Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Þriðji víkingaskálinn fundinn á Stöð í Stöðvarfirði

Einstakir gripir koma í ljós

Stöð í Stöðvarfirði.
Stöð í Stöðv­ar­firði. Þriðji skál­inn er smá saman að koma betur í ljós. Mynd: Björgvin Valur Guðmundsson

Fornleifa­fræðingar telja sig nú hafa fundið þriðja skálann frá víkingaöld á fornleifa­svæðinu að Stöð í Stöðvar­firði. Enn á eftir að greina stærð og aldur skálans nánar, en fyrstu niður­stöður benda til að um mikilvægt mannvirki sé að ræða. Fjölmargir merki­legir gripir hafa þegar komið í ljós í sumar.

„Það má segja að sumarið hafi farið af stað með látum,“ segir Bjarni F. Einarsson fornleifa­fræðingur, sem hefur stýrt uppgreftrinum frá því hann hófst árið 2015, í samtali við Austur­frétt. Undan­farið ár lauk uppgreftri á tveimur skálum sem stóðu hvor ofan á öðrum, sá eldri frá því fyrir landnám, líklega reistur um 870, og sá yngri frá um 950.

Nýtt mannvirki komið í ljós

Á síðasta ári hófst nánari skoðun á svæðinu í kringum skálana með jarðsjá og komu fram vísbendingar um minjar norðan við gamlan öskuhaug. Við prufu­skurði í fyrra kom í ljós bygging sem nú er talið næsta víst að sé skáli. Kolefnis­sýni hafa verið tekin (C-14), en frekari aldurs­greiningar eru í bígerð þar sem engin gjóskulög eru til staðar sem hægt er að styðjast við. Ekki er heldur komin stað­festing á stærð hans.

„Við höfum þess vegna ekki staðsett skálann í tíma, hvort hann tilheyri öðrum hvorum hinna skálanna eða sé milli­leikur, eins og ég freistast til að halda,“ segir Bjarni.

Óvenju­legur skáli með mögulegu ræsi

Skálinn, sem virðist vera þriggja skipa, með miðskipi og tveimur hliðar­skipum utan þaksúlna, ber með sér óhefðbundin einkenni. „Það eru vísbendingar um að hann sé öðruvísi en skálar almennt, það virðist einhvers konar ræsi í honum. Við sjáum strax að hann er mjög funda­ríkur og búumst við mörgum gripum.“ segir Bjarni.

Gripir sem varpa ljósi á sögu svæðisins

Uppgröftur hófst að nýju 2. júní og stendur til 27. júní. Nokkrir áhuga­verðir gripir hafa þegar komið í ljós, þar á meðal skutull úr ösku­haugnum, sá þriðji sem finnst á staðnum, og styður það kenningar um að Stöð hafi verið útstöð, þar sem fólk dvaldi tíma­bundið til að stunda ákveðin störf, en settist ekki að til frambúðar.

Einnig fannst skreytt bjalla úr bronsi, fimmta sinnar tegundar sem finnst á Íslandi, auk perlna, skífa og jaspísa. Allt eru þetta gripir sem styrkja myndina af Stöð sem merkilegu miðstöð við upphaf byggðar á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp