Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Lyfja gefst upp á Eskifirði

„Þessi rekstur er full­reyndur“

Hinn fagri Eskifjörður
Hinn fagri Eski­fjörður Lyfja sér sér ekki fært að hafa verslun á Eski­firði. Mynd: East.is

Lyfja hefur ákveðið að hætta rekstri útibúsins á Eskifirði um næstu mánaðamót. Samkvæmt Þórbergi Egilssyni, forstöðu­manni verslana­sviðs Lyfju, hefur reksturinn ekki verið sjálfbær í nokkur ár og sé nú talið fullreynt að halda honum úti.

„Við höfum verið með þjónustu á Eskifirði til margra ára og höfum nú tekið vandlega íhugaða ákvörðun og ekki af neinni léttúð. Læknis­þjónusta á Eskifirði hefur minnkað mikið og hún er forsenda lyfja­útibús. Við hörmum þessa ákvörðun en þessi rekstur er full­reyndur,“ segir Þórbergur í samtali við Austur­frétt.

Útibúið hefur hingað til verið opið frá kl. 12 til 16 á virkum dögum. Áfram verður boðið upp á þjónustu í apóteki Lyfju í Neskaupstað, sem er opið frá 10 til 18 virka daga, og á Reyðar­firði, þar sem opnunar­tíminn er frá 11 til 18. „Við erum með öfluga starfsemi á þessum stöðum og leggjum okkur áfram fram um að þjónusta samfélagið í Fjarða­byggð, sem okkur þykir mjög vænt um, eins vel og okkur er unnt,“ bætir Þórbergur við.

Tveir starfs­menn hafa starfað í útibúinu á Eskifirði og mun þeim báðum standa til boða að flytjast yfir í starf á Reyðar­firði. Engar uppsagnir verða því vegna lokunarinnar.

Þórbergur segir að enn sé verið að skoða hvort gripið verði til sérstakra aðgerða til að mæta þörfum Eskfirðinga sem eiga erfitt með að nýfta sér þjónustu annars staðar. „Við höfum skilning á þörfum mismun­andi hópa og munum leggja okkur fram um að koma til móts við fólk og þeirra persónu­legu þarfir,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp