Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Breskur ferðamaður drukknaði á gamlárskvöld

„Ferðin átti að marka nýtt upphaf fyrir hann, skref í átt að lífinu, ekki endalok þess.“

Michael Clarke
Michael Clarke Clarke fór í hjarta­stopp í sund­laug­inni Mynd: GoFundMe

Breskur maður lést á gamlárs­kvöldi meðan hann var í fríi í Gambíu en andlátið hefur skiljanlega valdið fjöl­skyldu hans miklum harmi.

Michael Clarke, sem var frá Yorkskíri á Englandi, drukknaði í sundlaug á Mansea Beach hótelinu í Kololi, við Atlantshafs­strönd vestur-afríska ríkisins. Slysið átti sér stað 31. desember.

Að sögn aðstand­enda var enginn starfs­maður eða sund­laugar­vörður á staðnum þegar slysið varð. Clarke, sem var 64 ára, fór í laugina og er talið að hann hafi fengið hjarta­stopp, hugsanlega vegna kalds vatns. Þar sem engin tafarlaus aðstoð barst drukknaði hann í lauginni.

Fjöl­skylda hans vinnur nú að því að flytja lík hans heim til Bretlands og hefur sett upp söfnun á GoFundMe til að standa straum af kostnaði við heim­flutning og útför. Dóttir hans, Victoria Walker, segir að nauðsynlegt sé að safna fé til að koma föður hennar heim.

„Faðir minn hafði glímt við þunglyndi í yfir 20 ár, ástand sem hann bar í hljóði og barðist við af mikilli seiglu,“ segir hún.

Hún bætir við að undan­farna mánuði hafi faðir hennar verið á raun­verulegri batagöngu og lagt áherslu á andlega heilsu sína og að endur­heimta innri ró. Ferðin hafi verið honum afar mikilvæg, enda fyrsta utan­landsferð hans í 20 ár.

„Það sem gerir þennan missi sérstak­lega sársauka­fullan er að ferðin átti að marka nýtt upphaf fyrir hann, skref í átt að lífinu, ekki endalok þess. Fjöl­skyldan er enn að reyna að melta hvernig ferð sem ætlað var til lækningar og hvíldar endaði í svo skyndi­legum harmleik,“ segir Victoria.

Hún segir fjöl­skylduna afar þakkláta fyrir allan stuðning sem geti hjálpað til við að standa straum af kostnaði við útför og heim­flutning líkams­leifa.

„Við leitum til fólks eftir aðstoð, hvert framlag, sama hversu lítið, mun fara beint í að koma honum heim og veita honum þá útför sem hann á skilið,“ segir hún.

Söfnunin á GoFundMe hefur þegar safnað yfir 1.200 pundum frá um 40 einstaklingum og markmiðið er að ná 10.000 dollurum fyrir fjöl­skylduna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár