Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Sunna var flogaveik áður en hún kynntist CBD:„Var alltaf að fá tvö, þrjú stór köst á mánuði“

Sunna dóttir Sigurðar
Sunna dóttir Sigurðar Mynd: Aðsend

Hamp­félagið stendur á bakvið HAMPKASTIÐ sem eru umræðu­þættir í hljóði og mynd og fjalla að sjálfsögðu um HAMP.  Þátta­stjórnendur eru stjórnar­menn Hamp­félagsins Sigurður Hólmar og Þórunn Þórs. Gunnar Dan Wiium sér um úrvinnslu og frétta­skrif og Sigfús Óttarsson um tæknimál.  Gestir þáttarins verða bæði íslenskir og erlendir sérfræðingar á sínu sviði um nýtingu hamps.

Nýjasti gestur Hamp­kastsins er Sigurður Hólmar Jóhannesson sem er formaður Hamp­félagsins og eigandi Ozon sem rekur Hempliving og Gott CBD. Sigurður er einnig faðir Sunnu Valdísar sem greindist sem ungabarn með einn sjaldgæfasta tauga­sjúkdóm sem fyrir­finnst, AHC. Líkurnar á að greinast með sjúk­dóminn er 1 á móti milljón.

Sigurður umkringdur kanna­bis-plöntum.

Siggi eins og hann er kallaður segist ekkert hafa verið að spá í neinu hvað viðkemur hampi eða Kannabis fyrstu fjörutíu ár ævi sinnar. Eftir að dóttir hans Sunna Valdís greindist með sinn sjúkdóm var þeim sagt að með árunum myndi sjúk­dómurinn batna en það varð svo ekki raunin, hún í raun versnaði bara eftir því sem árunum leið. Engin lækning eða lyf voru í boði fyrir sjúkdóm Sunnu og fór því Siggi á stúfana í leit að einhverju sem gæti linað þjáningar hennar. 

Í kringum 2012 þá fer Siggi að kynna sér hvað væri í boði á pubmed.gov, þar fann hann eitthvað sem hann hafði aldrei heyrt um áður en það var CBD, og í því samhengi fór hann að sjá það aftur og aftur nefnt í sambandi við floga­veiki. Eitt af aðal einkennum AHC sjúk­dómsins eru einmitt flogaköst og þar af leiðandi endaði hann alltaf þar hvað varðar möguleg úrræði. Hann viðurkennir að hafa verið ragur við að fara þessa leið.

„Þegar Sunna sjö ára, sem var 2013, fór hún að fá flogaköst, sem hún hafði ekki fengið áður. Þá mundi ég eftir þessu CBD sem var alltaf verið að tala um að gæti hjálpað gegn floga­köstum. Ég fór eitthvað að skoða þetta betur en var samt svolítið ragur við þetta af því að kannabis fyrir mér var bara eiturlyf,“ sagði Siggi og sagði að þegar hann hafi verið í grunn­skóla hafi honum verið kennt að kannabis væru bara eiturlyf. „Þú tekur kannabis í dag og kókaín á morgun og svo ertu farin að sprauta þig á þriðja degi,“ sagði Siggi.

Árið 2017 voru floga­köstin hennar Sunnu orðin tíð og lífs­hættuleg í hvert skiptið. Siggi tók ákvörðun í kjölfarið að ferðast til Banda­ríkjanna þar sem hann heimsótti fyrirtæki sem heitir Charlotte´s Web sem hefur verið leiðandi í ræktun á THC-fríum hampi. Siggi fór með eigendum þessa fyrir­tækis í gegnum allt ferlið varðandi ræktun og vinnslu hampsins og að þessari heimsókn lokinni fer Siggi aftur heim til Íslands og tók hann með sér nokkrar flöskur sem hann byrjaði að gefa Sunnu. Á aðeins nokkrum vikum fækkaði floga­köstunum þar til að þau hættu alveg og hefur hún verið laus við floga­köstin síðan. „Það magnaðasta við þetta er að hún hefur ekki fengið eitt einasta kast síðan. Hún var alltaf að fá tvö, þrjú stór köst á mánuði áður.“

Siggi og Sunna á góðum degi.

