Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Þegar Hemmi Gunn mætti ekki: „Þetta var um páska og ég orðinn yfirkeyrður“

Það var erfitt að ná símtali við Hemma á þessum árum, það var alltaf á tali.
Það var erfitt að ná sím­tali við Hemma á þessum árum, það var alltaf á tali.

Það eru páskar 1994 og vinsælasti þáttur Íslands að hefjast í beinni útsendingu. Þjóðin er nánast öll sem límd við skjáinn en þessi þáttur verður öðruvísi en þeir hafa verið því þátta­stjórn­andinn mætir ekki. Þess í stað biður Vala Matt áhorf­endur í sal og heima í stofu velkomin og tilkynnir að hún muni hlaupa í skarðið fyrir þátta­stjórn­andanum í þetta skiptið. Hemmi Gunn var fallinn.

Það var bara einn Hemmi Gunn.

Í næsta þætti tóku áhorf­endur andköf því aftur virtist hann fallinn en Unnur Steinsson birtist í stjórnanda­sætinu. Síminn hringir og á línunni er Hemmi Gunn. Segist hann vera hátt uppi í augna­blikinu og spurði Unni hvort hún gæti leyst hann aðeins af. En hann reyndist ekki vera fallinn, heldur var hann staddur í flugvél á leið í fallhlífa­stökk. Kom hann svo svífandi inn í þáttinn, öllum til mikillar gleði.

Birgir Guðmundsson ritaði meðal annars um fallhlífa­stökk Hemma í Tímanum á sínum tíma:

Trúlega eru flestir sammála um að Hemma Gunn hafi tekist vel upp í þættinum sínum síðasta vetrardag. Margir voru forvitnir að sjá hvernig hann myndi fleyta sér yfir vandræða­lega augna­blikið í upphafi, þegar þjóðin beið með öndina í hálsinum eftir útskýringu frá honum á forföllunum í næst­síðasta þættinum. Flestir töldu víst einsýnt að Hemmi kæmi með eitthvað meira en viðtalið í Dagsljósi þar sem hann gerði, af aðdáanlegu hispurs­leysi, grein fyrir veikleika sínum gagnvart áfengi.

Og Hemmi sveik engan. Þegar Unnur Steinsson birtist í stjórnanda­sætinu en ekki Hermann tók áhorfenda­skarinn andköf fyrir framan sjónvarps­tækin og spurði: „Er Hemmi dottinn aftur?“ En svo var auðvitað ekki, þetta var bara létt grín hjá Hemma, sem fékk menn undir eins til að fyrirgefa fyrri forföll með því að mæta á svæðið með enn stórfenglegri hætti en áður — hann sveif inn í þáttinn úr háloftunum fyrir ofan höfuð­borgina í fallhlíf og aubvitað í beinni útsendingu.

Í Helgar­blaði DV árið 1997 birtist viðtal við Hemma Gunn sem þá hafði verið tekinn af dagskrá Rúv með Á tali hjá Hemma Gunn. Þar ræddi hann meðal annars um það þegar hann mætti ekki.

Hemmi Gunn með epískt bindi.

Þegar hann mætti ekki

Hemmi hefur til margra ára ekki verið að fela þá staðreynd að hann eigi við áfengis­vandamál að stríða. Hefur ólíkt mörgum öðrum getað tjáð sig opinskátt um áfengið en fyrir vikið verið stöðugt á milli tannanna á fólki. Ótrúlegustu sögur fóru t.d. á kreik þegar hann mætti ekki í einn þáttinn og Vala Matt var fengin í hans stað. „Ég var búinn að vera með um hundrað þætti í átta eða níu ár þegar kemur þáttur sem ég mæti ekki til
leiks. Það þætti á flestum stöðum ekki tíðindum sæta ef maður mætir ekki í vinnuna í einn dag á tæpum tiíu árum. Þetta var um páska og ég orðinn yfir­keyrður. Var búinn að undirbúa þáttinn allan þegar ég gleymdi mér og fékk mér í glas. Ég var ekki með það góða heilsu til að stjórna þessum þætti og Vala hljóp í skarðið af röggsemi og myndar­brag. Sögurnar fóru af stað og ég átti að hafa gert ótrúlegustu hluti, sem því miður bitna á börnunum mínum. Ég held að ég sé fyrsti maður sem þurfti að mæta í Dagsljós til að svara fyrir það að hafa drukkið vín. Það gerði ég eingöngu barnanna minna vegna því þau voru farin að fá ótrúlegustu sögur frá foreldrum skóla­systkina sinna. Þau vora óvarin en ég orðinn brynjaðri.

Eðlilega hefði ég átt að fá gula spjaldið fyrir að mæta ekki til leiks en síðdegis þann dag sem þátturinn var sýndur fékk ég risa­blómvönd með undir­skrift hvers einasta starfs­manns Sjón­varpsins með óskum um skjótan bata. Þetta var hlutur sem ég kunni að meta,“ segir
Hemmi og hugsar hlýtt til fyrrum
samstarfs­manna sinna.

Sjá má brot úr þættinum sem Vala Matt stýrði í fjarveru Hemma hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá