Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Billy Ray og Firerose trúlofuð: „Heimurinn er betri með þig innanborðs“

Allt ætlaði um koll að keyra vestanhafs í gær þegar kántrý­stjarnan Billy Ray Cyrus og nýstirnið dular­fulla Firerose gáfu sterklega í skyn að þau séu trúlofuð. Það gerðu þau með röð ljósmynda þar sem hún skartar gull­fallegum og sjálfsagt fáránlega dýrum demants­hring á baug­fingri. Billy Ray er þekktur fyrir tvennt. Fyrir að vera faðir Miley Cyrus og fyrir að hafa samið leiðinlegasta kántrilag allra tíma, Achy Breaky Heart.

Tónlistar­fólkið skrifaði enga sérstaka tilkynningu við myndirnar heldur einfald­lega: „Gleðilegt haust.“

Hvað er með þennan filter?

Aðdáendur tóku fyrst eftir hringi á fingri Firerose 13. september síðastliðnum þegar söngkonan birti ljósmynd á Instagram þar sem hún sat fyrir framan Music Row í Nashville. Hin ástralska söngkona skrifaði við ljós­myndina „Nýt augna­bliksins…“

Aðeins eru liðnir fimm mánuðir síðan Tish Cyrus sótti um skilnað við Billy Ray eftir nærri þriggja áratuga hjónaband. Sagði hún ástæðuna vera „ósættanlegan ágreining“ og sagði þau ekki hafa búið saman síðan 2020.

„Eftir þrjátíu ár, fimm stórkostleg börn og gommu af minningum, höfum við ákveðið að fara í sitthvora áttina – ekki með sorg í hjarta, heldur með ást,“ skrifuðu fyrr­verandi hjónin í sameiginlegri tilkynningu. Þau Tish og Billy Ray eiga saman börnin Miley Cyrus, 29 ára, Noah Cyrus, 22 ára, Trace Syrus, 33 ára og Braison Cyrus, 28 ára. Í tilkynningunni skrifuðu þau einnig: „Við höfum þroskast saman, komið upp fjöl­skyldu sem við erum stolt af en nú er kominn tími á að við sköpum okkar eigin leiðir.“

Billy Ray og Firerose gáfu saman lagið New Day árið 2021 og hafa síðan birst oft saman á ljós­myndum á samfélags­miðlunum eins og þegar Firerose fagnaði 61 árs afmæli Billy Ray: „Heimurinn er betri með þig innanborð. Til hamingju með afmælið Billy.“

Ekki hrukku að sjá enda filt­eruð í drasl.

Sjálf er Firerose á óræðum aldri en talið er að hún sé á miðjum þrítugsaldri, í kringum 25 ára aldurinn þó á ljós­myndum á Instagram mætti halda að hún væri tveggja ára málverk, slík er mynd­vinnslan.

Eldrós er nýstirni í kán­trý­heim­inum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt