Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ólíkir samningar Icelandair og Play: „Svona samningar eru í raun veðmál“

Samsett mynd.
Samsett mynd.

Það sem af er ári hefur verð á þotu­eldsneyti hækkað um nærri helming. Í morgun hafði verð á olíu hins vegar lækkað um nærri fjóra af hundraði og eru nú rétt 110 dollarar á fatið. Kaup á þotu­eldsneyti eru næst­stærsti kostnaðar­liðurinn í rekstrinum á eftir launum og hefur þessi hækkun mjög neikvæð áhrif á afkomu flug­félaga.

Verðið var hæst í byrjun mars eða um 129 dollara. Þá var stríðið í Úkraínu nýlega hafið og viðskipta­þvinganir á hendur Rússum kynntar. Þvinganirnar fólu meðal annars í sér verulegar takmarkanir á kaupum á rússneskri orku.

Sem fyrr segir vega kaup á þotu­eldsneyti þungt í rekstri flug­félaga en tonnið kostar í dag rétt um 1.400 dollara. Til marks um hækkunina að undan­förnu þá bauðst Icelandair um miðjan febrúar að gera fram­virkan samning um kaup á þotu­eldsneyti á seinni hluta ársins fyrir 800 dollara á tonnið.

Flug­félögin Icelandair og Play hafa bæði skrifað undir samninga um fyrir­framkaup á litlum hluti af eldsneytis­notkuninni á næstu mánuðum. Kjörin hjá Icelandair hljóða upp á 664 dollara á tonnið fyrir um fjórðung af notkuninni á yfir­standandi ársfjórðungi, apríl til júní. Á næsta fjórðungi fær félagið 18 prósent af notkuninni fyrir 935 dollara á tonnið.

Samningur Play við Skeljung hljóðar upp á fimmtung af notkuninni fyrir júní til ágúst og tíund af eldsneytis­þörfinni í september til nóvember. Fyrir fyrra tímabilið greiðir Play 1.210 dollara á tonnið en 1.112 dollara á seinna tíma­bilinu, samkvæmt Túrista.is.

Samkvæmt frétt túrista segir að: „svona samningar eru í raun veðmál þar sem annað hvort flug­félagið eða mótaðilinn tapar. Eins og staðan er í dag þá greiðir Skeljungur með samningnum því heims­markaðs­verðið um 15 prósentum hærra en sem nemur samnings­upphæðinni. Samkomu­lagið nær hins vegar út nóvember og því ekki útséð með hvort það verður Play eða Skeljungur sem græðir á samningnum um þotu­eldsneytið þegar hann verður gerður upp í lok árs.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá