Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Útrásarvíkingurinn Jón Ásgeir upprisinn

Jón Ásgeir Jóhannesson
Jón Ásgeir Jóhann­es­son

Nýr forstjóri og fjármála­stjóri voru kynntir til leiks hjá Skeljungi í fyrradag við mikinn fögnuð fjárfesta. Hlutabréf í Skel fjár­festinga­félagi, áður Skeljungi, hækkuðu um sjö prósent við tíðindin. Ásgeir Reykfjörð Gylfason verður nýr forstjóri fyrir­tækisins en hann var áður hægri hönd Benedikts Gísla­sonar, banka­stjóra Arion banka. Magnús Ingi Einarsson var ráðinn fjármála­stjóri. Jón Ásgeir Jóhannesson, stærsti hluthafi fjár­festinga­félagsins, tók þeim fagnandi og tilkynnti um stærstu kauprétti til einstaka stjórn­enda frá fjármála­hruni. Þeir Ásgeir og Magnús Ingi eiga von á allt að tvö þúsund milljónum króna í kauprétti.

Jón Ásgeiri hefur á skömmum tíma tekist að breyta bensín­sjoppum í fjár­festinga­félag sem malar gull. Lífeyris­sjóðirnir eru horfnir á braut og gamli kaup­maðurinn á horninu hefur nú betri „vinnufrið“ til að gefa út væna kauprétti og ráðast í nýjar fjár­festingar.

Á nýlegum hluthafa­fundi Icelandair var nýrri kaup­réttar áætlun fyrir tugi stjórn­enda harðlega mótmælt, en hún var einmitt sama fjárhæð og Jón Ásgeir hefur gefið toppunum tveimur í Skel, tveir milljarðar króna. Þó má búast við að Íslandsmet í kaup­réttum verði fljótlega slegið þegar lyfja­fyrirtækið Alvotech skráir sig á hlutabréfa­markað. Fyrir­tækið hefur tilkynnt um 13 milljarða króna áunna kauprétti fyrir fyrr­verandi og núverandi stjórn­endur.

Ljóst að Jón Ásgeir er snúinn aftur í íslensku kaup­höllina og hefur á skömmum tíma náð að tvöfalda virði fyrir­tækisins. Óneitanlega minnir háflug fyrir­tækisins nokkuð á hið áhættu­sækna FL-Group. Þó er vel hugsanlegt að menn hafi lært af reynslunni og fari hægara í sakirnar en áður og segja kaup­réttina og yfirráð Jóns Ásgeirs yfir fjár­festinga­félaginu marka ákveðin tímamót. Ljóst sé að Jón Ásgeir er snúinn aftur í íslensku kaup­höllina og hefur á skömmum tíma náð að tvöfalda virði fyrir­tækisins. Óneitanlega minnir háflug fyrir­tækisins nokkuð á hið áhættu­sækna FL-Group sem endaði með eftir­minnilegri brot­lendingu þeirra Jóns Ásgeirs og Hannesar Smára­sonar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Slúður