Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Auður hæstánægður með samstarfið við Bubba: „Það er heiður að gera lag með þjóðarskáldi“.

Bubbi og Auður vinna saman.
Bubbi og Auður vinna saman. Mynd: ARON REYNISSON

„Það er heiður að gera lag með þjóðar­skáldi. Þegar Bubbi bað mig um að vinna með sér gat ég ekki annað en sagt já. Sem krakki mæmaði ég með Utan­garðsmönnum, spilaði á luftgítar, hoppaði í rúminu og þóttist vera á sviði einn inni í herbergi. Fjöllin hafa vakað er fyrsta lagið sem ég lærði á gítar. Núna er ég að gefa út lag með honum,“ segir tónlistar­maðurinn Auður um nýtt lag sem hann og Bubbi Morthens gáfu út á miðnætti.

Lagið, Tárin falla hægt, er þeirra fyrsta samstarfs­verkefni. Stórir gítarar, stríðstrommur og angurvær hljóð­heimur einkenna lagið.

Bubbi Morthens er hæstánægður með samstarfið.

„Frá því ég heyrði í Auð í fyrsta skipti vissi ég að þarna væri kominn lista­maður sem hefði vægi. Og ég hugsaði: Ég verð að vinna með honum einn daginn,“ segir hann.

Lagið er samið af þeim báðum en upptöku­stjórn og helsti hljóðfæra­leikur var í höndum Auðuns. Á bassasyntha spilar Magnús Jóhann Ragnarsson, hljóð­blöndun var unnin af Styrmi Haukssyni, ljós­myndina tók Vignir Daði Valtýsson og lagið er gefið út af Öldu Music.

Bubbi hefur nú sýnt yfir 100 sýningar af söng­leiknum Níu líf í Borgar­leikhúsinu sem var jafnframt valin sýning ársins á Grímunni. Auður var tilnefndur til Grímunnar fyrir tónlist sína í Rómeó og Júlíu í Þjóð­leikhúsinu. Lagið er komið á Spotify og er að finna hér.

Tárin falla hægt
ég er fífl ég er skúrkur

ég hef séð tár, grátandi stúlkur

brennt þorp, kirkjur og brýr

bálför sem reyndist mér dýr

hef misst kjarkinn, ég hef séð þokuna

krafta­verk, dauða og heimsenda

ég hef dottið hrapað í holurnar

stend upp hvern dag og drep innri dópista

ég hef séð reykinn

tekið pillurnar

ég hef kysst stelpur

gert þær einmana

tárin falla hægt

sem að vega mest

ég er skíthæll,

ég er snillingur

aðeins guð mun klára mína setningu

tárin falla hægt

sem að vega mest

fólkið hatar mig

elskar mig

aumingi og þjóðar­gersemi

hirð­fíflið, kóngurinn

ruddi, eðalmenni, dólgurinn

ég er málverkið

ég er pensillinn

ég er misheppnuð saga og fyrirmynd

gamall úlfur, burðast með þröskuldinn

ég er naglinn, andinn og sonurinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt