Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor á Hólum: „Vil sjá rannsóknarmiðstöð íslenska hestsins rísa á Hólum“

„Ég fann fyrir svo mikilli tilhlökkun áður en ég byrjaði og áður en ég mætti og það hefur ekkert dvínað. Þannig að þetta er bara mjög skemmtilegt. Það er gott fólk þarna, mikil hefð, mikil saga, mikil menning og nátt­úrlega er skólinn á margan hátt mjög sérstakur,“ segir Hólm­fríður Sveins­dóttir í hlaðvarps­viðtali við Guðna Ágústsson þar sem þau ræða meðal annars um Háskólann á Hólum og nám og fyrri störf rektorsins en hér fyrir neðan er minnst á Hóla en annars fara þau um víðan völl í viðtalinu. Hólm­fríður tók við sem rektor Háskólans á Hólum 1. júní.

„Það verður gaman að halda áfram að byggja upp þessi fræðisvið sem nú þegar eru og nýta grunninn til þess að efla skólann.“ Þrjár deildir eru við skólann: Fiskeldis- og fiska­líffræði­deild, Ferða­máladeild og og Hesta­fræðideild. Hólm­fríður er með meistara­gráðu í næringar­fræði frá Justus Liebig háskólanum í Giessen í Þýska­landi og doktors­gráðu í matvæla­fræði frá Háskóla Íslands. Hún vann áður meðal annars hjá Matís og svo Fisk Seafood.

Verði sjálfbærara

Hólm­fríður er spurð hvað blasi nú við og hvernig hún sjái fram­tíðina.

Alveg gríð­ar­leg tæki­færi hvort sem það er land­eldi, sjó­eldi eða úthaf­seldi.

„Nú er ég svolítið að taka stöðuna hvar hlutirnir eru staddir og síðan að efla þessi þrjú fræðasvið en það er gríðar­lega góður og mikill grunnur á öllum þessum þremur fræða­sviðum. Fiskeldið er sú atvinnu­grein á Íslandi sem er að fara að skapa okkur líklegast hvað mest útflutnings­verðmæti. Það eru skiptar skoðanir um fiskeldið en það verður ekkert aftur snúið; við byggjum hér upp fiskeldi. Það þarf bara að ná ákveðinni sátt og það verður gert að mínu viti með því að gera þetta aðeins sjálf­bærara – meira í sátt við náttúruna og samfélögin og þar eru tækifæri fyrir Háskólann á Hólum. Alveg gríðarleg tækifæri hvort sem það er landeldi, sjóeldi eða úthafseldi.“

Þannig að þú gengur fordóma­laus inn í þetta starf?

„Algjör­lega og ég er nátt­úrlega búin að vera í kringum þetta fiskeldi lengi af því að í doktors­náminu mínu var ég að skoða áhrif umhverfis á þors­klifur því þá var svo mikil áhersla á þorskeldi og ég var að skoða umhverfis­þætti sem gætu haft jákvæð áhrif í lifunina. Þannig að ég kynntist eldinu mjög snemma og þessum aðilum sem eru að vinna í eldi. Þannig að ég þekki þann heim ágætlega.“

Ferðamannaiðnaður í dreifbýli

Talið berst að ferða­mennsku og segir Hólm­fríður að námið í Ferðamál­deild sé meira í fjarnámi. „Það vantar mikið starfs­fólk inn í þennan geira; inn í ferða­þjónustuna. Það er mikil eftir­spurn eftir starfs­fólki. Við höfum verið með styttri náms­brautir þar en líka lengri og ég sæi alveg fyrir mér að auka framboð á styttri náms­leiðum. Mig myndi langa út af stað­setningu Hóla að þróa okkur aðeins meira út í ferðamanna­iðnað í dreifbýli. Og það er nú þegar verið að horfa í þá átt.“

Meiri rannsóknir

Hesta­fræði­deildin á Hólum er vinsæl og komast einungis 20 nemendur inn á hverju ári. Hvað sér Hólm­fríður fyrir sér á Hólum hvað hestinn varðar?

Svo langar mig að auka rann­sóknir á sam­spili hests og manns.

„Ég sé fyrir mér á Hólum að auka rann­sóknir á íslenska hestinum. Það er ekki mikið verið að stunda rann­sóknir á íslenska hestinum og Háskólinn á Hólum hefur gert mjög vel í að auka alla fagmennsku í kringum reið­mennsku. Þeir eiga alveg hrós skilið og við sem höfum verið í þessu svolítið lengi sjáum hvernig hesta­mennska hefur orðið faglegri. En ég myndi vilja sjá miklu meiri rann­sóknir. Hesturinn er einstakt dýr. Það er búið að vera einangrað hérna og okkur hefur tekist vel upp í ræktun og þetta er orðin mikil keppnis­lífvera ef svo má segja. Það er mikið verið að keppa á hestinum. Hvaða áhrif er þetta allt að hafa? Og svo langar mig að auka rann­sóknir á samspili hests og manns; hvernig getum við breikkað notenda­hópinn? Íslenski hesturinn er með sérstaka gangtegund; tölt. Er hægt að nýta það fyrir þá sem geta ekki hreyft sig? Svo hefur maður séð að þeir sem eiga við andleg veikindi að stríða ná einhverju sambandi við hestinn og hesturinn gerir þeim gott. Þannig að þetta er eitthvað sem við eigum að horfa á finnst mér við Háskólann á Hólum og ég vil sjá rannsóknar­miðstöð íslenska hestsins rísa á Hólum.“

Hesturinn getur verið guðsgjöf fyrir hinn fatlaða og hinn sjúka.

„Já, þetta eru hugmyndir sem koma frá kennurunum á Hólum. Hvað varðar áfalla­streitu og annað sem bæði margir full­orðnir og börn verða fyrir á lífs­leiðinni þá hætta sumir að treysta og þá virðist hesturinn hafa þá eigin­leika að brjóta einhvern múr þannig að fólk byrjar að treysta honum; þetta hefur líka verið sýnt með hunda. Og svo er það líka þessi hreyfing; þetta leysir úr læðingi einhver hormón sem valda ákveðinni vellíðan. Við þekkjum þetta sem höfum riðið á góðu tölti að þetta vekur ákveðna vellíðan. En við vitum svo lítið um þetta. Þetta þarf að rannsaka. Og þarna þurfum við að fá með okkur allt öðruvísi sérfræðinga heldur en sérfræðinga á sviði hesta­fræðinnar. Þarna er alveg óplægður akur að mínu mati.“

Og þá þurfum við að fá stjórn­völd með okkur.

Rektorinn nýi er spurður hvort aðstaðan á Hólum sé fullnægjandi.

„Hún var fullnægjandi þegar hún var byggð upp hérna á sínum tíma. Við þurfum að fara í átak. Tækni og þekkingu hefur fleygt fram. Við vitum núna meira um svo mikið varðandi aðbúnað og við megum ekki dragast aftur úr. Við verðum að vera með besta aðbúnaðinn eða allavega á pari við það sem gerist úti í iðnaðinum. Og það er því miður ekki þannig núna. Við verðum að fara í átak. Og þá þurfum við að fá stjórn­völd með okkur. Því mér finnst þetta svo mikilvægt. Við megum ekki gleyma þessum menningar­arfi og þessum sendi­herra sem hesturinn er fyrir Ísland. Þetta er einstakt.“

Hólm­fríður segir að framtíðin sé björt fyrir Háskólann á Hólum. „Ég sé gríðar­lega mikil tækifæri og ég veit að fólkið á Hólum sér líka þessi tækifæri. Við ætlum að efla þessi þrjú fræðasvið sem eru gríðar­lega mikilvæg fyrir íslenskt efnahagslíf og samfélagið hérna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt