Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Endurfjármögnun fasteignalána: „Aðstæður flóknar fyrir neytendur“

Mynd/ twenty20photos, Envato Elements
Mynd/ twenty20photos, Envato Elements

Fréttir um aukna verðbólgu og hærri stýri­vexti birtast nær daglega hér á landi og frá öðrum löndum. Heimilin eru óneitanlega farin að finna fyrir áhrifum þess í formi hærra matvöru­verðs og breytingum vaxta á neyslu- og íbúða­lánum.

Í frétt á dr.dk bendir Neytenda­ráðið í Danmörku að setja þurfi spurninga­merki við endur­fjármögnun á íbúða­lánum. Fasteigna­eignendur í Danmörku hafa líkt og hér á landi fundið fyrir hressilegum vaxta­hækkunum. Til dæmis hafa lán með föstum vöxtum hækkað frá 1% upp í 5% á síðastliðnu ári.

Bankinn tekur alltaf sitt

Morten Bruun Pedersen, aðal­hagfræðingur Neytenda­ráðsins í Danmörku bendir á að bankarnir hafa hag í því að lántakar breyti lánunum í formi lántöku­gjalds og uppgreiðslu­gjalds. Á meðan neytandinn taki á sig kostnaðinn í framan­greindum gjöldum auk vaxtahækkunnar. Hann er einnig hræddur um að bankarnir sinni ekki nægilega vel upplýsinga­gjöf til viðskipta­vina sinna.

Neytendasamtökin á Íslandi

Lands­lagið í lána­möguleikum þar ytra er frábrugðið þó margt svipi til og hér á landi. Mannlíf hafði samband við Neytenda­samtökin á Íslandi og spurt var hvort viðlíka úttekt hafi verið gerð til að upplýsa neytendur um stöðuna hér á landi. „Nei, við höfum ekki haft tækifæri til þess, því miður,“ svarar Breki Karlsson, formaður Neytenda­samtakanna, og bendir á að aðstæðurnar séu flóknar fyrir neytendurnar að taka ákvarðanir um.

„Þrátt fyrir að það sé svipuð verðbólga þar og hér þá eru vextir bæði sögulega lægri þar og líka stöðu­leiki mun meiri til lengri tíma.“ bendir Breki á um samanburð aðstæðna í Danmörku og Íslandi.

Þróun vaxta

Núna í júní eru vextir á óverðtryggðu íbúðaláni með föstum vöxtum, hjá Lands­bankanum, 6.90%, miðað við 70% veðsetningu, og hafa þeir samkvæmt sögulegri vaxta­töflu Lands­bankans og hækkað um 2,7% á u.þ.b. 12 mánaða tímabili. Hér má sjá töflu um þróun fastra útláns­vaxta hjá Lands­bankanum.

Í maí síðastliðnum voru vextir á óverðtryggðu íbúðaláni með breyti­legum vöxtum, hjá Lands­bankanum, 5.40% og höfðu hækkað um 1.9 prósent á 11 mánaða tímabili. Ef litið er yfir lengri tíma eru vextirnir í maí 2022 þeir sömu og júlí 2019. Hér má sjá töflu um þróun breytilegra útláns­vaxta hjá Lands­bankanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá