Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Héraðsskjalasafn biður um hjálp við að leysa ráðgátu: „Uppruni myndarinnar nokkuð á huldu“

Héraðs­skjalasafn Austfirðinga leitar upplýsinga um dular­fulla ljósmynd sem það festi nýlega kaup á en hún var tekin á Seyðis­firði ár árunum milli 1887 og 1907.

Tilurð myndarinnar, hver tók hana og hvenær og hvers vegna er enn sem komið er nokkur ráðgáta að því er fram kemur á Facebook-síðu Stefáns Boga Sveins­sonar forstöðu­manns Héraðsskjalasafnins en Austur­frétt fjallaði um málið. Í færslunni segir að fyrir nokkru hafi safninu borist ábending um ljósmynd frá Seyðis­firði væri til sölu í gegnum vefsíðuna e-bay en ekki væri að finna þá mynd á ljós­myndasöfnum hérlendis. Eftr að hafa skoðað málið var tekin sú ákvörðun að kaupa myndina en seljandinn sérhæfir sig í sölu gamalla ljósmynda.

„Við ákváðum að kaupa þessa mynd enda var hún fáanleg á góðu verði, það er nokkrir þúsund kallar. Hinsvegar er uppruni myndarinnar nokkuð á huldu, það er hver tók hana og í hvaða tilgangi.“segir Stefán Bogi í samtali við Austur­frétt.

Segir Stefán að mögulega hafi myndin verið tekin í sérstakri ferð til Íslands eða jafnvel Grænlands með stoppi hér á landi.

„Við vitum þetta ekki núna en myndin er gott augnablik í sögu Austur­lands á þessum tíma,“ segir Stefán.

Ljós­myndin sýnir hóp hrossa með reið­tygjum við hús á Seyðis­firði sem var reist árið 1887 undir starfsemi Pöntunar­félags Fljótsdals­héraðs á svokölluðum Svendsengrunni við Hafnar­götu, milli Þórs­hamars og Skipasmíða­stöðvarinnar, að sögn Stefáns.

Húsið stóð þar til ársins 1907 að það var flutt og breytt töluvert mikið. Það stendur nú við Hafnar­götu 10 og er jafnan kallað Múli. Frá þessu segir í Húsasögu Seyðis­fjarðar.

„Myndin er lituð og á glerplötu, þeirrar gerðar sem á ensku nefnist „lantern slides“. Þetta voru nokkurskonar forverar síðari tíma slides-mynda og var varpað á sýningar­tjald. Á myndinni kemur fram að hún tilheyri American Museum of Natural History en safnið lét útbúa myndir af þessu tagi til að lána út í skóla sem kennslu­efni en einnig fyrir opinbera fyrir­lestra sem haldnir voru í safninu og voru geysivinsælir á tímabili.“

Stefán Bogi hvetur þá sem hafa einhverjar upplýsingar um myndina að hafa samband.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn
Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp