Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Setti upp myndavélar til þess að fylgjast með tengdadóttur sinni – Ekki lengur velkomin í heimsókn

rifrildi
rifr­ildi

Flestir þekkja staðalýmindina af leiðinlegu tengda­mömmunni en kona í Banda­ríkjunum sagði frá slæmu dæmi af einni slíkri.

Sagan hófst þegar eigin­maður hennar lenti í bílslysi og slasaðist á baki en hann var rúmlyggjandi og eigin­konan sá alfarið um að sinna honum. Móðir mannsins sá sig ekki færa í að aðstoða við umönnun en krafðist þess að fá skýrslu sem lýsti ástandi hans klukku­stund fyrir klukku­stund. Ef eigin­konan gleymdi að senda tengda­móður sinni umrædda skýrslu brást hún harkalega við.

Tengda­mamman kom daglega í heimsókn án þess að aðstoða við heimilis­störf eða umönnun á syni sínum heldur skrifaði hún niður það sem henni fannst að betur mætti fara hjá tengda­dóttur sinni.

Ástandið fór fyrst að ágerast þegar tengdammaman hringdi og tilkynnti eiginkonu mannsins að ekki hafi verið skipt á rúmi sonar síns. Hvorki sonurinn né tengda­dóttir höfðu rætt rúmfata­skipti við hana og voru þau því furðu lostin yfir því hvernig hún vissi af því að ekki hafði verið skipt um á rúminu.

Stuttu síðar hringdi systir mannsins í eigin­konuna og sagði henni að móðir þeirra hafi sett upp mynda­vélar í herbergi hans til að vera viss um að hugsað væri vel um hann. Eigin­konunni var misboðið og tjáði tengda­mömmu sinni að hún væri ekki lengur velkomin heim til þeirra hjóna. „Hún missti stjórn á sér og sakaði mig um að koma í veg fyrir að hún hitti son sinn. Hún sagði tilhugsunina um að hitta hann ekki bókstaf­lega fá hana til að æla,“ sagði eigin­konan er hún leitaði ráða á Reddit þræði.

Eigin­maðurinn og fjöl­skylda hans furðuðu sig á ákvörðun konunnar og sökuðu hana um að sýna ekki áhyggju­fullri móður skilning. „Maðurinn minn er í uppnámi og segir mig vera hefni­gjarna. Ef móðir hans fær ekki að koma í heimsókn segist hann ætla að flytja til hennar,“ segir eigin­konan og spyr notendur Reddit hvort hún sé að bregðast rangt við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall