Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Logi vill ræða umsókn um aðild Íslands að ESB að alvöru: „Leyfum þjóðinni að segja sína skoðun“

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar í Mann­lífinu með Reyni Trausta­syni, þar sem hann ræðir umsókn um aðild Íslands að ESB.

„Það í rauninni liggur til grund­vallar þings­ályktunar­tillögu sem Samfylkingin, Píratar og Viðreisn leggja fram um að það verði þjóðar­atkvæða­greiðsla um að taka upp þráðinn og halda áfram. Bjarni hefur vissulega talað um þennan pólitíska ómöguleika sem hann kokkaði upp heima hjá sér eftir að 70% þjóðarinnar höfðu 2014 minnir mig lýst því yfir að þau vildu klára samninginn.

En síðan er það auðvitað marklaust vegna þess að við erum með forsætis­ráðherra núna sem leiðir flokk sem er andvígur NATO en þjóðar­öryggis­stefnan er beinlínis nefnd í ríkis­stjórnar­sáttmálanum og hún hefur auðvitað mætt á alla leiðtoga­fundina.

Þannig að ég held að það sé ekkert í veginum til að minnsta kosti að hún og hennar flokkur og jafnvel Framsóknar­flokkurinn taki undir þau sjónarmið með okkur. Katrín sjálf var aðili að svona þings­ályktunar­tillögu fyrir nokkrum árum og mælti fyrir henni. Þar talaði hún einmitt um að málið væri af þeirri stærðar­gráðu að það væri lýðræðismál að leyfa þjóðinni að segja sína skoðun á því.“

Er Logi tilbúinn að taka því ef þjóðin myndi síðan á endanum hafna aðild?

„Já. Það er þá bara komin ný staða upp og þá frestast málið um einhver ár. Sú umræða getur þá endurnýjað sig. Við sjáum hvernig þetta er í Noregi. Þeir reyndu tvisvar og það var fellt tvisvar í þjóðar­atkvæða­greiðslu; aðild að samningi reyndar. Við erum að tala um tvöfalda þjóðar­atkvæða­greiðslu. Við erum fyrst að tala um að þjóðin lýsi því yfir að hún vilji eða vilji ekki halda áfram viðræðum og ef hún vill það þá yrði kláraður samningur og þjóðin aftur spurð.“

Þegar Logi er spurður hverjir honum finnist vera mestu kostirnir við aðild að ESB nefnir hann að hann vilji fyrst halda því til haga að ESB sé frelsis- og friðar­bandalag Evrópu­þjóða þar sem þær leiti leiða til að vinna í sátt og samlyndi og opna til dæmis á viðskipti, för sín á milli og nám. Hann segir að það séu stærstu rökin og kannski ekki rökin sem voru mest rædd á sínum tíma, sem voru efnahags­rökin.

stærstu fyr­ir­tæki lands­ins eru löngu búin að yfir­gefa krón­una og gera öll upp í evru.

„Efnahags­rökin eru marg­vísleg. Það er auðvitað aðild okkar að ákvörðunum, það er aðild okkar að þessum risastóra 500 milljóna markaði og það er auðvitað möguleiki á að taka upp stóra og stöðuga mynt sem sveiflast ekki eins og lauf í vindi. Bara í dag er það til dæmis þannig að kostnaður vegna vaxta­greiðslna hjá fólki og fyrir­tækjum er um 200 milljónir. Þau sem eru á móti þessu segja á móti að það sé svo hagstætt að hafa svona litla mynt að það sé hægt að stýra henni og fella gengi og láta það falla hvernig sem menn gera það. En þá er allt í lagi að hafa það í huga í fyrsta lagi að það er alltaf almenningur sem blæðir þegar krónan veikist. Og stærstu fyrirtæki landsins eru löngu búin að yfirgefa krónuna og gera öll upp í evru.“ Logi nefnir líka nýja heimsmynd þar sem öryggis- og varnarmál og friðar­faktorar spila inn í.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá