Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Rjúpnaskyttur skutu úr byssum nærri sumarbústöðum

„Dálítið óþægilegt þegar maður er sestur niður í nota­legheitum í sveitinni að heyra skot­hvelli fyrir utan“

Rjúpur á Svalbarða
Rjúpur á Sval­barða Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint Mynd: Shutterstock

„Það er dálítið óþægilegt þegar maður er sestur niður í nota­legheitum í sveitinni að heyra skot­hvelli fyrir utan og finna svo nýdauða fugla skammt frá húsinu, sjá bíla keyra fram og aftur og menn stara í sjónaukum heim að húsinu.“

Þannig segir Vigfús Hjörtur Jónsson, eigandi sumar­bústaðar í Vopna­firði, frá þeirri óhugnanlegu reynslu sem hann og fjöl­skylda hans urðu fyrir um liðna helgi þegar kyrrðin í sveitinni var rofin af byssu­skotum. Fjöl­skyldan hafði farið í bústaðinn til að njóta friðar og hvíldar í faðmi nátt­úrunnar, en í stað þess urðu þau vitni að skot­veiðum í nágrenninu. Við nánari athugun fundust nokkrar nýdauðar rjúpur rétt við bústaðinn, og Vigfús tók eftir veiði­mönnum sem virtust skjóta fugla beint úr bílum sínum.

„Það var aðili sem ók þarna fram og aftur á veginum skammt frá bústaðnum, beindi sjónauka ítrekað að bústaðnum og skaut svo óhikað í áttina beint úr bíl sínum. Ég geri ráð fyrir að menn viti af því að hér er trjá­lundur þar sem nokkrar rjúpna­fjölskyldur halda sig gjarnan oft yfir allan veturinn. Ég hef reglulega verið að týna upp skothylki á vorin svo þetta er hreint ekki í fyrsta skipti sem verið er að skjóta þarna um slóðir. Þá virðast þeir lítið virða afgirt einkalönd því hér sáust spor víða innan girðingar.“

Vigfús segist undrandi á því að veiðimenn sýni ekki meiri aðgæslu, sérstak­lega þar sem margir dvelji nú yfir veturinn í sumar­bústöðum sínum, oft í skógi eða trjá­lundum þar sem rjúpur leita sér skjóls.

„Ég hélt að það væri nóg pláss annars staðar til að stunda veiðar en niður í byggð. Stór heiðalönd og heilu eyði­dalirnir þar sem engin er byggð og skotveiði hvorki truflar né veldur hættu.“

Lögreglan á Austur­landi segir engar formlegar tilkynningar hafi borist um rjúpna­veiði í sumar­bústaða­löndum á yfir­standandi veiði­tímabili. Hins vegar segir Hjalti Bergmann Axelsson, aðstoðar­yfir­lögreglu­þjónn, að lögreglan hafi virkt eftirlit með slíku meðan á veiðum stendur, og bendir á að það sé strang­lega bannað að hafa hlaðin skotvopn í ökutækjum.

Austur­frétt sagði fyrst frá málinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp