Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Formaðurinn styður borgarstjórann: „Ég hef fullan skilning á þessari ákvörðun“

Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins – Sigurður Ingi Jóhanns­son – segir að hann hafi verið með­vit­aður um hvað stóð til á fundi Einars Þor­steins­sonar borg­ar­stjóra með odd­vitum meiri­hlut­ans í borg­ar­stjórn í gær, þar sem borg­ar­stjóriu til­kynnti um að hann hafi ákveðið að slíta meiri­hluta­sam­starf­inu í borg­inni, en þetta kom fram á frétta­vefnum Vísi.

„Ég hef fullan skiln­ing á þess­ari ákvörðun,“ sagði Sigurður Ingi og bætti við:

Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóri Reykja­víkur

„Einar var kos­inn og okkar flokkur árið 2022 til að gera breyt­ingar. Allar þær breyt­ingar sem hann hefur viljað gera þá hefur hann verið í mót­byr innan meiri­hlut­ans. Það eru hlutir eins og hús­næð­is­upp­bygg­ing, hvort sem er upp í Úlf­arsár­dal eða Geld­inga­nesi; það eru hlutir eins og að ganga lengra í að ná fram betri fjár­málum borg­ar­innar. Það eru bíla­stæða­málin og leik­skóla­málin þar sem Einar hefur verið til­bú­inn að horfa á nýjar lausnir eins og vinnu­staða­skóla og fleira. Allt þetta hefur núver­andi meiri­hluti ekki verið til­bú­inn til.

Svo er það sem við höfum aðal­lega séð á síð­ustu vikum varð­andi Reykja­vík­ur­flug­völl. Ég varð fyrir miklum von­brigðum þegar borgin fram­lengdi aðal­skipu­lagið bara til 2032 þegar það er aug­ljóst er að það tekur 15 til 20 ár að byggja nýjan flug­völl og þar af leið­andi hefði átt að fram­lengja til 2040. Ég hef því mik­inn skiln­ing á þeirri nið­ur­stöðu sem hefur orðið.“

Sigurður Ingi og Einar voru í sam­skiptum fyrir fund­inn örlaga­ríka:

„Við erum, eðli máls, miklir sam­herjar í Framsókn. Við höfum verið í miklum sam­skiptum, ekki bara síð­ustu daga, heldur líka síð­ustu vikur og mán­uði um stöð­una,“ sagði for­mað­ur­inn Sigurður Ingi sem telur það vera eðli­legt að Framsókn hefji við­ræður um myndun nýs meiri­hluta með Sjálf­stæð­is­flokki, Viðreisn og Flokki fólks­ins, eins og boðað hefur verið:

„Já mér finnst það eðli­legt að leita eftir sam­komu­lagi við þá flokka sem eru með mál­efna­legri meiri sam­stöðu heldur en núver­andi meiri­hluti hefur sýnt. Ég vænti að það gangi vel eftir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Verð­munur á bök­un­ar­vörum nær 66 pró­sentum milli versl­ana

Sykur og sumar súkkulaðivörur hafa lækkað í verði, en egg og mjólkurvörur hækkað. Engin ein verslun er ódýrust á öllum könnuðum vörum.
Slúður

Neyð­ar­kall Gunnars Smára

Heimur

Stærsta rann­sókn sinnar teg­undar sýnir að eft­ir­sjá vegna kyn­leið­rétt­ingar er afar sjald­gæf

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Sport

Brasil­ísk knatt­spyrnu­fé­lög leita til lög­reglu eftir slags­mál í leik U20-liða kvenna

Innlent

Innlent

Lög­reglan fylgd­ist með ung­linga­drykkju á söng­keppni Verzló

Fimm ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna og einn var fluttur á bráðamóttöku eftir árekstur á Bústaðarvegi.
Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll