Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ótrúlega skýr mynd af fyrstu íbúum Seyðisfjarðar: „Við sjáum aldrei slíkt frá þessum tíma“

Ótrúlega heillegar húsa­rústir hafa komið í ljós í uppgreftri í bæjarhóli landnáms­bæjarins Fjarðar í Seyðis­firði. Þýðir það að í uppgreftrinum sem er nú lokið þetta sumarið, er að finna heimildir um síðari hluta landnáms og upphaf miðalda á Íslandi.

„Við töldum bæjar­hólinn vera nokkuð þekkta stærð en hann varð töluvert stærri og umfangs­meiri en við héldum, ekki 30 metra langur heldur 90 metrar,“ segir Ragn­heiður Trausta­dóttir, doktor í fornleifa­fræði, sem stýrir uppgreftrinum. Rætt var við hana í þættinum Að austan á N4 í gærkvöldi en Austur­frétt sagði frá málinu.

Ákveðið var að ráðast í uppgröftinn í fyrra vegna þess að hluti svæðisins fer undir nýja snjóflóða­varnar­mannvirki við norðan­verða byggðina. Kuml fundust þar í haust.

Þetta sumarið hafa fundist mannvirki frá tíma­bilinu 950-1150 en það er víkinga­aldar­skáli, útihús, túngarður og fleira. Skriða lá yfir hluta uppgraftar­svæðisins en hún féll um aldamótin 1100 en hún á sinn þátt í varð­veislu svæðisins.

„Við erum með metra háa torfveggi í skálanum og viðbyggingum. Við sjáum aldrei slíkt frá þessum tíma. Skriðan hefur varðveitt þessa veggi. Það að byggingarnar séu þetta heillegar gera okkur auðveldara að skilja þær. Við höfum líka fundið ótrúlega marga gripi; hversdags­gripi, skart­gripi og gripi sem búnir voru til á staðnum.

Með þessu öllu og í samhengi við kumlin frá í fyrra, fáum við ótrúlega áhuga­verða heildar­mynd af fyrstu íbúum Seyðis­fjarðar. Við getum myndað okkur skoðun á sögu þeirra sem fyrst settust hér að og sagt sögu þeirra.“

Áformað var að klára uppgröftinn í sumar en nú er ljóst að haldið verður áfram þriðja árið. Nýta á vetrar­mánuðina til að tryggja varð­veislu og rannsaka það sem hefur fundist í sumar.

„Allar minjar segja einhverja sögu. Á Austur­landi hefur verið lítið grafið, sérstak­lega frá þessum tíma. Þessi uppgröftur mun gefa okkur fyllri mynd af sögu 10. og 11. aldar á Íslandi. Hér er líka upphaf Seyðis­fjarðar og þar með saga Seyðfirðinga. Veturinn og næsta sumar verða því mjög spennandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp