Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Bendir á ósamræmi hjá ráðherra: „Hvort tökum við mark á mánudags-Guðmundi eða þriðjudags-Guðmundi?“

Þingmaðurinn Jóhann Páll.
Þing­mað­ur­inn Jóhann Páll.

þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrum blaða­maðurinn Jóhann Páll Jóhannsson benir á ósamræmi í málflutningi félags- og vinnumála­ráðherra, Guðmundar Inga Guðbrands­sonar.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son ráð­herra

Gagnrýndi Guðmundur Ingi ráðherra í upphafi vikunnar stefnu dómsmála­ráðherra, Jóns Gunnars­sonar, í málefnum útlendinga hér á landi, en Jóhann Páll bendir réttilega á að á mánudaginn hafi sami Guðmundur Ingi virst vera mjög ánægður með útlendinga­stefnu ríkis­stjórnar VG, Fram­sóknar og Sjálfstæðis­flokks:

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra fer fyrir gíf­ur­lega umdeildu útlend­inga­frum­varpi þar sem reka á hátt í 300 útlend­inga frá Íslandi, og eiga flestir að fara til Grikk­lands á göt­una þar

„Á mánudaginn var Guðmundur Ingi hæstánægður með útlendinga­stefnu ríkis­stjórnarinnar og gat hreinlega ekki setið undir gagnrýni á hana. Daginn eftir segist hann vera óánægður með vinnu­brögð og nálgun ráðherrans sem fer með útlendingamál í ríkis­stjórninni.“ ritar  Jóhann Páll um leið og hann vísar í frétt moggans þar sem Guðmundur Ingi sagði meðal annars:

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

„Hvers vegna er það sem Íslend­ing­ar hafa núna síðan árið 2018, og þá minni ég á þá staðreynd að Katrín Jak­obs­dótt­ir tók við sem for­sæt­is­ráðherra árið 2017, í sí­aukn­um mæli tekið á móti fleira og fleira fólki, svo mun­ar hundruðum? Það er já­kvætt. En samt þarf maður að sitja und­ir því að hér sé verið að gera minna en aðrir eða önn­ur lönd.“ sagði Guðmundur Ingi þá, en degi síðar sagði hann eftir­farandi þegar hann var spurður hvort algjör eining væri innan ríkis­stjórnarinnar sem hann ásæti í:

„Nei það er ekki rétt, og ég gerði mjög alvarlegar athuga­semdir við þá vegferð sem ráðherrann er á á ríkis­stjórnar­fundi í morgun.“

Það er því ekki nema von að Jóhann Páll spyrji nú hvað sé í gangi hjá Guðmundi Inga og nefnir einnig að honum þyki orð ráðherrans ekki vera af dýrari gerðinni ef engar aðgerðir fylgi.

„Hvort eigum við að taka mark á mánudags-Guðmundi eða þriðjudags-Guðmundi? Mér líst betur á þann seinni. En orð eru ódýr ef aðgerðir fylgja ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá