Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Ariana Grande útskýrir hlé frá sviðsljósinu

„Fólk þarf stundum að setja mörk og taka sér hlé“

Ariana Grande
Ariana Grande Söng­konan þarf pásu Mynd: Instagram

Söngkonan Ariana Grande hefur útskýrt ákvörðun sína um að draga sig í hlé frá opinberu lífi eftir að tónleika­ferðalagi hennar, Eternal Sunshine Tour, lýkur.

Um helgina greindi talsmaður Grande frá því að hún hygðist taka sér hlé vegna „enda­lausrar og viðvarandi opinberrar gagnrýni“. Á tónleikum í Chicago ákvað söngkonan hins vegar að ávarpa aðdáendur sína beint og útskýra ástæðurnar.

„Stundum, þegar fréttir berast sem koma ekki beint frá mér, geta hlutirnir orðið ýktir. Ég vildi því tala beint við aðdáendur mína í kvöld því mér þykir svo vænt um ykkur,“ sagði Grande.

Hún lagði áherslu á að ákvörðunin hefði ekki verið tekin í flýti eða sem viðbrögð við nýlegri umræðu.

„Tilkynningin sem birt var í gær var hvorki skyndileg né til komin sem viðbragð. Ég hafði ákveðið þetta fyrir löngu og gert hljóðláta áætlun. Þetta var vel ígrunduð ákvörðun sem ég tók af öryggi.“

Grande sagði að aðdáendur hefðu haft áhyggjur af því að neikvæð umræða væri að hafa slæm áhrif á hana, en hún hafnaði því.

„Ég vil að þið vitið að margt getur verið satt á sama tíma. Fólk þarf stundum að setja mörk og taka sér hlé. En jafnframt hefur þetta verið og mun halda áfram að vera besta reynsla starfs­ferils míns og sköpunar­lífs. Ekkert mun spilla því.“

Hún bætti við að ástin frá aðdáendum og gleðin við að skapa tónlist skiptu meira máli en allt annað.

„Ekkert af því sem sagt er getur afbakað raun­veruleikann eða verið sterkara en kærleikurinn sem við deilum og tilfinningin sem fylgir því að skapa list með fólki sem ég elska og ber virðingu fyrir.“

Söngkonan sagði einnig:

„Ég tek þetta með mér. Hitt ruslið er ekki mitt að bera, þannig að ég ber það ekki.“

Undan­farnar vikur hafa margir aðdáendur lýst áhyggjum af útliti Grande eftir útgáfu mynd­bandsins við nýja lagið Petal en hún þykir hafa grennst ískyggilega mikið. Í kjölfarið staðfesti talsmaður hennar að hún hygðist stíga tíma­bundið út úr sviðs­ljósinu eftir að tónleika­ferðalaginu lýkur.

Samkvæmt talsmanni Grande ætlar hún að ljúka ferða­laginu „heilbrigð og glöð“ áður en hún tekur sér „vel verð­skuldað hlé frá opinberum störfum og framkomum“, sem hafi orðið tilefni „enda­lausrar og viðvarandi opinberrar gagnrýni.“

Grande á eftir tvo tónleika í Chicago áður en hún heldur til Bretlands, þar sem hún verður með tíu tónleika í O2 Arena í London. Tónleika­ferðalaginu lýkur 1. september.

Hér fyrir neðan má sjá téð myndband en viðkvæmir eru varaði við mynd­efninu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi