Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Leslie Jordan lést í bílslysi: „Bætti upp skort á sentimetrum með gjafmildi sinni og stórfengleika“

Leslie Jordan
Leslie Jordan Mynd: Instagram-skjáskot

Leikarinn og grín­istinn Leslie Jordan er látinn. Lést hann í gærmorgun í umferða­slysi í Hollywood. Var hann einungis 67 ára gamall.

„Heimurinn er töluvert dekkri staður núna án ástar og ljóss Leslie Jordan. Ekki var hann aðeins hæfileika­búnt og yndi að vinna með, heldur veitti hann þjóðinni tilfinninga­legan griðastað á einum erfiðustu tímum hennar,“ skrifaði blaða­fulltrúi leikarans í yfir­lýsingu sem hann sendi á ET. „Hann bætti upp skort á sentimetrum með gjafmildi sinni og stórfeng­leika sem sonur, bróðir, lista­maður, grínisti, maki og manneskja. Að vita að hann kvaddi þennan heim á toppi bæði ferils síns og persónu­lega, er eina huggunin sem maður hefur í dag.“

Slysið

Jordan var að keyra á mánudags­morgun þegar talið er að hann hafi orðið fyrir einhverskonar heilsu­neyðar­tilfelli og keyrt á hús, samkvæmt TMZ, sem sagði fyrst frá andlátinu.

Í kjölfar slyssins gaf lögreglan í Los Angeles svohljóðandi upplýsingar til ET: „Við erum með eitt andlát vegna umferða­slyss sem varð á mánudags­morgun um klukkan 9:30, hjá Cahuenga Boulevard og Romaine Street. Full­orðinn karlmaður var úrskurðaður látinn á vettvangi.“

Samkvæmt vitni sem ræddi við ET þá sá hann sjúkra­liða reyna að endur­lífga Leslie, en það var greinilegt að það var um seinan.

Annað vitni sagðist í samtali við ET hafa séð Jordan sækja lyfseðil í apótek í Vestur-Hollywood. Sá hann Jordan yfirgefa apótekið haldandi á tveimur pokum með lyfseðil­skyldum lyfjum.

Ferillinn

Árið 2006 vann Jordan Emmy-verðlaun fyrir hlutverk sitt sem Beverley Leslie í gaman­þáttunum Will & Grace. Þá var hann einnig þekktur fyrir hlutverk sín í þáttum á borð við Boston Legal, Reba, Desperate Houswives, American Horror Story og Call Me Kat.

Þá lék Jordan einnig í myndum á borð við The Help og Sordid Lives. Einnig lék hann í leikritum á borð við My Trip Down the Pink Carpet og The Lucky Guy.

Instagram-frægð

Í Covid-faraldrinum sló Jordan rækilega í gegn með skemmtilegum mynd­böndum sínum sem hann tók upp heima hjá sér og birti á Instagram-reikningi sínum. Nýjasta mynd­bandið er frá síðasta sunnudag, þar sem hann sést syngja við undirleik Danny Myrick.

Enn eitt vitnið sagði ET frá því að hafa rekist á Jordan á Starbucks í síðasta mánuði. Vitnið sagði leik­aranum að Instagram-mynd­böndin hefðu glatt sig mjög og sagði að Jordan hefði ekki getað verið ljúfari og þakklátur fyrir hrósið. Sagði hann að Jordan hefði verið í góðu skapi og ekki hefði verið að sjá að heilsa hans væri slæm.

Á Instagram-reikningi leikarans birtist ljósmynd af honum og eftir­farandi texti, þegar andlátið hafði verið tilkynnt í fjöl­miðlum:

„Ástin og ljósið sem Leslie dreifði mun aldrei hverfa og við bjóðum ykkur að deila minningum um þá ást og hugga hvort annað á þessum erfiða tíma. Næstu daga munum við koma með sýnishorfn af því verkefni sem Leslie var mjög stoltur af og var spenntur að deila með heiminum.“

Blessuð sé minning Leslie Jordan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn
Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“