Sigurður nefnir í þessu samhengi vanmátt hins hefð­bundna heilbrigðis­kerfis á svo mörgum sviðum og segir hreinlega að sé verið kerfis­bundið að brjóta á fólki með kvilla með óígrunduðum lyfja­gjöfum sem oft á tíðum gera meiri skaða en gagn. Hann segir að ECS kerfið sé almennt ekki kennt í háskólum í heiminum í dag sem er í raun alveg galið vill hann meina. 

Þegar hann talar um ECS kerfið er átt við Endocannabinoid system, skammstafast sem ECS. Á íslensku myndi það þýðast sem Endokannabínóðakerfið og því skammstafast sem EKK. Kerfið sem um ræðir er flókið merkja­kerfi frá frumunum sem samanstendur af endókannabínóðum, ensímum og kannabínóða-móttökum, sem hafa stjórn á ýmissi starfsemi í manns­líkamanum. Ber að nefna í þessu samhengi hjálp við svefn, lund, matarlyst og meltingu, minni, bólgu­myndun, húðvandamál, endur­heimt og frjósemi. Þessar flóknu tengingar finnast í heilanum, vefjum og kirtlum og í öllum aðal líffærum okkar. 

Kerfið var uppgötvað af Tékkneskum vísinda­manni árið 1992 í Ísrael og við þessa uppgötvun komust vísinda­menn að því að líkaminn fram­leiðir sína eigin kannabínóða í marg­víslegum tilgangi sem kerfið, ECS er hannað til að taka á móti. 

Siggi talar um hvernig viðhorf fólks í samfélaginu hafa breyst stórkost­lega og þá einna helst eftir stofnum Hamp­félagsins árið 2019. Hann segir að mikil vitundar­vakning hafi átt sér stað þó svo að hann vilji einnig meina að langt sé í land og þá einna helst í sambandi við löggjafir og reglu­gerðir og er þörfin brýn hvað varðar aðgerðir að hálfu löggjafa­valdsins. 

Siggi talar um byrjenda ár Hamp­félagsins og segir að það hafi ekki verið neitt mál að stofna sjálft félagið og fá kenni­töluna en að það hafi verið smá ævintýri að þegar koma að því að stofna banka­reikning. Hann labbaði inn í Lands­bankann og segist ætla stofna banka­reikning á nýtt félag, afgreiðslu­konan sagði það bara sjálfsagt og tekur við papp­írunum. Hún gjóir eitthvað yfir pappírana og verður hálf skrítin á svipinn og fer afsíðis með pappírana og kemur svo löngu seinna með pappírana og segir, “nei því miður, við getum ekki stofnað viðskipti við ykkur”. Siggi spurði hana hvernig stæði á því og hún byrjaði bara að stama og sagði að þau væru ekkert að standa í neinu svoleiðis. Svo þannig fór að Lands­bankinn vildi ekki stofna til viðskipta við Hamp­félagið sem eru bara hefð­bundin félaga­samtök. En þessi saga er einmitt lýsandi fyrir fordómana sem hamparar hafa mátt að verða fyrir á leið sinni. 

Siggi segist alveg skilja út á hvað þessir fordómar snúast um, hann hafi sjálfur þurft að glíma við þessar hugmyndir og fordóma í langan tíma áður en hann svo tók ákvörðun um að gefa dóttur sinni olíu.

Sunna

Hann segir að margt sé búið að breytast og í raun sé staðan sú að ræktun á iðnaðar­hampi er lögleg en Ísland sé að bíða eftir Evrópu­reglugerð í málum hampsins til þess að leyfa CBD sem matvæli. Honum finnst það skrítið þar sem við séum ekki í Evrópu­sambandinu og gætum því búið til okkar eigin löggjöf og staðla. Ef við horfum til Evrópu sjáum við í málum sem snúa að krabbameins­meðferðum þjóðir eins og Þýskaland þar sem krabbameins­sjúklingum er ávísað kannabis samhliða hefð­bundnum krabbameins­meðferðum og með mjög góðum árangri. Sigga finnst einmitt við hér á Íslandi ekki nógu góð í að nýta okkur reynslu annarra stórþjóða sem virðast vera 20-30 árum undan í umgengni við kannabis. 

Í þessu ljósi má benda á að Þýskaland ætlar að lögleiða allan kannabis árið 2024.

Mögu­leikar plöntunar segir Siggi vera óendanlega, því meira sem hann kynnir sér plöntuna því meira uppgötvar hanna að í henni felast gríðar­legir mögu­leikar hvað varðar líðheilsu á öllum sviðum sem og auðvitað klárt hráefni fyrir allskonar mannvirki og aðra hluti sem fram­leiddir eru úr hampi út um allan heim. 

Siggi starfaði sem flug­umferðar­stjóri í 27 ár og elskaði þá vinnu. Örlögin tóku yfir og álagið að annast svona rosalega veikt barn tók sinn toll. Hann segist hreinlega hafa rekist á vegg og neyddist til að skilja við sinn farsæla feril sem flug­umferðar­stjóri og leita á önnur mið. 

Ásamt því að stofna Hamp­félagið saman með öðru góðu fólki rekur hann fyrir­tækið Ozon ehf sem býður uppá hampvörur með vöru­merkjunum Hempliving og gæða­stimplinum Gott CBD. 

Ozon flytur inn og selur hampvörur um allt land í apótekum og verslunum. 

Samhliða því stofnaði hann fyrir­tækið Mobility sem sérhæfir sig í hjálpar­tækjum fyrir fatlaða sem hann komst að eftir áralagt brölt með dóttir sinni að voru einfald­lega ekki í boði á íslenskum markaði. 

Hjálpar­tækin sem nefnir hann í því samhengi hjóla­stóla sem voru bæði allt of dýrir og úrvalið frekar takmarkað og því vildi hann breyta og úr því spratt Mobility sem selja í dag fjölbrett úrval af hjálpar­tækjum á verðum sem aldrei hafa verið í boði fyrr á Íslandi. 

Siggi stofnaði einnig með góðu fólki Góðvild sem er góðgerða­félag sem vinnur fyrir langveik og fötluð börn á Íslandi og hefur Góðvild gefið af sér gríðar­lega orku til þessa mála­flokks sem virtist alltaf mæta afgangi í samfélags­umræðu. Til að stuðla að vitundar­vakningu í þeim efnum setti Góðvild af stað sjónvarps­þætti sem heita Spjallið með Góðvild þar tekið var vel utan um þennan málaflokk. Teknir voru upp 60 þættir sem nálgast má á Vísi, Youtube og godvild.is þar sem spjallað var við foreldra lang­veikra barna, þingmenn, ráðherra, sérfræðinga og börnin sjálf og þeim gefin rödd sem fram að þessu hafði ekki fengið að heyrast. 

“Ég hvet fólk til að skoða plöntuna, fræðast um hana. Kíkja inn á Hamp­félagið og skoða fyrirestrana sem voru haldnir af sérfræðingum á ráðstefnu Hamp­félagsins árið 2019.”

Fjöldin af fólki sem mætti í troðfullt hús í stóra salnum á Grand hótel þegar ráðstefnan var haldin sýndi okkur það hvað margir það eru sem hafa áhuga á plöntunni. Síðan þá hefur áhugin samt sem áður bara verið að vaxa og fyrir­spurnir berast daglega til Hamp­félagsins frá krökkum í mennta­skólum og háskólum sem eru að vinna hin og þessi verkefni tengd hampinum og því má búast við veldis­auknum áhuga á hampinum og þeim 130 þekktra Kannabínóða með nýrri upplýstri  kynslóð og það vekur upp von um þær nauðsyn­legu breytingar hvað varðar líðheilsu og náttúrlegra lausna við hinum og þessum kvillum sem hið hefð­bundna heilbrigðis­kerfi hefur oft á tíðum mistekist að leysa.

Í lokin segir Siggi að nauðsynlegt þyki að lögleiða CBD sem og alla kannabínóðana sem fæðu­bótarefni en ekki bara sem húðvöru. Hann segir að það sé áherslumál og í raun óumflýjanlegur veruleiki sem ekkert fær spornað við.

Þetta upplýsandi viðtal má sjá á spil­aranum hér fyrri neðan auk þess að finnast á öllum helstu streymis­veitum.  Einnig má benda á auðvelt er að skrá sig í Hamp­félagið á hampfelagid.is og fá þar reglu­lagar tilkynningar á því sem er að gerast í hamp­bransanum á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt