Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Umbrot í fjölskyldu Camillu: Skilnaður, trúlofun afa og nýtt samband pabba

Nóg um að vera í nærumhverfi Camillu Rutar
Nóg um að vera í nærum­hverfi Camillu Rutar

Það er mikið um að vera í fjöl­skyldu Camillu Rutar Rúnars­dóttur, áhrifa­valds, þessa dagana. Umbrot eiga sér stað í þremur ættliðum: Skilnaður hennar sjálfrar, trúlofun afa og svo skilnaður og nýtt samband pabba.

Það er sannarlega engin lognmolla þessa dagana í lífi Camillu Rutar. Hún tilkynnti um skilnað sinn og Rafns Hlíðkvist Björgvins­sonar á Instagram síðastliðinn mánudag. „Það er sem sagt komið að því að þessi yndislegi maður, barns­faðir minn og besti vinur, ætlar að skila mér,“ grínaðist Camilla þar sem þau birtust saman í hringrásar­veitunni á miðlinum til þess að tilkynna að þau ætluðu sér að fara sitt í hvora áttina.

Parið hefur verið saman í 13 ár og á tvo syni. Camilla Rut sagði í tilkynningunni að þau hefðu byrjað saman sem bestu vinir og hættu nú saman sem bestu vinir.

Camilla Rut Rún­ars­dóttir

Daginn eftir kom það síðan fram í fjöl­miðlum að afi Camillu, Gunnar Þorsteinsson sem yfirleitt er kenndur við Krossinn, væri búinn að trúlofa sig konu að nafni Helga Lúthers­dóttir. 24 ára aldurs­munur er á parinu en Gunnar hefur tvisvar verið giftur áður.

Gunnar er faðir Jóhönnu, móður Camillu. Á þeim bænum hafa sömuleiðis verið vendingar. Þannig skildu foreldrar Camillu, Jóhanna Gunnars­dóttir og Rúnar L. Ólafsson, fyrir nokkru. Rúnar, fyrrum framkvæmda­stjóri bíla­leigunnar Green Motion og núverandi sölumaður og eigandi bíll.is, er kominn í samband með konu að nafni Bergrún Lind Jónasdóttir. Bergrún er íþrótta­kona og er árinu eldri en Camilla, dóttir Rúnars. 21 árs aldurs­munur er því á parinu.

Parið Bergrún og Rúnar. Mynd/skjá­skot

Bergrún er systir Krist­bjargar Jónasdóttur, afreks­konu í fitness og eiginkonu Arons Einars Gunnars­sonar, fyrrum landsliðs­fyrirliða í knatt­spyrnu.

Nýja parið, þau Bergrún og Rúnar, skelltu sér nýverið í frí saman og nutu lífsins á Spáni. Mannlíf óskar parinu innilega til hamingju með lífið og ástina!

Mynd/skjá­skot Instagram
Mynd/skjá­skot Instagram
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt