Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Eric Idle segir að raunveruleikaþáttur hafi breytt lífi hans: „Ég hafði ekki sagt neinum frá þessu“

Grín­goðsögnin Eric Idle tók nýlega þátt í raun­veruleika­keppninni The Masked Singer en hann segir þá reynslu hafa verið virkilega þýðinga­mikla fyrir sig en hann sigraðist nýlega á bris­krabbameini.

ETonline sagði frá því í dag að Monthy Python stjarnan hafi opnað sig í fyrsta skipti um krabba­meinið við ET rétt áður en þátturinn var sýndur. Í þættinum syngur frægt fólk syngur í búningum þannig að það er óþekkjanlegt. Svo dettur einn keppandi af öðrum út úr keppninni og þarf þá að taka af sér grímuna. Idle sem var í gervi brodd­galtar, sagði frá því hvaða áhrif þátturinn hafði á líf hans.

„Þetta var allt mjög Zen. Mér líkaði mjög við þetta. Þetta breytti lífi mínu ef ég á að vera hrein­skilinn,“ sagði Idle og hélt áfram. „Ég var með bris­krabbamein en var svo heppinn að lifa það af, það greindist snemma. Ég fór í stóra aðgerð á Cedars sjúkra­húsinu og þeir björguðu lífi mínu og ég hafði ekki sagt neinum frá þessu.“

Samkvæmt hinum 79 ára Idle var hann í læknis­heimsókn eftir aðgerðina og sagði hann: „ég byggði upp kjarkinn til að spyrja hann hvað ég ætti langt eftir.“

„Hann sagði, „Tja, að minnsta kosti tíu ár. Þú ert í góðu formi, þú ert heil­brigður, krabba­meinið er farið“. Og ég hafði í raun ekki búist við því,“ rifjaði Idle upp. „Þannig að ég hugsaði „Hér er tækifæri mitt til að gera eitthvað gott. Núna verð ég að segja frá krabba­meininu, segja fólki að ég hafi lifað af og deila þeirri reynslu“.“

Idle gekk til liðs við góðgerða­hópinn Stand Up to Cancer og saman stofuðu þau Bright Side sjóðinn en nafnið er tekið frá eitt af klassísku lögum Idle úr the Monthy Python kvik­myndinni The Life of Brian, „Always look On the Bright Side of Life“.

„Við ætlum að safna pening sérstak­lega fyrir rann­sóknir og snemm­búnar prófanir til að hjálpa fólki að lifa þetta af,“ útskýrði Idle. „Og þetta var svolítil hugljómun fyrir mig og það var agljörlega vegna reynslu minnar í The Masked Singer og ég er þeim mjög þakklátur.“

Í þættinum steig Idle á svið í gervi risa brodd­göltur en þar tók hann skemmtilega og kraft­mikla útgáfu af Bítla­laginu „Love Me Do“ sem gladdi áhorf­endur, þó hann hafi að lokum þurft að taka af sér grímuna.

„Fram­leiðendurnir sögðu „Þetta er mjög kjána­legur þáttur“ og ég svaraði „Jæja, ég held að ég hafi verið í nokkrum kjána­legum þáttum um ævina“,“ sagði Idle í ET viðtalinu og hló. „Þannig að mér fannst þetta eiga mjög vel við mig. Þetta var eitt af því sem höfðaði til mín.“

„Öll persónu­einkenni þín voru falin. Um leið og ég samþykkti að vera í þættinum var ég Brodd­göltur,“ deildi Idle með frétta­manni ET og hélt áfram: „Allir kölluðu mig bara Broddgölt. „Góðan daginn Brodd­göltur, hæ Brodd­göltur, hvernig hefurðu það Brodd­göltur?“,Mér fannst það alltaf jafn fyndið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt