Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

McConaughey var kúgaður til kynlífs 15 ára og nauðgað 18 ára: „En ætla ég að burðast með þetta?“

Matthew McConaughey
Matthew McConaughey Mynd: Nathan Congleton

Stór­leikarinn Matthew McConaughey tjáði sig opinskátt um fortíðina í nýju viðtali í hlaðvarps­þættinum The Conversation: About the Men en þar sagði hann meðal annars frá því að hann hafi verið kúgaður til kynlífs aðeins 15 ára. Þá var hann einnig misnotaður af karlmanni 18 ára gamall.

Matthew hefur áður sagt frá misnotkuninni í bók sinni Greenlights en í hlaðvarps­þættinum vildi hann ekki fara í mikil smáatriði í báðum málunum en sagði að hann hafi vitað að eitthvað var ekki í lagi. Byggði hann það á þeirri leiðsögn sem hann hafði fengið frá foreldrum sínum.

Í viðtalinu rifjaði hann upp þegar hann lærði fyrst um kynlíf og kynferðis­lega nánd frá föður sínum:

„Mér hafði verið kennt, verið leiðbeint af foreldrum mínum um virðingu gagnvart konum, virðingu gagnvart samböndum, virðingu fyrir kynferðislegri nánd, virðingu fyrir rými. Pabbi kenndi okkur um býflugurnar og blómin þar sem hann sagði „Þú ert að komast á kossa­aldurinn, ekki satt?“ og ég svaraði, „jú herra.“ Og þá sagði hann, „Sko, þetta mun ganga talsvert lengra einn daginn. Þetta mun sennilega enda á þú verðir náinn einhverri og það kemur að brjóstunum og sennilega muntu fara fyrir neðan belti,“ ég er að umorða þetta, og hann sagði svo „Þetta mun gerast hjá þér líka“.“ Matthew hélt áfram að lýsa samtalinu við föður sinn: „Og hann heldur áfram og segir við mig „Sonur, sem karlmaður í þessum kringum­stæðum, ef þú finnur að stelpa, að konan hiki, stoppaðu. Þú gætir jafnvel fundið að stelpan hikar og eftir að þú stoppar að þá biður hún þig um að halda áfram. Ekki gera það. Bíddu þar til næst.“ Og hann hafði rétt fyrir sér,“ sagði Mathew og sagðist hann hafa upplifað einmitt þetta en alltaf tekið rétta ákvörðun og stoppað.

Sagði leikarinn að vegna þessarar kennslu hafi hann verið mjög skýr um það hvað telst vera heilbrigt kynferðis­samband og hvað ekki og að hann hafi fundið það strax, að vera kúgaður til kynlífs 15 ára, hafi alls ekki verið rétt.

„En ég var mjög viss að þetta var ekki rétt, að þetta væri ekki flott, að þetta væri ekki eins og þetta á að vera,“ sagði Matthew og hélt áfram: „Eftir þetta átti ég í nokkrum heil­brigðum kynferðis­legum samböndum og kynnst stelpur sem ég hreifst af og þær af mér og smá saman urðum við nánari og það var fallegt og klaufalegt og allt það, en aldrei ljótt eins og hitt var.“

Þegar Matthew var svo misnotaður 18 ára segist hann ekki hafa tengt það við kúgunina fyrr en löngu seinna. „Ég tengdi þetta ekki saman,“ sagði hann. Viðurkennir hinn 52 ára gamli leikari að hann hafi ekki farið í meðferð til að komast yfir áfallið sem hann lenti í, en að hann hafi átt svo marga góða að sem hjálpuðu honum í gegnum þetta. „Ég hef átt mjög góða vini. Ég hef átt góða leið­beinendur,“ sagði Matthew en sagði ennfremur að fólk takist á við áföll á mismun­andi hátt. Segist hann ekki hafa haft það val að festast í þessu, hann elski lífið of mikið og trúir of mikið á fólk til þess að eyða lífinu hræddur við allt það slæma og hættulega sem hefur komið fyrir hann.

„Ég ætla ekki að vera hræddur í samböndum vegna þess að fyrsta reynsla mín var kúgun. Neihei. Það var frávik. Nei, nei. Þannig er þetta ekki. Ég ætla ekki að láta þetta eyði­leggja traust mitt á fólki og segi:

„Nei, ég get átt heilbrigt samband. Það er óumsemjanlegt. Nei.“

Þetta gerðist. Er ég að afneita þessu? Nei, ég er ekki að afneita þessu. Ljótt, oj. Ég fæ enn, jafnvel þegar ég er að segja þér þessa sögu, ég fæ enn … en ætla ég að burðast með þetta? Ég vel, óumsemjanlegt, ég ætla ekki að burðast með þetta, burðast með þennan farangur inn í það líf sem ég vil lifa og hvernig ég kem fram við fólk og treysti fólki og hvernig ég lít á kringum­stæður og þær áhættur sem ég gæti tekið.“

Það var ETonline sem fjallaði um viðtalið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“