Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Jakob Möller hættur hjá VSV eftir 52 ára starf: „Ég var alla vega ekki rekinn, svo mikið er víst“

Jakob Möller
Jakob Möller Mynd: vsv.is

„Ég ákvað í vetur að láta staðar numið núna í sumar og stend við það. Nú er komið að þeim tímamótum og ég ætla að byrja á því að taka mér gott frí,“ segir Jakob Möller sem er hættur hjá VSV og Fisk­iðjunni í Vestmanna­eyjum eftir 52 ára starf.

Á heimasíðu Vinnslu­stöðvarinnar birtist viðtal við Jakob Möller í tilefni þess að hann er að hætta hjá fyrir­tækinu eftir 52 ára farsælt starf. Hér er brot úr viðtalinu.

„Föst vinna verður að baki en ég útiloka ekki að láta sjá mig hér aftur tíma­bundið í vinnu­galla. Ef Vinnslu­stöðina sárvantar mann til að hlaupa í skarðið í loðnu og makríl á næsta ári þá mæti ég. Auðvitað! Enda er alltaf gaman á vertíð.“

Jakob Möller er Hafnfirðingur að uppruna. Hann kom hingað til Eyja fyrst sem peyi að sumarlagi 10 ára gamall og flutti svo alveg með móður sinni árið 1969, 16 ára gamall. Þá varð hann fljótlega sumar­starfsmaður í Vinnslu­stöðinni.

Eftir gos, 1974, varð Jakob fastráðinn starfs­maður Vinnu­stöðvarinnar og hefur unnið þar allar götur síðan þá ef frá er skilinn skammur tími í Fisk­iðjunni. Þetta eru því orðin liðlega 52 ár – heill starfs­aldur – og mestallur tíminn í sama fyrir­tækinu, Vinnslu­stöðinni!

„Ég hef unnið í öllum deildum Vinnslu­stöðvarinnar í landi og verið þar verk­stjóri. Laust fyrir aldamótin tók ég við starfi móttöku­stjóra og bætti síðar við mig verk­stjórn í salt­fisk­vinnslunni. Þegar skipa­afgreiðsla var stofnuð á vegum Hafnar­eyrar, dóttur­félags VSV, varð ég verk­stjóri þar en áfram á launaskrá hjá Vinnslu­stöðinni.

Vinnu­dagarnir eru alltaf langir og oftar en ekki hef ég unnið líka um helgar. Enginn endist þannig áratugum saman nema hafa gaman af því sem hann gerir og að vera á vinnustað þar sem viðkomandi líður vel. Hvoru tveggja á við mig og hvers vegna hefði ég þá átt að flytja mig um set á vinnu­markaði?“

Þjóðhátíð um helgina? Nei!

Þegar nú Jakob vaknar og fer á kreik að morgni sunnu­dagsins 31. júlí 2022 hlýtur tilfinningin að verða sérstök því þá rennur upp síðasti vinnu­dagurinn hans.

– Þú verður sem sagt fjarri góðu gamni í Herjólfsdal um helgina. Ætlarðu ekki að mæta á þjóðhátíð?

„Nei! Vinnslu­stöðin heldur áfram að veiða og vinna makríl hvað svo sem þjóðhátíð líður og síðasta vaktin mín er á sunnu­daginn. Ég skila mínu þá eins og hingað til. Síðan kveð ég bara og held heim á leið.“

– Svo vill til að einmitt á sunnu­daginn kemur stíga rokk­ararnir í Rolling Stones á svið í Stokk­hólmi, allir í fram­línunni komnir langt fram á efri ár. Jaggerinn varð 79 ára á þriðjudaginn var. Hann er tíu árum eldri en þú og hamast enn …

„Hann eldist vel, karlinn, en hefur tæplega þurft að púla mikið líkamlega um dagana.  Vaktirnar mínar voru yfirleitt frá því klukkan sex á morgnana til fimm síðdegis en ég lét það nánast aldrei duga og bætti jafnvel við nokkrum klukku­tímum.

Í janúar 2023 verð ég sjötugur og hefði getað unnið hér lengur en ákvað sjálfur að segja stopp. Ég var alla vega ekki rekinn, svo mikið er víst!

Jagger má hamast á sviðinu áfram mín vegna og það fram á níræðis­aldurinn en ég ætla að tóna niður tilveruna.“

Hægt er að lesa allt viðtalið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp