Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Nýtt blóðpróf gefur Alzheimer-sjúklingum von um snemmbæra greiningu

Mikilvægt skref í barátt­unni við sjúk­dóminn.

Alzheimer blóðpróf.
Alzheimer blóð­próf. Talið er að um 10% fólks 65 ára og eldri séu með Alzheimer í dag. Mynd: Joel Bubble Ben/Shutterstock

Matvæla- og lyfja­eftirlit Banda­ríkjanna (FDA) hefur veitt samþykki fyrir nýju blóðprófi sem ætlað er að greina Alzheimer-sjúk­dóminn. Með prófinu gæti verið hægt að hefja meðferð fyrr með lyfjum sem geta hægt á þróun sjúk­dómsins.

Blóð­prófið var þróað af japanska líftækni­fyrirtækinu Fujirebio, sem einnig starfar í Banda­ríkjunum. Það mælir hlutfall tveggja prótína í blóðinu sem tengjast svokölluðum amyloid-skellum í heilanum, sem eru eitt helsta einkenni Alzheimer-sjúk­dómsins. Fram til þessa hafa þessi einkenni aðeins verið greind með heila­skönnum eða mælingum á mænuvökva.

Marty Makary, einn af yfir­mönnum FDA, segir þetta skref vera mikilvægt og að hann sé vongóður um að bæði ný lyf og greiningar­aðferðir, eins og þetta blóðpróf, geti gagnast sjúklingum vel.

Talið er að um 10% fólks yfir 65 ára aldri séu með Alzheimer í dag, og að sá fjöldi muni tvöfaldast fyrir árið 2050. Makary bendir á að sjúk­dómurinn hafi áhrif á fleira fólk en brjósta- og blöðruhálskirtilskrabbamein samanlögð.

FDA hefur þegar samþykkt tvö Alzheimer-lyf, lecanemab og donanemab, sem beinast að amyloid-skellunum. Þau geta dregið aðeins úr vitrænni hnignun, þó þau lækni ekki sjúk­dóminn. Samt telja margir sérfræðingar að þessi lyf geti skilað meiri árangri ef meðferð hefst fyrr. Þeir segja meðferðina jafnvel geta bætt nokkrum mánuðum af sjálf­stæðu lífi við hjá sjúklingum.

RÚV sagði frá málinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Heimur

Gleypti gaffal fyrir slysni

Tvær tilraunir til að ná gafflinum upp með magasjá báru ekki árangur

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Rússar sagðir undirbúa kjarnorku­vopn á braut um jörðu