“

Skip Sig­ur­geirs Pét­urs­sonar, TAI-AN

Þeir voru fyrstir til að finna tann­fiskinn í Suður­hafinu. „Það var bara ævintýri peninga­lega séð fyrir bæði áhöfn og útgerð.“

Hvað með að Sigurgeir hafi slegið heimsmet í afla?

„Það var talað um það. Ég veit ekkert hvort það er rétt eða ekki.“

Sigurgeir er bróðir Lindu Péturs­dóttur sem var kjörin Ungfrú heimur á sínum tíma. Heims­meistari í fegurð og hann í afla­brögðum.

„Það má segja það.“

Sig­ur­geir og Linda P, systir hans, á góðri stundu. Linda var kjörin Ungfrú heimur á sínum tíma.
Ég hafði alltaf hugsað mér að reyna að kom­ast ungur í land.

Sigurgeir segist hafa verið í um átta ár á fyrr­nefndum togara. „Svo keyptu þeir annað skip sem ég fór á en hjá þessari útgerð var ég í sennilega níu ár. Þá hætti ég. Ég hafði alltaf hugsað mér að reyna að komast ungur í land. Mig langaði að fara í land og reyna fyrir mér í landi. Mér bauðst að taka við sem framkvæmda­stjóri Hamp­iðjunnar á Nýja-Sjálandi og ég fór í það og hafði gaman af en sjórinn togaði. Ég var í því í annaðhvort tvö eða þrjú ár, en þá fór ég aftur út á sjó.“

Um tveggja mánaða túrar

Hann fékk starf í Argentínu. Árið var 2007.

„Og ég er búinn að vera þar síðan; á sama skipinu.“

95 manna áhöfn. Og hann er karlinn í brúnni.

„Það fylgja þessu nátt­úrlega áskoranir að vera með svona marga menn í áhöfn. Uppi­staðan í áhöfninni eru Argentínu­menn og svo Kínverjar. Við höfum ekki átt í neinum vandræðum með þá. Þeir eru mjög hlýðnir og fara eftir reglum sem eru settar – bæði Argentínu­mennirnir og Kínverjarnir. Það er aldrei drykkja á þeim þegar við erum í landi og aldrei úti á sjó, nátt­úrlega. Það er bannað að vera með áfengi um borð.“

Það eru engar konur í áhöfninni.

„Við erum ekki með konur um borð og það er helst út af því að Kínverjarnir líta þannig á það að það sé ekki góð lukka að vera með kvenmenn um borð. Og Argentínu­menn eru í rauninni svolitlar karl­rembur.“

Íslend­ingurinn segir að það hafi tekið tíma eftir að hann fór að vinna um borð í þessu skipi að fá áhöfnina til að virða sig. „Það voru engir útlendingar að koma og segja þeim fyrir verkum. Ég er búinn að eyða um 25 árum í að vinna með alls lags þjóðernum og hef alltaf byrjað á að reyna að koma mér vel við innfæddu mennina. Maður gerir ekkert einn; sérstak­lega á svona stórum skipum. Þannig að maður á að byrja á því að sanna sig og fá þá svo til að vinna fyrir sig og vera ánægða með að vinna fyrir þig. 70-80% af áhöfninni sem er um borð núna voru um borð þegar ég byrjaði. Þannig að það eru mjög litlar manna­breytingar. Mikil reynsla um borð og hefur gengið vel. Þannig að þeir eru ánægðir og hafa það gott.“

þegar ég var að fiska í Ástralíu þá tók það okkur sjö til níu daga að sigla á miðin.

Þetta eru um tveggja mánaða túrar og álag á hvern og einn.

„Já. Þetta er það. Þar sem við vorum að fiska í Suður­hafinu þegar ég var að fiska í Ástralíu þá tók það okkur sjö til níu daga að sigla á miðin. Það eru alltaf suðvestanáttir þannig að maður er alltaf tveimur dögum fljótari heim. En í Argentínu vorum við yfirleitt 18-24 tíma á miðin, en þetta er mjög afskekkt allt saman og það sem þarf alltaf að hafa í huga eins og þarna við Argentínu er að við erum að fiska við suðaustur­strönd og suður­hluta Argentínu Atlantshafsmegin og alveg niður að Cape Horn og þarna eru engar þyrlur til taks. Það eru engar björgunar­sveitir í raun og veru, þannig að maður þarf alltaf að hafa það í huga.“

On your own

Þeir lentu í slysi. Það varð sprenging um borð.

Ég setti á hann bruna­smyrsli um nán­ast allan lík­amann.

„Það var að vísu í Ástralíu, en við lentum í því að það var sprenging í töflu um borð í skipinu, rafmagns­töflu. Aðal­töflunni í vélar­rúminu. Og nátt­úrlega slokknaði á öllum ljósum og við fengum algert „black out“. Það vildi svo óheppilega til að það sprungu upp allar hurðirnar á töflunni og vildi svo óheppilega til að þriðji vélstjórinn okkar stóð bara tvo metra í burtu og lenti í eldtungunni miðri. Það var annar vélstjóri sem stóð hinum megin í vélar­rúminu og hann sagði að maðurinn hefði lyfst upp og henst fjóra til fimm metra í loftinu aftur eftir vélar­rúminu. Hann slasaðist því miður mjög mikið. Skaðbrenndist. Og það var mjög erfitt. Við vorum í 38 tíma að sigla í land og koma honum undir læknis­hendur. Það voru mjög erfiðir tímar. Við vissum ekkert hvort hann myndi lifa það af, því hann var gjör­samlega brenndur frá toppi til táar. Við byrjuðum á að kæla hann og ég var inni hjá honum allan tímann. Ég setti á hann bruna­smyrsli um nánast allan líkamann og svo vafði ég honum inn í plast til að koma í veg fyrir að það kæmist einhver drulla inn í sárin.

Læknirinn sem tók á móti honum þegar við komum í land var svolítið hissa. Hann hringdi svo í mig nokkrum vikum seinna og sagði að þetta hefði svín­virkað því að það voru mjög lítil ör á líkamanum og ekkert í andlitinu. Þannig að hann lifði þetta af, en ég held að hann hafi verið í sex mánuði á sjúkra­húsi á meðan hann var að jafna sig. Hann náði sem betur fer fullum bata. En hann fór aldrei aftur til sjós.

Svona hlutir geta því miður skeð. Þetta er hættulegt starf sem við erum í.“

Þetta er ekki eins og við Íslands­strendur; þú smellir fingri og þá kemur þyrla.

Maður sá strax að það var ekki nokkur von að finna menn­ina.

„Nei, þetta er mjög mikið öðruvísi. Eins og í Argentínu; kerfið er allt mjög erfitt líka. Það er erfitt að fá allt gert. Í síðasta túr hjá mér vorum við við akkeri að bíða eftir lóðsi og þá voru tveir menn á „boggie“-bát utan til í firðinum og það hafði ekkert heyrst í þeim í heilan sólar­hring. Við vorum beðnir um að svipast um eftir þeim en það var ekkert skipulag á leitinni og maður sá strax að það var ekki nokkur von að finna mennina. Þeir fundust ekkert.

Það er mjög lítið hugað að öryggis­málum og ekkert skipulag.

Ef eitthvað gerist þá ertu „on your own“.“

Vopnaðir verðir

Einu sinni urðu þeir vélarvana.

„Ég man að ég sendi út „Pan Pan call“ og þá vorum við 1.560 mílur frá næsta dráttar­báti sem gat komið og náð í okkur. Hann var frá Cape Town í Suður-Afríku og svarið sem við fengum var að hann gæti verið hjá okkur eftir átta sólar­hringa og sex klukku­tíma. Ef allt gengi að óskum. Það var mjög slæmt veður og veðurspá úti í miðju hafi; syðst í Indlands­hafinu. Suður­hafinu. Þannig að við vorum þar á reki í rúma viku. Það var stórsjór og megnið af þessum tíma var 8-12 metra ölduhæð þannig að það var óhemju­veltingur. Það valt á byrðingum endalaust allan tímann.“

85 metra langur togari.

Mönnum var ekki orðið sama, sérstak­lega óvanari hluta áhafnarinnar. „Þeim leið bara ekkert orðið vel, þannig að ég var með daglega fundi niðri í messa og við ræddum hlutina. Reyndi aðeins að róa liðið.“

22 dagar liðu frá því það drapst á vél­inni og þar til þeir komu til Cape Town.

Svo kom hjálpin.

„Svo kom hjálpin og eftir það var allt í lagi. Það slitnaði að vísu tvívegis þegar verið var að draga okkur í land.“

22 dagar liðu frá því það drapst á vélinni og þar til þeir komu til Cape Town.

Menn hafa verið orðnir þreyttir.

„Ég viðurkenni það; ég held ég hafi aldrei sofið meira en hálftíma í einu allan þennan tíma.“

Þetta var árið 1996 eða 1997.

„Við vorum ekki með internet og það var erfitt að ná talstöðvar­sambandi; við vorum svo langt í burtu. Við vorum að senda telex á milli; svolítið öðruvísi en menn eru gera í dag. Samskiptin.“

Hvað kom fyrir vélina? „Stýri­maðurinn var að kasta í vondu veðri og hann fór ekki nógu hratt; var að kasta upp í vindinn og var að slaka út trollinu og það kom brotsjór á okkur og ýtti okkur yfir trollið sem endaði í skrúfunni. Það var ekkert hægt að gera; við vorum með hálft trollið í skrúfunni. Það var ekkert við því að gera.“

Besta lausnin er að veiða bara and­skoti mikið og halda þeim við vinnu.

Hvað með móralinn um borð í svona löngum túrum? Er skip­stjórinn ekki að fást við alls konar mál? Eiga menn ekki stundum erfitt?

„Jú, en besta lausnin er að veiða bara andskoti mikið og halda þeim við vinnu. Það er besta pillan við þessu. Ef menn eru þreyttir og eru að vinna alla vaktina sína þá eru þeir ekkert mikið að hugsa um slíkt. Þá fara þeir að borða og svo að sofa. Ef það koma dagar eða vikur þar sem er lítill afli þá verður oft meira um kvartanir og vandræði.“

Þá kemur þung­lyndið.

„Þá kemur þung­lyndið.“

Sigurgeir nefnir Covid. Síðustu tvö og hálft ár.

„Það er búið að vera mjög erfitt. Við vorum að lenda í því að vera tvo mánuði úti á sjó og svo var farið upp að bryggju að landa og það mátti enginn fara í land. Það var ekki hægt að skipta um áhöfn og við fórum bara út aftur. Meira að segja var það þannig þarna suður frá, að það voru vopnaðir verðir á bryggjunni. Það var mjög erfitt og ég var um borð í fimm og hálfan mánuð án þess að komast upp á bryggju. Það var mjög erfitt og þetta eru nátt­úrlega gömul skip sem við erum á þannig að það er lítið um að vera um borð.“

Það er ekki heilsu­rækt um borð.

„Nei, ekkert sem einhver myndi sætta sig við á íslenskum skipum. Þetta var bara mjög erfitt og það versta við þetta var óvissan. Við fórum út – og fengjum við þá að fara heim eða yrði það annar túr?“

Vopnaðir verðir voru á hverjum gangi.

Áhöfnin smitaðist af Covid. Tvær áhafnir. Sú fyrri var sett í einangrun og viku síðar kom nýja áhöfnin um borð og nokkrum dögum síðar fóru menn að veikjast. Það greindust allir jákvæðir nema þrír. Farið var í land og áhöfnin sett í einangrun á hóteli. Vopnaðir verðir voru á hverjum gangi og segir Sigurgeir að ef dyr voru opnaðar þá hafi þeir komið hlaupandi.

Sumar það sem eftir er

Sigurgeir horfir heim. Hann sem er búinn að búa erlendis í áratugi horfir heim hvað íslenska sumarið varðar. Búinn að festa kaup ásamt öðrum á Sómabáti og ætlar að vera á strand­veiðum í sumar. Sigla frá Flatey á Skjálf­anda þar sem stór­fjölskyldan á hús. Þar eru ræturnar.

Hann er 56 ára og segir að síðustu þrjú ár hafi tekið mikið á. Ekki bara á hann heldur líka fjöl­skylduna. Konuna. Vitandi aldrei hvenær hann kemur aftur heim.

Hjónin Sarah og Sig­ur­geir vilja njóta íslensku sum­r­anna í fram­tíð­inni.

Konan hans er Sarah. Frá Wales. „Hún er búin að búa á Nýja-Sjálandi í rúm 30 ár eins og ég og þetta hefur líka reynt mjög á börnin þótt þau séu uppkomin. Það er erfitt fyrir þau að vita aldrei hvenær maður verður heima. Og aldrei hægt að skipuleggja nein ferðalög eða gera nokkurn skapaðan hlut.“

Við eigum bæði for­eldra sem eru ekk­ert að yngj­ast.

Þau ætla jú að vera meira hérna á sumrin. Hérna á Íslandi. „Þannig að þá verðum við í sumri það sem eftir er. Við eigum bæði foreldra sem eru ekkert að yngjast, þannig að maður reynir að njóta meiri tíma með þeim þegar maður er búinn að búa hinum megin á hnettinum í fjóra áratugi.“

Það verður þá sumar það sem eftir er.

„Það er meiningin.“

Sjá má viðtalið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá