Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Afdrifaríkt grín Más gæti endað með sýn: „Hann tjáði mér í fúlustu alvöru að hann myndi hjálpa mér“

Sund­kappinn og söngvarinn Már Gunnarsson, sem flestir þekkja úr Söngva­keppni sjón­varpsins, gæti endað á að fá betri sjón þökk sé sprelli. Hann spurði lækni, í gríni, hvort þeir ætluðu ekki að fara að lækna sjúkdóm hans, LCA. Læknirinn svaraði grínlaust að hann myndi redda honum. Már greinir frá þessu á samfélags­miðlum.

„Í gegnum tíðina hefur því af og til verið fleygt fram að vonandi einhvern tímann í fjarlægri framtíð verði hægt að bæta eða lækna sjónina mína. Maður hefur kurteisis­lega brosað, kinkað kolli og sagt já já, án þess að þora að vona eða búa til væntingar fyrr en nú,“ segir Már sem fæddist með sjúk­dóminn LCA sem veldur því að sjón hans fer hrakandi með árunum.

Hann segir svo atvikinu afdrifa­ríka. „Um daginn var ég að syngja á alþjóðlegri augnlækna­ráðstefnu og spurði í gríni einn augn­lækninn- hvenær ætlið þið að fara að lækna þetta LCA. Ég bjóst við gríni til baka enn hann tjáði mér í fúlustu alvöru að gríðar­lega margt væri að gerast, hann myndi hjálpa mér og að við ættum að heyrast betur eftir ráðstefnuna,“ segir Már.

Hann er nú að undirbúa þetta betur. „400 manns með sama augn­sjúkdóm og ég hafa farið í aðgerð sem í 90% tilvikum hefur skilað þeim bættri sjón. Ég er kominn í samband við augnlækna erlendis sem þekkja allar nýustu aðferðir og eru nú að aðstoða mig, fara yfir mín mál og skoða hvað hægt er að gera,“ segir Már.

„Tilfinningarnar eru blendnar þar sem maður vill trúa að þetta gæti gengið en hættan á að verða fyrir vonbrigðum er til staðar. Hvernig sem þetta fer fyrir mig þá er hjarta mitt að springa úr þakklæti fyrir hönd þeirra sem hafa nú þegar öðlast betri sjón og fá að sjá heiminn betur en áður. Nú er búið að brjóta ísinn og ég ætla mér að aðstoða fagfólk eins og ég get við að halda þessari frábæru þróun áfram!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá