Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Illugi velti fyrir sér skyldleika við fólk í iðnaðarmannabúð: „Eflaust var hann frændi minn“

Illugi Jökulsson.
Illugi Jök­uls­son.

Illugi Jökulsson reiknaði út að líklega hefðu um fimm manns í verslun sem hann fór í, verið skyldmenni hans, í gegnum formóður um sjötta hluta þjóðarinnar.

Hinn orðhagi rithöfundur og fjölmiðla­maður, Illugi Jökulsson skrifar oft skemmtilegar færslur á Facebook. Sú nýjasta er engin undan­tekning. Þar segir hann frá því að hann hafi farið í iðnaðarmannabúð þar sem inni voru 35 manns. Sagðist hann hafa hlegið innra með sér því miðað við tölfræðina, væru líkur á því að fimm manns þar inni væru skyldmenni hans í gegnum Sigríði Hjálms­dóttur, húsfreyju á Þverá í Skaga­firði sem fæddist árið 1702 en hún á 60.167 afkomendur á lífi í dag, hvorki meira né minna. Færsluna skemmtilegu má lesa hér fyrir neðan:

„Áðan þurfti ég að fara út í búð að kaupa þéttull til að þétta ákveðinn stað hér í húsinu í kuldanum. Í tiltekinni iðnaðarmannabúð voru 35 menn inni; afgreiðslu­fólk, viðskipta­vinir og ég. Þá hló mér hugur í brjósti þegar ég áttaði mig á því að eflaust væru fimm menn þarna inni eins og ég afkomendur Sigríðar Hjálms­dóttur (1702-1783) húsfreyju á Þverá í Skaga­firði en andaðist í Þykkvabæ. Samkvæmt Íslendingabók á hún nefnilega 60.167 afkomendur á lífi en það fer nærri því að vera sjötti hluti þjóðarinnar. Og ég hugsaði með mér hvort ég ætti að efna til fundar þarna í búðinni og við sexmenningarnir gætum fengið okkur kaffi til að þakka Sigríði fyrir að hafa gengið að eiga Steingrím nokkurn Jónsson og síðan sofið hjá honum einmitt þegar hún gerði það, því annars værum við ekki þarna þrem öldum síðar, heldur einhverjir allt aðrir sex menn. En þá var kominn maður með þétt­ullina mína, svo ég fór bara. Eflaust var hann frændi minn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt