Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Hundasveitin leitaði að Balto í þrjá og hálfan sólarhring: „Þetta var þvílíkur eltingaleikur“

Hundasveitin
Hunda­sveitin Mynd: Aðsend

Husky-hundurinn Balto slapp af nýja heimili sínu í Hafnar­firði á föstu­daginn eftir að hann hoppaði yfir pallvegg heima hjá sér. Eftir þriggja daga þrotlausa leit sjálfboða­liða fannst hann loks.

Sjálfboða­liðarnir í Hunda­sveitinni leituðu ásamt eigandanum í þrjá sólar­hringa að Balto sem var ekki á þeim buxunum að láta ná sér. Mannlíf heyrði í einum meðlimi Hunda­sveitarinnar, henni Söndru Ósk Jóhanns­dóttur og spurði hana fyrst út í Hunda­sveitina. Hvernig varð hún til?

Sandra Ósk Jóhann­es­dóttir

„Við stofnuðum Hunda­sveitina formlega á nýársnótt 2020-21. Þá vorum við úti í skógi í Hafnar­firði að grilla pylsur, til að reyna að lokka sex mánaða gamlan hvolp sem fældist af heimili sínu vegna flugelda. Í raun vorum við búnar að vera nokkrar að hittast í leitum af dýrum en það var alltaf sama fólkið sem bauðst til að leita. Við kynntumst þannig og hugsuðum „Af hverju gerum við ekki eitthvað úr þessu?“ og þannig var Hunda­sveitin formlega stofnuð,“ sagði Sandra Ósk sem var í óðaönn við að koma sér í vinnuna.

En aftur að björgun Balto, hvernig gekk hún fyrir sig?

„Við fengum tilkynningu um níu leitið síðasta fimmtudag, þann 16. júní, að það væri týndur hundur sem að stökk yfir vegg á pallinum heima hjá sér í miðbæ Hafnar­fjarðar. Hann var bara nýkominn til nýs eiganda, hafði bara verið hjá honum í fjóra daga. Hann kom af sveitabæ nálægt Egils­stöðum þannig að hann þekkti ekki umhverfi sitt og þekkti í raun ekki umferð heldur,“ sagði Sandra Ósk en Hunda­sveitin fer strax af stað þá um kvöldið en eftir að hafa leitað í dágóða stund gerði sveitin hlé á leitinni því Balto átti það víst til, að sögn fyrri eigandans, að fela sig í runnum og gróðri þannig að ómögulegt væri að finna hann þar sem hann gæti verið hvar sem er í raun. Þannig að Hunda­sveitin tók stöðuna og ákvað að halda heim á leið og halda áfram leit daginn eftir.

„En þegar ég er kominn heim fengum við tilkynningu um að Balto væri í fjörunni við hunda­svæðið Bala. Þannig að við fórum þangað og hann sást en hann vildi ekki láta ná sér. Hann var samt ekki í þeim gír að flýja strax heldur horfði hann á mann lengi, sérstak­lega á hana Önnu sem er í Hunda­sveitinni en ákvað svo að hann vildi ekki koma til hennar. Þannig að þetta var meira þannig að hann vildi ekki láta ná sér en að hann væri eitthvað hræddur,“ sagði Sandra Ósk og sagði að partur af Hunda­sveitinni hafi verið á svæðinu til klukkan fjögur um nóttina en ekkert gekk upp og að lokum lét Balto sig hverfa á nýjan leik.

Sandra Ósk dauð­þreytt við leit­ina.

Daginn eftir fékk Hunda­sveitin fullt af tilkynningum um að Balto hafi sést á Reykja­nesbrautinni og þar í kring. Að sögn Söndur Óskar var hundurinn afar fljótur yfir og sást á mörgum stöðum. Hunda­sveitin fór því aftur á vettvang í von um að finna Balto. „En svo hætta bara tilkynningarnar og hann byrjar aftur að leggjast í felur. Og þá er ekki hægt að gera neitt nema bíða og sjá því hann gæti í raun verið hvar sem er. En fólk var alveg að rúnta um og hafa augun hjá sér og svona. Og svo á föstudags­kvöldið fer hann aftur á stjá og hann sést af mjög mörgum leitar­aðilum, bara úti um allt. Við vorum örugglega um 20 til 30 alls að rúnta þarna um og sumir á fótum eins og ég. En svo hægist aftur á þessu því hann fer enn einu sinni í felur. En svo sér ein manneskja Balto í runna rétt hjá Lækjar­skóla en þegar hún nálgast hann hleypur hann í burtu.“ Fólk hélt áfram að rúnta um og leita að hvutta en Sandra Ósk, ásamt Eygló og Önnu úr Hunda­sveitinni leituðu í runna með vasaljósi til klukkan fjögur um nóttina án árangurs.

Ekkert spurðist til Balta þar til sólar­hring síðar er Hundaasveitin fékk ábendingu frá stúlku sem sagðist hafa séð hann í Heiðmörk. „Þannig að hann var kominn langt frá þeim stað sem hann sást síðast á og það meikaði alveg sens að hann skyldi vera kominn í gróður, fjær manna­byggðum.“

Á þessum tíma­punkti var ákveðið að Hunda­sveitin og aðrir sem leituðu hundsins myndu umkringja svæðið sem Balto var á í Heiðmörk en ekki kalla á hann og mögulega þannig fæla hann í burtu af svæðinu. „Þannig að við ráðleggjum öllum að umkringja svæðið, ekki koma nálægt honum en umkringja svæðið en hann var í einhverskonar fjalls­hlíð. Við báðum fólk að fara hinum megin við fjallið en við spottuðum hann mjög oft í fjallinu. Þannig að við byrjuðum okkar svona protocol og byrjuðum að grilla pylsur,“ sagði Sandra Ósk og útskýrði fyrir blaða­manni Mannlífs að með því að grilla pylsur sé hægt að halda hundinum á svæðinu því hann finnur lyktina og vill þá síður yfirgefa svæðið. Hunda­sveitin setti svo dróna á loft sem samstarfs­aðili þeirra á því neyðin var slík því sveitin hafði misst sjónar af honum eitt augnablik en vissu að hann væri samt á svæðinu.

Þegar þarna var komið við sögu var fólk beðið að yfirgefa svæðið svo hundurinn myndi ekki fælast í burtu. „Þannig að þetta voru bara við og nýji eigandinn. Svo segir Anna einni úr hópnum að fara hinum megin við fjallið, hjá golf­vellinum og sú segir okkur að hann sé þar.“ Hópurinn fer því allur þangað og ná að nálgast hann loksins með grillaða pylsu að vopni en þær voru í um þrjár klukku­stundir liggjandi á jörðinni með blaut­matnum fra Dýrafóður í hendi en að sögn Söndru Óskar er þetta gert því að þá stafar minni ógn af þér og þú leyfir hundinum að nálgast sig á sínum forsendum. „Þetta tók í raun fjóra tíma að nálgast hann svona. Hann fór það nálægt okkur að það var næstum því hægt að klappa honum. Hann borðaði úr lófanum okkar. En við vissum að það sem við þurftum nú var fyrri eigandinn en hún hafði keyrt alla leið frá Egils­stöðum en hún kom þarna um morguninn. Okkur hafði þá tekist að róa hann og hann var farinn að venjast okkur. Hann til dæmis elskaði litinn á vestunum okkar, hann laðaðist gríðar­lega að þeim litum. Gamli eigandinn hafði byrjað að leita með okkur um klukkan 10 þennan morgun en klukkan eitt kallaði hún á hann og hann kom hlaupandi og stökk í fangið á henni,“ sagði Sandra Ósk uppnumin og bætti við: „Þannig að þetta var alveg þriggja og hálfs sólar­hrings leit. Þetta var þvílíkur eltinga­leikur og ef við hefðum ekki fengið þessa vísbendingu úr Heiðmörk hefði hann sennilega ekki fundist.“

Balto hopp­aði í fang fyrri eig­anda síns.

Balto er nú kominn aftur til nýrra eigenda sinna sem passa vel upp á að hann sé ekki laus á pallinum þar sem hann reyndist hinn mesti hástökk­vari.

Balto loks­ins kom­inn heim.

Ef fólk vill styrkja Hunda­sveitina sem er sjálfboða­liða­hópur eru upplýsingar hér fyrir neðan. Allir styrkir fara beint í tækjakaup fyrir leitir eins og hita­sjónauka en þess ber að geta að veglegt hundabúr sem hópurinn átti, var stolið á dögunum.

Kennitala: 550920-0850
Reikningur: 0301-13-000075 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá