Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Sterk vinátta dauðvona stúlku og íslensks hests: „Hann fylgir henni hvert sem hún fer“

Joan og hesturinn Hrafn. Mynd/skjáskot tímarit.is
Joan og hest­ur­inn Hrafn. Mynd/skjá­skot tíma­rit.is

Joan var sautján ára gömul stúlka búsett í Danmörku, sem hafði ekki verið spáð langlífi. Það sem reyndist henni dýrmætast af öllu voru tengsl sem hún myndaði við hesta, sem virtust vart sjá sólina fyrir stúlkunni. Það var eins og hestarnir gæfu henni einhverja nýja lífsorku, en einstök sambönd manna og dýra hafa löngum verið þekkt, auk þeirra krafta­verka sem þau virðast stundum geta haft í för með sér.

Fjallað var um málið í Vísi, laugar­daginn 5. ágúst árið 1972. Joan bjó á búgarði á Norður-Sjálandi ásamt fjöl­skyldu sinni; foreldrum sínum Mogens og Ebbu Petersen, og bróður sínum Bjerre, árinu eldri en Joan og þar með átján ára á þessum tíma. Fjöl­skyldan fluttist á búgarðinn, sem var nokkuð afskekktur, til þess að geta verið í friði með hesta sína í nálægð við náttúruna, en fjöl­skyldan var með fá dýr að hestunum undan­skildum. Uppáhalds­hestur Joan reyndist vera íslenskur hestur að nafni Hrafn, sem ansaði engum nema henni. Hrafn kom upphaf­lega frá Mosfells­sveit.

„Joan hafði áður átt hest, sem hét Lykke, en þegar sá hestur veiktist og séð varð að hann kæmi ekki til með að verða til mikilla nota framar, tók Joan sig til og safnaði fyrir öðrum,“ segir í frétt Vísis.

Var ekki hugað líf

Þegar fréttin er skrifuð hafði fjöl­skyldan búið á búgarðinum Myrehulm í 10 ár, og komið sér upp góðu hesthúsi þar. Sjö árum fyrr, þegar fjöl­skyldan hafði verið búsett þar í þrjú ár, var dóttirin Joan talin dauðvona. Hún var með hættu­legan sjúkdóm og læknar töldu lífslíkur hennar litlar. Sjúk­dómnum er í frétt Vísis lýst þannig að útgangur kirtla og svita­holur stífluðust, vegna þess að vökvinn var of þykkur. Þetta orsakaði síðan keðjuverkun ýmissa auka­kvilla og gerði Joan einnig móttækilegri fyrir hinum ýmsu sjúkdómum. Því má ætla að ónæmis­kerfið hafi verið veikt.

Þegar þau Mogens og Ebba töldu dóttur sína, þá í kringum tíu ára gamla, eiga skammt eftir ólifað brugðu þau á það ráð að gefa henni hestinn Lykke, til að gleðja hana. Foreldrarnir vissu sem var, að Joan væri mikið fyrir hesta.

„Og það furðulega gerðist, það var sem hesturinn veitti henni nýjan þrótt, og Joan virtist hressast að mun. Stuttu seinna var Joan gefinn annar hestur, sem heitir Tommi, en hann er gamall sirkus­hestur, sem ekki var lengur talinn fær um að gera listir i sirkusnum. Og stuttu síðar bættist svo Hrafn, uppáhalds­hesturinn hennar í hópinn,“ segir í frétt Vísis.

Joan ásamt hest­inum Tomma, sem hafði sann­ar­lega ekki gleymt því sem hann hafði lært í sirku­snum.

Óhlýðni Hrafn

Líkt og áður sagði var Hrafn íslenskur hestur frá Mosfells­sveit. Joan hafði hitt mann að nafni Fritz Haug í Hilleröd í Danmörku, en Fritz þessi hafði flutt íslenska hesta inn til Danmerkur og lumaði einmitt á hesti sem hann taldi að gæti átt vel við Joan.

„Hrafn var ekki hlýðinn hestur, og erfitt að eiga við hann, að minnsta kosti var það ekki á hvers manns færi að reyna að tjónka við hann. En Fritz Haug fullyrti að Joan og Hrafn ættu eftir að koma til með að verða góðir vinir, og hún fékk að fara með hann heim til reynslu. Og Fritz Haug hafði reynzt sannspár, þeim kom alveg ágætlega saman, hestinum og hinni 17 ára gömlu stúlku.“

Í greininni kemur fram að enginn fékk að fara á bak Hrafni nema Joan. Hún virtist hafa eitthvað sérstakt lag á honum og einstök tenging til staðar á milli þeirra tveggja.

„Það getur meira að segja verið hættulegt fyrir aðra að koma nálægt honum, en við Joan er hann eins og lamb. Hann fylgir henni hvert sem hún fer, tryggur og þolinmóður, næstum eins og hundur sem fylgir manni.

Þegar Joan á síðasta ári vann tvö verðlaun á dansk-íslenzku hestamóti, þurfti hún þó að hafa sig alla við að gæta hestsins, því að svo villtur virðist hann í raun og veru.

Og þrátt fyrir það að enn er ekki vitað hve Joan getur lifað lengi vegna sjúkdómsins, hafa hestarnir þrír veitt henni allt það bezta sem henni fannst hún geta fengið.“

Eftir því sem blaða­maður Mannlífs kemst næst lést Joan þann 29. október árið 1986, þá 31 árs.

Mynd/skjá­skot tíma­rit.is

Heimildir:
Vísir – Íslenzkur hestur er ungri dauðvona stúlku í Danmörku allt

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá