Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Móðir stökk fram af kletti með börnin sín

Var neitað um hjálp á lögreglustöð

Helen Wright ásamt eiginmanni sínum og tveimur börnum
Helen Wright ásamt eig­in­manni sínum og tveimur börnum Rannsaka við­brögð lög­reglu eftir að móðir fékk ekki aðstoð fyrir harm­leik­inn Mynd: Gofundme

Helena Wright ung móðir frá Suður-Ástralíu svipti sig og sín tvö börn lífi. Helena stökk fram af kletti við Cape Northumberland ásamt tveimur börnum sínum, hinni 23 mánaða gömlu Hazel og þriggja mánaða gömlu Lewis.

Lík Helenu og Hazel fundust í sjónum og voru dregin upp af sjómönnum á staðnum. Leit að ungbarninu Lewis var hætt eftir mikla leit á landi og sjó þar sem lögregla telur engar líkur á að hann hafi lifað af. Leitað er áfram meðfram ströndinni.

Fram kemur að Helena hafi mætt á lögreglu­stöðina í Mt Gambier daginn áður en hún lést og beðið um aðstoð en hafi verið vísað frá. Lögreglan í Suður-Ástralíu sætir mikilli gagnrýni og þrýstingi um að útskýra hvað gerðist á lögreglu­stöðinni.

Vinur fjöl­skyldunnar hóf söfnun á GoFundMe til að styðja við bakið á eftir­lifandi eigin­manni og föður, Brad Wright og til að fjármagna útförina ásamt flugi fyrir fjöl­skyldu Helenu sem býr í Eistlandi.

Lögreglan rannsakar málið sem morð- og sjálfsvíg (murder-suicide) og útilokar að aðrir tengist málinu. Málið er nú í höndum dánar­dómstjóra (coroner).

Dagarnir fyrir harmleikinn

Nágrannar sögðu hana virðast vera „frábæra móður“. Skömmu áður sást hún reglulega úti í garði að ýta dóttur sinni á rólum tímunum saman eða sinna garðinum sínum, sem hún var mjög stolt af. Hún og eigin­maður hennar voru mjög trúuð og mættu samvisku­samlega í kirkju á hverjum sunnudegi og eyddi hún oft miklum tíma í að sauma föt á börnin sín.

Þrátt fyrir að virðast róleg út á við, sögðu þeir sem stóðu henni næst að hún hefði augljós­lega verið þunglynd og átt erfitt uppdráttar. Litli sonur hennar, Lewis, var aðeins þriggja mánaða gamall og benda vísbendingar til þess að hún hafi mögulega glímt við alvarlegt fæðingar­þunglyndi.

Ástand hennar versnaði til muna á sunnu­deginum 26. júlí, þegar hún mætti á lögreglu­stöðina í Mount Gambier augljós­lega í mikilli geðs­hræringu til að biðja um hjálp, en var snúið frá. Morguninn eftir mánudaginn 27. júlí hafði vinur hennar svo miklar áhyggjur að hann hringdi í lögreglu og bað um aðstoða velferðar­eftirlitsins. Þegar lögreglan mætti á heimilið um klukkan 9:30 var engin heima og hún þegar lögð af stað í átt að klettunum.

Ef þú eða einhver sem þú þekkir glímir við alvarlegt þunglyndi, vanlíðan eða sjálfsvígs­hugsanir er mikilvægt að leita hjálpar tafar­laust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall