Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Assange óheimilt að áfrýja framsalsúrskurði: „Það er búið að ákveða að murka lífið úr Julian“

Julian Assange
Julian Assange

Nýlega úrskurðaði dómari í Bretlandi að Julian Assange blaða­manni væri óheimilt að áfrýja framsals­úrskurði undiréttar. Kristinn Hrafnsson, vinur Assange og ritstjóri Wikileaks er ævareiður vegna þessa enda er verið að refsa blaða­manni fyrir að vinna vinnuna sína.

„Hann heitir Jonathan Swift, dómarinn sem ákvað eftir 8 ½ mánaða yfirlegu að úrskurða á dögunum að Julian Assange væri óheimilt að áfrýja framsals­úrskurði undir­réttar,“ skrifaði Kristinn í magnaðri færslu á Facebook sem hefur vakið verð­skuldaða athygli. Og hann hélt áfram:
„Hinn æruverðugi Swift dómari (eins og hann er titlaður) var ekki að verja mörgum orðum í rökstuðninginn. Ekkert um þau nýju gögn sem lögð voru fram sem sýna glöggt að Julian á ekki möguleika á réttlátri máls­meðferð í Banda­ríkjunum. Ekki orð um að verið er að framselja hann í hendur leyni­þjónustu sem hafði uppi áform um að taka hann af lífi. Aðeins snögg­soðin og fýluleg aðfinnsla um að yfirhöfuð væri verið að ónáða réttinn með þessu erindi. HANN teldi Julian hafa fengið fyrirtaks máls­meðferð í undir­rétti og því þarflaust að ónáða áfrýjunar­rétt með því að fá að leggja mat undirréttar­dómara undir High Court.“

Kristinn segir að Assange hafi aðeins einn möguleika eftir í stöðunni.

„Það er fáheyrt í svo mikils­verðu máli að hafna áfrýjun. Julian hefur þann eina möguleika núna að biðja tvo aðra dómara eftir helgi um endur­skoðun á þessum úrskurði Swifts. Það gæti verið skjót­afgreitt erindi. Gæti þess vegna verið afgreitt fyrir réttarhlé á miðju sumri. Þá eru öll sund lokuð fyrir Julian í Bretlandi.“

Því næst snéri Kristinn sér að stjórn­völdum í Bretlandi sem hann segir að sé ævareið Mann­réttinda­dómstóli Evrópu fyrir afskiptasemi.

„Þó svo að Mann­réttinda­dómstóll Evrópu (MDE) ákveði að skoða málið og fari fram á frestun framsalsins (á grund­velli reglu 39 sem Bretland er enn bundið af) er ekkert víst að Breska stjórnin hlýti því. Íhalds­stjórnin vill losna undan þessum dómstól og kvartar undan inngripum í fullveldi. Sunak forsætis­ráðherra og Suella Braverman, innan­ríkis­ráðherra, eru ævareið yfir því að MDE skuli hafa stöðvað með inngripum áform um að nauðungar­flytja hælis­leitendur í Bretlandi til Rúanda. Það var einmitt Swift dómari sem ákvað að það mál skyldi ekki stöðvast í áfrýjunar­rétti í London og er efalaust líka ævareiður MDE. Eins og allt gerspillta valdið.Eina erindið sem Sunak átti á leiðtoga­fundinn í Reykjavík var einmitt að að kvarta yfir Evrópskum mann­réttinda­inngripum í málefni Bretlands í gegnum MDE. Hann flutti umkvörun sína, bað Evrópu að vera ekki að skipta sér af afgreiðslu þeirra á eigin hælis­leitendum og flaug heim samdægurs.Það er eins víst að Sunak stjórnin gefi skít í MDE og setji Julian beint í fangaflug til Banda­ríkjanna. Samningar skipta engu máli lengur. Mann­réttindi skipta heldur engu máli.Íhalds­stjórnin vill fá að byggja upp sitt fasista­ríki í friði.

Þið á Íslandi vitið vel að innan áskriftar­flokks dómsmála­ráðuneytis hafa verið öfl sem munu horfa öfundar­augum til slíkrar röggsemi Breta. Líklegast fylgja á eftir. Losna við mann­réttinda­kvabbið frá MDE.“

Ef Assange verður fram­seldur til Banda­ríkjanna, líkt og verður að teljast ansi líklegt úr þessu, bíður hans allt að 175 ára fangelsis­dómur.

„Í Banda­ríkjunum bíður ákæra upp á mest 175 ára fangelsis­vist. Það tekur að minnsta kosti tvö ár að undirbúa réttarhöld. CIA getur krafist þess að Julian verði þann tíma í algerri einangrun. Ef Julian tórir fram að réttar­höldunum verða þau fyrir kviðdómi í austur­hluta Virginíu, steinsnar frá öllum helstu valda­stofnunum landsins. Ríkis­valdið fer yfirleitt þangað með ákærur á grund­velli njósna­laga. Af því að kvið­dómurinn er yfrleitt skipaður fólki með beina eða óbeina hagsmuni tengdum nálægum stjórnar­stofnunum. Þessi dómstóll er kallaður Spy Court, af því þangað fara njósna­löggjafar­málin. Á þeim bæ er hlutfall sakfellinga í slíkum málum giska hagfellt ákæru­valdinu.

100%.“

Segir Kristinn að búið sé að „ákveða að murka lífið úr Julian“.

„Það er búið að ákveða að murka lífið úr Julian. Með hægfara sálrænum pyntingum sem hann hefur verið beittur (og um það úrskurðað af fulltrúa Sameinuðu þjóðanna í þeim mála­flokki). Það skiptir engu þó að öll helstu mann­réttinda­samtök heimsins leggi pressu á Banda­ríkin. Það skiptir engu máli þó að forsætis­ráðherra Ástralíu fari fram á það við Biden forseta að láta af þessari geðveiki. Það skiptir engu máli þó að þeir forsetar sem ég hef hitt geri opinber­lega kröfu um hans lausn, Obrador í Mexikó, Pedró í Kólumbíu, Lula í Brasilíu, Fernandez í Argentínu og Arce í Bólivíu. Það skiptir heldur engu máli hvað þið segið á Íslandi.“

Lokaorð Kristins eru sterk:

„Ykkar stjórn­völd stein­þegja líka í skömm. Sem og stjórn­völd um alla Evrópu. Ærandi skammarleg þögn ríkir um mál Julians meðal ráðamanna þar á meðan lífið er murkað úr marg­verð­launuðum blaða­manni fyrir framan nefið á þeim.Hernaðar­stórveldið hefur ákveðið að það þurfi að refsa þeim sem framdi þann glæp að stunda alvöru blaða­mennsku og opinbera um stríðs­glæpi þess. Það þarf að setja fordæmi.Hæfileg refsing er dauði.

Fasisminn vill ekkert ónæði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár