Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Salma Hayek fagnar sextugsafmælinu með nektarmyndum

Sextug og sexý

Salma Hayek nakin í sjónum á stórafmælinu
Salma Hayek nakin í sjónum á stóraf­mæl­inu Mynd: Instagram/Selma Heyak

Leikkonan Salma Hayek fagnaði stór­afmæli á dögunum þegar hún gekk í raðir sextugra. Í tilefni dagsins deildi hún djarfri nektar­mynd á Instagram þar sem hún syndir nakin í sjónum og skrifaði einfald­lega: „60 og þakklát.“ Myndirnar vöktu gríðar­lega athygli og rigndi hamingju­óskum yfir stjörnuna frá aðdáendum og samstarfs­fólki í Hollywood, þar á meðal frá París Hilton, Lindsay Lohan og Vanessu Hudgens.

Hayek, sem var ein helsta kyntákn tíunda áratugarins eftir leik sinn í myndum á borð við Dogma og From Dusk Till Dawn, þykir halda ótrúlegum æskuljóma. Hún prýddi meðal annars forsíðu sundfata­blaðsins Sports Illustrated á síðasta ári.

Margir velta fyrir sér hvernig leik­konunni tekst að halda velli og hefur hún verið einstak­lega opin með sínar aðferðir í gegnum árin. Hér eru helstu leyndar­málin á bak við útlit og heilsu stjörnunnar:

Hafnar Botoxi en treystir á tæknina


Þegar kemur að andlits­lyftingum og húðvörum fer Hayek óhefðbundnar leiðir miðað við margar stjörnur í Hollywood. Hún fullyrðir að hún noti hvorki Botox, fylliefni né öflugar húðflögunaraðferðir (chemical peels). Þess í stað treystir hún á nútíma­tækni og notar reglulega útvarps­bylgju- og örtíðni­tæki til þess að stinna húðina og draga úr hrukkum.

Þá dásamar hún náttúru­lega mexíkóska barkar­þykknið Tepezcohuite. Þetta efni er jafnan notað í heima­landi hennar til að meðhöndla brunasár en Hayek fullyrðir að það endurnýi húðina með ótrúlegum hætti.

Enginn tími fyrir ræktina – Dansar á hlaupabrettinu


Hayek viðurkennir fúslega að hún hafi ekki agann í að mæta í ræktina á hverjum morgni, enda vinnu­dagarnir oft allt að tuttugu tímar. Leyndarmál hennar liggur í líkams­stöðunni. Hún vinnur með sérfræðingi í London sem kenndi henni að halda líkamanum þannig að vöðvarnir séu virkir allan daginn – jafnvel á meðan hún burstar tennurnar.

Hún stundar einnig svokallað endur­heimtandi jóga (restorative yoga) þar sem áherslan er á að tóna vöðvana án þess að spenna þá. Þegar hún notar hlaupa­bretti fer hún heldur ekki hefð­bundnar leiðir; í stað þess að hlaupa kýs hún að dansa á brettinu.

Nudd er leynivopnið og engir megrunarkúrar


Til að halda vöðvunum stinnum og heil­brigðum treystir Hayek blindandi á nudd. Leyni­vopnið hennar er nuddari sem býr í Japan en heimsækir London reglulega. Hayek segir að nuddið súrefnis­væði húðina, örvi blóð­rásina og vinni krafta­verk á sogæfa­kerfi andlitsins.

Að lokum segist leikkonan ekki neita sér um neitt þegar kemur að mat. „Ég er ekki hrifin af megrunar­kúrum og ég er hreinlega ekkert góð í þeim,“ segir afmælis­barnið hressa að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs