Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

K-Pop stjarna framdi sjálfsvíg: „Þarf að gjalda fyrir syndir mínar með lífi mínu“

Suður kóreska popp­stjarnan Choi Sung-bong fannst látin í gær, aðeins 33 ára að aldri. Talið er að hann hafi framið sjálfsvíg.

Lögreglan fann lík hans heima hjá honum í Yeoksam-dong umdæminu í Seúl, klukkan 21:41 í gær, samkvæmt The Korean Times.

Birti kveðjubréf á YouTube

Popp­stjarnan sló í gegn í Korea´s Got Talent árið 2011 en síðar skrifaði hann undir plötu­samning við Bon Bong Company. Fregnir af hinum sorglegu endalokum hans koma tveimur árum eftir að upp komst um svindl hans en hann þóttist glíma við alvarlegt krabba­mein.

Choi grátbað milljónir aðdáenda hans um að styrkja hann fjárhags­lega, svo hann gæti haft efni á að glíma við krabba­meinið. Eftir að upp komst um svikin sendi popparinn frá sér afsökunar­beiðni tárvotur um augun þar sem hann lofaði að skila styrkjunum sem áhyggju­fullir aðdáendur hans hafi verið svo ljúfir að gefa honum.

Daginn áður en hann tók sitt eigið líf, birti Choi texta skilaboð á YouTube rás sinni þar sem hann baðst afökunar á „heimsku­legum mistökum“ fortíðarinnar.

Í hinum óhugnanlegu skila­boðum sagðist söngvarinn þurfa að „gjalda fyrir syndir sínar með lífi sínu.“ sagði hann ennfremur: „Ég biðst innilegrar afsökunar til allra sem þjáðst hafa vegna þessara heimsku­lega mistaka minna.“ Sagðist Choi hafa verið búinn að borga til baka alla styrkina sem hann fékk.

Aðstæðurnar á heimili Choi sem og skila­boðin á YouTube, urðu til þess að lögreglan komst að þeirri niður­stöðu að um sjálfsvíg var að ræða.

Svindlið

Choi, sem kallaður var hinn kóreiski Paul Potts, hélt því fram að hann hefði verið greindur með alls þrjár tegundir krabba: Ristil­krabbamein, skjaldkirtilskrabbamein og krabba­mein í blöðru­hálskirtli.

Hneikslisbylgja reið svo yfir þegar í ljós kom að allt saman var lygi. Í upphafi neitaði Choi því alfarið að hafa logið til um krabba­meinin og birti meðal annars niður­stöður lækna en svo kom á daginn að þær reyndust falsaðar.

Þá sætti hann einnig ásökunum og gagnrýni um að hafa sóað upphæðinni, einum milljarði, sem hann fékk í söfnuninni, í skemmtana­kostnað.

Til voru sannanir fyrir öllum ásökunum á hendum honum og svo fór að lokum að söngvarinn baðst afstökunar á mistökum símum og viðurkenndi að hann hefði svikið fé af aðdáendum sínum. Hætti hann söng­ferlinum og hóf nýtt líf sem starfs­maður veitinga­staðar.

Erfið æska

Eftir að Choi keppti í Korea´s Got Talent árið 2011, sló myndband af honum úr keppninni rækilega í gegn á YouTube en yfir 21 milljónir horfðu á það. K-pop stjörnur á borð við BoA og Jung-Hwa Um deildu því á sínum samfélags­miðlum. Í mynd­bandinu segir Choi frá erfiðri æsku sinni en hann var skilinn eftir á munaðar­leysingja­heimili þriggja ára gamall og strauk frá heimilinus fimm ára til að flýja barsmíðar þeirra. Næstu tíu árin vann hann við að selja jórtur­leður og orku­drykki en hann bjó á götunni. Þá var mennta­skóli fyrsti skólinn sem hann sótti.

Choi sagði að „lífið væri fullkomnað“ eftir að Justin Bieber ós yfir hann hrósum á Facebook-síðu sinni: „Þetta er frábært. Aldrei að segja aldrei og gangi þessum drengi vel. Frábær saga.“

Fréttin er unnin upp úr frétt Mirror.

Hér má sjá mynd­bandið fræga:

Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent er á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólar­hringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólar­hringinn. Netspjall Heilsu­veru þar sem svarar hjúkrunar­fræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfs­vígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgar­miðstöð og hjá Pieta samtökunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár